1Í Íkóníum gengu þeir á sama hátt inn í samkundu Gyðinga og töluðu þannig, að mikill fjöldi Gyðinga og Grikkja tók trú.2En vantrúa Gyðingar vöktu æsing með heiðingjum og illan hug gegn bræðrunum.3Dvöldust þeir þar alllangan tíma og töluðu djarflega í trausti til Drottins, sem staðfesti orð náðar sinnar með því að láta tákn og undur gerast fyrir hendur þeirra.4Skiptust nú borgarbúar í tvo flokka, og voru sumir með Gyðingum, aðrir með postulunum.5Heiðingjar og Gyðingar gjörðu ásamt yfirvöldum sínum samblástur um að misþyrma þeim og grýta þá.6Þeir komust að þessu og flýðu til borganna Lýstru og Derbe í Lýkaóníu og héraðsins umhverfis.7Þar héldu þeir áfram að flytja fagnaðarerindið.8Í Lýstru var maður nokkur máttvana í fótum, lami frá móðurlífi, og hafði aldrei getað gengið.9Maður þessi heyrði á mál Páls, en Páll horfði á hann og sá, að hann hafði trú til þess að verða heill,10og sagði hárri raustu: Rís upp og stattu í fæturna! Hann spratt upp og tók að ganga.11Múgurinn sá, hvað Páll hafði gjört, og tók að hrópa á lýkaónsku: Guðirnir eru í manna líki stignir niður til vor.12Kölluðu þeir Barnabas Seif, en Pál Hermes, því að hann hafði orð fyrir þeim.13En prestur í hofi Seifs utan borgar kom með naut og kransa að borgarhliðunum og vildi færa fórnir ásamt fólkinu.14Þegar postularnir, Barnabas og Páll, heyrðu þetta, rifu þeir klæði sín, stukku inn í mannþröngina og hrópuðu:15Menn, hví gjörið þér þetta? Menn erum vér sem þér, yðar líkar, og flytjum yður þau fagnaðarboð, að þér skuluð hverfa frá þessum fánýtu goðum til lifanda Guðs, sem skapaði himin, jörð og haf og allt, sem í þeim er.16Hann hefur um liðnar aldir leyft, að sérhver þjóð gengi sína vegu.17En þó hefur hann vitnað um sjálfan sig með velgjörðum sínum. Hann hefur gefið yður regn af himni og uppskerutíðir. Hann hefur veitt yður fæðu og fyllt hjörtu yðar gleði.18Með þessum orðum fengu þeir með naumindum fólkið ofan af því að færa þeim fórnir.19Þá komu Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum. Töldu þeir fólkið á sitt mál, og menn grýttu Pál, drógu hann út úr borginni og hugðu hann dáinn.20En lærisveinarnir slógu hring um hann, og reis hann þá upp og gekk inn í borgina. Daginn eftir fór hann þaðan með Barnabasi til Derbe.21Þegar þeir höfðu boðað fagnaðarerindið í þeirri borg og gjört marga að lærisveinum, sneru þeir aftur til Lýstru, Íkóníum og Antíokkíu,22styrktu lærisveinana og hvöttu þá til að vera staðfastir í trúnni. Þeir sögðu: Vér verðum að ganga inn í Guðs ríki gegnum margar þrengingar.23Þeir völdu þeim öldunga í hverjum söfnuði, fólu þá síðan með föstum og bænahaldi Drottni, sem þeir höfðu fest trú á.24Þá fóru þeir um Pisidíu og komu til Pamfýlíu.25Þeir fluttu orðið í Perge, fóru til Attalíu26og sigldu þaðan til Antíokkíu, en þar höfðu þeir verið faldir náð Guðs til þess verks, sem þeir höfðu nú fullnað.27Þegar þeir voru þangað komnir, stefndu þeir saman söfnuðinum og greindu frá, hversu mikið Guð hafði látið þá gjöra og að hann hefði upp lokið dyrum trúarinnar fyrir heiðingjum.28Dvöldust þeir nú alllengi hjá lærisveinunum.

14.1 Grikkir Post 18.4; 19.10,17; 20.21; sbr 11.20
14.2 Vöktu illan hug Post 13.45+ – kristnir menn Post 1.15+
14.3 Tákn og undur Post 2.43+ – staðfesta orðið Mrk 16.20; Post 19.11; Heb 2.4
14.4 Postularnir 1)hinir útsendu Jóh 13.16; Post 13.1-4; 2Kor 8.23; sbr Post 22.21 2)hinir tólf Post 1.2,26; 2.37,42; 4.33; 16.4
14.5 Samblástur geng postulunum Post 14.19; 2Tím 3.11
14.6 Flýðu til útlendinga Matt 10.23
14.8 Lami frá móðurlífi Jóh 9.1; Post 3.2
14.9 Trú og lækning Matt 9.28; Post 3.16
14.10 Læknaður Post 3.2-9
14.11 Postularnir álitnir guðir Post 28.6
14.15 Postulleg boðun Post 2.14+ – menn eins og þið Post 10.26; Jak 5.17 – skapaði himinn og jörð 2Mós 20.11; Slm 146.6
14.16 Gengi sína vegu Post 17.30
14.17 Regn og uppskerutíðir Slm 147.8; Jer 5.24
14.19 Athæfi Gyðinganna Post 17.13 – Páll grýttur 2Kor 11.25; 2Tím 3.11
14.20 Lærisveinarnir Post 6.1+
14.22 Styrktu Post 15.32; 18.23 – vera staðfastir Post 11.23; 13.43 – þrengingar í vændum 1Þess 3.3
14.23 Öldungar Post 11.30+ – velja öldunga Post 20.28; Tít 1.5 – fasta og bæn Post 13.3
14.26 Til Antíokkíu Post 13.1-2; 15.40
14.27 Greindu frá Post 15.4,12; 21.19 – opna dyr 1Kor 16.9; 2Kor 2.12; Kól 4.3 – fyrir heiðingjum Post 10.45; 11.1,18; 13.47-48