1Meðan þeir voru að tala til fólksins, komu að þeim prestarnir, varðforingi helgidómsins og saddúkearnir.2Þeir voru æfir af því að postularnir voru að kenna fólkinu og boða upprisu dauðra í Jesú.3Lögðu þeir hendur á þá og settu þá í varðhald til næsta morguns, því að kvöld var komið.4En margir þeirra, er heyrt höfðu orðið, tóku trú, og tala karlmanna varð um fimm þúsundir.5Næsta morgun komu höfðingjarnir, öldungarnir og fræðimennirnir saman í Jerúsalem.6Þar voru Annas, æðsti prestur, Kaífas, Jóhannes, Alexander og allir, sem voru af æðsta prests ættum.7Þeir létu leiða postulana fram og spurðu þá: Með hvaða krafti eða í hvers nafni gjörðuð þið þetta?8Þá sagði Pétur við þá, fylltur heilögum anda: Þér höfðingjar lýðsins og öldungar,9með því að við eigum í dag að svara til saka vegna góðverks við sjúkan mann og gera grein fyrir því, hvernig hann sé heill orðinn,10þá sé yður öllum kunnugt og öllum Ísraelslýð, að í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess er þér krossfestuð, en Guð uppvakti frá dauðum, í hans nafni stendur þessi maður heilbrigður fyrir augum yðar.11Jesús er steinninn, sem þér, húsasmiðirnir, virtuð einskis, hann er orðinn hyrningarsteinn.12Ekki er hjálpræðið í neinum öðrum. Og ekkert annað nafn er mönnum gefið um víða veröld, sem getur frelsað oss.13Þegar þeir sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og skildu, að þeir voru ólærðir leikmenn, undruðust þeir. Þeir könnuðust og við, að þeir höfðu verið með Jesú.14Og er þeir sáu manninn, sem læknaður hafði verið, standa hjá þeim, máttu þeir ekki í móti mæla.15Þeir skipuðu þeim að ganga út frá ráðinu, tóku saman ráð sín og sögðu:16Hvað eigum vér að gjöra við þessa menn? Því að augljóst er öllum Jerúsalembúum, að ótvírætt tákn er orðið af þeirra völdum. Vér getum ekki neitað því.17Þetta má ekki berast frekar út meðal lýðsins. Vér skulum því hóta þeim hörðu, að þeir tali aldrei framar í þessu nafni við nokkurn mann.18Síðan kölluðu þeir þá fyrir sig og skipuðu þeim að hætta með öllu að tala eða kenna í Jesú nafni.19Pétur og Jóhannes svöruðu: Dæmið sjálfir, hvort það sé rétt í augum Guðs að hlýðnast yður fremur en honum.20Vér getum ekki annað en talað það, sem vér höfum séð og heyrt.21En þeir ógnuðu þeim enn frekar og slepptu þeim síðan, þar sem þeir sáu enga leið vegna fólksins að hegna þeim, því allir lofuðu Guð fyrir þennan atburð.22En maðurinn, sem læknast hafði með þessu tákni, var yfir fertugt.23Er þeim hafði verið sleppt, fóru þeir til félaga sinna og greindu þeim frá öllu því, sem æðstu prestarnir og öldungarnir höfðu við þá talað.24Þegar þeir heyrðu það, hófu þeir einum huga raust sína til Guðs og sögðu: Herra, þú sem gjörðir himin, jörð og haf og allt, sem í þeim er,25þú, sem lést heilagan anda mæla af munni Davíðs, föður vors, þjóns þíns: Hví geisuðu heiðingjarnir, og hví hugðu lýðirnir á hégómleg ráð?26Konungar jarðarinnar risu upp, og höfðingjarnir söfnuðust saman gegn Drottni og gegn hans Smurða.27Því að sannarlega söfnuðust saman í borg þessari gegn hinum heilaga þjóni þínum, Jesú, er þú smurðir, þeir Heródes og Pontíus Pílatus ásamt heiðingjunum og lýðum Ísraels28til að gjöra allt það, er hönd þín og ráð hafði fyrirhugað, að verða skyldi.29Og nú, Drottinn, lít á hótanir þeirra og veit þjónum þínum fulla djörfung að tala orð þitt.30Rétt þú út hönd þína til að lækna og lát tákn og undur verða fyrir nafn þíns heilaga þjóns, Jesú.31Þegar þeir höfðu beðist fyrir, hrærðist staðurinn, þar sem þeir voru saman komnir, og þeir fylltust allir heilögum anda og töluðu orð Guðs af djörfung.32En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál, og enginn þeirra taldi neitt vera sitt, er hann átti, heldur höfðu þeir allt sameiginlegt.33Postularnir báru vitni um upprisu Drottins Jesú með miklum krafti, og mikil náð var yfir þeim öllum.34Eigi var heldur neinn þurfandi meðal þeirra, því að allir landeigendur og húseigendur seldu eign sína, komu með andvirðið35og lögðu fyrir fætur postulanna. Og sérhverjum var úthlutað eftir því sem hann hafði þörf til.36Jósef levíti, frá Kýpur, sem postularnir kölluðu Barnabas, það þýðir huggunar sonur,37átti sáðland og seldi, kom með verðið og lagði fyrir fætur postulanna.

4.1 Prestarnir og varðforingi helgidómsins Lúk 22.4,52; Post 5.24 – saddúkearnir og upprisa dauðra Lúk 20.27 og hlst. Post 23.8
4.2 Jesús og upprisa dauðra Post 4.33; 17.18; 26.23
4.4 Söfnuðurinn vex Post 2.41+
4.7 Með hvaða krafti? Lúk 20.2 og hlst.; sbr Post 3.16+
4.8 Vörn Péturs og málsvörn lærisveinanna Matt 10.19-20; Mrk 13.11; Lúk 12.11-12 – fylltur heilögum anda Post 6.3,5; 7.55; 9.17; 11.24; 13.9
4.9 Bjarga, lækna Matt 9.22+ ; Lúk 8.36+; Post 14.9
4.10 Í nafni Jesú Krists frá Nasaret Post 3.6; sbr 3.16+ – þið krossfestuð Post 2.36; 5.30; 10.39 – vakti upp frá dauðum Post 2.24+
4.11 Steinninn Slm 118.22; Lúk 20.17 og hlst.; 1Pét 2.4,7
4.12 Jesús frelsari Matt 1.21; Post 5.31; 13.23 – hjálpræði Post 2.21; 7.25; 11.14; 13.26,47; 15.1,11; 16.17,30-31
4.13 Djörfung Post 2.29; 4.29-31; 9.27-28; 14.3; 28.31
4.15 Ráðaleysi Jóh 11.47
4.17-18 Aldrei framar í þessu nafni Post 5.28; sbr 3.16+
4.19 Fremur en Guði Post 5.29
4.20 Sjá og heyra Post 1.3,22; 10.39,41
4.21 Lofa Guð Post 3.8+
4.24 Guð skapari 2Mós 20.11; Slm 146.6 – bænir til Guðs Post 1.24-25
4.25-26 Hví? Slm 2.1-2
4.27 Þjónn þinn Jesú Post 3.13 – smyrja Jes 61.1
4.28 Allt, sem fyrirhugað var Post 2.23
4.29 Fulla djörfung Post 4.13; Ef 6.19
4.30 Tákn og undur Post 2.43+ – nafn Post 3.16+
4.31 Fylltust heilögum anda Post 2.4+ ; sbr 10.46
4.32 Í þeim fjölda Post 2.44+ – lífið í frumsöfnuðinum Post 2.42-47 – allt sameiginlegt Post 2.44; sbr Lúk 12.33; 18.22
4.33 Kraftur Guðs Post 3.12 – bera vitni um upprisu Jesú Post 4.2 – mikil náð Post 6.8; 11.23; 14.26; 15.40
4.34-35 Eftir þörfum Post 2.45
4.36 Barnabas Post 9.27; 11.22,30; 12.25; 13.1,7,43; 14.12,20; 15.2,12,22,35-39; 1Kor 9.6; Gal 2.1,9,13; Kól 4.10