1Orð Drottins kom til mín:2Far og kunngjör Jerúsalem þetta: Svo segir Drottinn: Ég man eftir kærleika æsku þinnar, elsku festartíma þíns, hversu þú fylgdir mér í eyðimörkinni, í ófrjóu landi.3Ísrael var helgaður Drottni, frumgróði uppskeru hans, allir þeir, sem vildu eta hann, urðu sekir, ógæfa kom yfir þá segir Drottinn.4Heyrið orð Drottins, Jakobs hús og allar þér ættkvíslir Ísraels húss!5Svo segir Drottinn: Hver rangindi hafa feður yðar fundið hjá mér, að þeir hurfu frá mér og eltu fánýt goð og breyttu heimskulega,6og sögðu ekki: Hvar er Drottinn, sem flutti oss burt af Egyptalandi, sem leiddi oss um eyðimörkina, um heiða- og gjótulandið, um þurra og niðdimma landið, um landið, sem enginn fer um og enginn maður býr í?7Ég leiddi yður inn í aldingarðslandið, til þess að þér nytuð ávaxta þess og gæða, en þegar þér voruð komnir þangað, saurguðuð þér land mitt og gjörðuð óðal mitt að viðurstyggð.8Prestarnir sögðu ekki: Hvar er Drottinn? og þeir, er við lögmálið fengust, þekktu mig ekki. Hirðarnir rufu trúnað við mig, og spámennirnir spáðu í nafni Baals og eltu þá, sem ekki geta hjálpað.9Fyrir því mun ég enn þreyta mál við yður segir Drottinn og við sonasonu yðar mun ég þreyta mál:10Farið yfir til stranda Kitta og gangið úr skugga um, og sendið til Kedars og hyggið vandlega að. Gangið úr skugga um, hvort slíkt hafi nokkurn tíma við borið!11hvort nokkur þjóð hafi skipt um guð og það þótt þeir væru ekki guðir! En mín þjóð hefir látið vegsemd sína fyrir það, sem ekki getur hjálpað.12Furðið yður, himnar, á þessu og skelfist og verið agndofa segir Drottinn.13Því að tvennt illt hefir þjóð mín aðhafst: Þeir hafa yfirgefið mig, uppsprettu hins lifandi vatns, til þess að grafa sér brunna, brunna með sprungum, sem ekki halda vatni.14Er Ísrael þræll, eða er hann heimafætt þý? Hví er hann orðinn að herfangi?15Ljón grenjuðu móti honum, hófu upp öskur sitt og gjörðu land hans að auðn. Borgir hans voru brenndar, urðu mannauðar.16Nóf-menn og Takpanes-menn reyttu á þér skallann.17Hefir þú ekki bakað þér þetta með því að yfirgefa Drottin, Guð þinn, þá er hann leiddi þig á veginum?18Og nú, hvað þarft þú að fara til Egyptalands? Til þess að drekka vatn úr Níl? Og hvað þarft þú að fara til Assýríu? Til þess að drekka vatn úr Efrat?19Vonska þín mun aga þig og fráhvarf þitt refsa þér. Þú skalt fá að kenna á því og reyna það, hve illt og beiskt það er, að þú yfirgafst Drottin, Guð þinn. Þú hafðir ekki ótta fyrir mér segir herrann, Drottinn allsherjar.20Fyrir löngu hefir þú sundurbrotið ok þitt, slitið böndin og sagt: Ég vil ekki þjóna! Því að á hverjum háum hól og undir hverju grænu tré lagðist þú niður og hóraðist.21En ég hafði gróðursett þig sem gæðavínvið, eintómt úrvalssæði, hvernig gastu breytst fyrir mér í villivínviðarteinunga.22Já, þótt þú þvægir þér með lút og brúkaðir mikla sápu á þig, þá verður samt misgjörð þín óhrein fyrir mér herrann Drottinn segir það.23Hvernig getur þú sagt: Ég hefi ekki saurgað mig, ég hefi ekki elt Baalana? Hygg að athæfi þínu í dalnum, sjá, hvað þú hefir gjört, léttfætta úlfaldahryssa, sem hleypur til og frá.24Eins og villiasna, sem vön er eyðimörkinni, stendur hún á öndinni í girndarbruna sínum, hver fær aftrað losta hennar? Þeir sem hennar leita, þurfa engir að þreyta sig, þeir finna hana í mánuði hennar.25Varðveit þú fót þinn, svo að skórinn fari ekki af honum, og háls þinn, svo að hann verði ekki þurr! En þú segir: Það er til einskis! Nei! Ég elska hina útlendu og þá vil ég elta!26Eins og þjófurinn má skammast sín, þegar hann er staðinn að verkinu, svo má Ísraels hús skammast sín: Þeir, konungar þeirra, höfðingjar þeirra, prestar þeirra og spámenn þeirra,27segja við trédrumb: Þú ert faðir minn! og við stein: Þú hefir fætt mig! Þeir hafa snúið við mér bakinu, en ekki andlitinu, en þegar þeir eru í nauðum staddir, þá hrópa þeir: Rís upp og hjálpa oss!28En hvar eru guðir þínir, sem þú hefir gjört þér? Þeir verða að rísa upp, ef þeir geta hjálpað þér, þegar þú ert í nauðum staddur! Því að guðir þínir, Júda, eru orðnir eins margir og borgir þínar.29Hví þráttið þér við mig? Þér hafið allir rofið trúnað við mig segir Drottinn.30Til einskis hefi ég slegið sonu yðar, aga þýddust þér ekki, sverð yðar tortímdi spámönnum yðar, eins og eyðandi ljón.31Þú kynslóð, gef gaum orði Drottins! Hefi ég verið eyðimörk fyrir Ísrael eða niðdimmt land? Hví segir þá þjóð mín: Vér erum lausir, vér munum ekki koma aftur til þín!32Mun mær gleyma skarti sínu, brúður belti sínu? Og þó hefir þjóð mín gleymt mér afar langan tíma.33Hversu haganlega fer þú að ráði þínu, til þess að leita þér ástar! Til þess hefir þú jafnvel vanið þig á glæpa-atferli.34Jafnvel á faldi klæða þinna sést blóð saklausra aumingja. Þú stóðst þá eigi að innbroti.35Þrátt fyrir allt þetta segir þú: Ég er saklaus, vissulega hefir reiði hans snúist frá mér. Sjá, nú dreg ég þig fyrir dóm, af því að þú segir: Ég hefi ekki syndgað.36Hví flýtir þú þér svo mjög burt til þess að halda aðra leið? Vonir þínar um Egyptaland munu og bregðast, eins og vonir þínar um Assýríu brugðust.37Einnig þaðan munt þú koma, sláandi höndum saman yfir höfði þér, því að Drottinn hefir hafnað þeim, er þú treystir á, og þér mun ekkert lánast með þá.

2.2 Í eyðimörkinni 5Mós 2.7; 8.2-4; Esk 20.13; Hós 2.16-22; Am 5.25; Slm 78.40; 95.10; 106.14
2.3 Helgaður Drottni 2Mós 28.36; Slm 105.15; sbr Hós 2.20 – ógæfa kom yfir þá 1Mós 12.17; 20.3,7; Jes 10.5-19; 47.6-14; Sak 1.15; Slm 105.14-15
2.5 Hvaða rangindi? 5Mós 32.4; Jes 1.2; Job 34.10
2.6 Hvar er Drottinn? Jes 63.11; Job 35.10 – leiddi oss 5Mós 32.10-12
2.7 Saurgað land Jer 3.2,9; 23.15; Jes 24.5
2.8 Hvar er Drottinn? 2Kon 2.14 – lögvitringar Lúk 11.52 – leiðtogar bregðast Mík 3.11 – svik presta og spámanna Jer 6.13; 8.10 – þeir sem gæta laganna Jer 18.18; 3Mós 10.11; 4Mós 27.21; 5Mós 31.9-13; 33.10; Esk 7.26; Hós 4.6; Mal 2.7; Sír 45.17; sbr 1Sam 14.37-43 – hirðarnir sviku mig Jer 21.1-23.8 – svik spámanna Jer 5.13,31; 14.13-15; 23.9-40; 27.9,14-18; 28; 29.8-9,15 – fánýt goð Jer 2.11; 16.19; 1Sam 12.21; Jes 44.9
2.10 Kittar 4Mós 24.24 – Kedar Jer 49.28; Jes 21.16+
2.11 Eru engir guðir Jer 5.7; 16.20; Jes 41.23; 42.17; SSal 15.16-17 – Drottinn, vegsemd þjóðar sinnar 2Kor 3.18; Kól 1.11; 1Pét 4.14 – látið vegsemd sína fyrir … Slm 106.20
2.13 Tvennt illt Hós 10.10 – yfirgefið mig Jer 1.16; 2.17,19; 5.7,19; 16.11; 17.13; Bar 3.12 – lifandi vatn Jóh 4.10
2.14 Þrælborin 1Mós 14.14; 17.12-13,23,27; 3Mós 22.11
2.15 Ljón grenjuðu Jer 12.8; 51.38; sbr Jer 4.7+
2.16 Menn frá Nóf Jer 44.1; 46.14; Jes 19.13; Esk 30.13 – Takpanes Jer 43.7-9; 44.1; Esk 30.18
2.18 Til Egyptalands og Assýríu Hós 7.11; 12.2 – Hvaða ávinning? Hós 5.13; 8.9; 14.4; Jer 2.36; Jes 20.1-6; 30.1-5; 31.1-3; Esk 29.6
2.19 Illska þín 4Mós 14.34; Slm 107.17; sbr Jer 14.16 – óttast Drottin Job 28.28; Okv 1.7+
2.20 Uppreisn fyrir löngu Jer 6.28; 8.5; 13.23; sbr Esk 20; 23; Post 7.51 – brotið ok þitt Jer 5.5; sbr Matt 11.30 – græn tré Jer 3.6,13; 17.2; 5Mós 12.2; 1Kon 14.23; 2Kon 16.4; 17.10; Jes 57.5; Esk 6.13
2.21 Gróðursetja Slm 80.9 – gæðavínviður Jes 5.1+ – breyst 5Mós 32.32
2.22 Þvo með lút Job 9.30 – synd þín Jer 17.1
2.23 Hvernig getur þú sagt? Jer 48.14 – í dalnum Jer 7.31-32; 19.6; 32.35; Jós 15.8; 2Kon 23.10
2.25 Til einskis Jer 18.12 – laðast að þeim sem eru framandi Jer 3.13; Esk 16.15,32-33; 23.5-7; sbr 5Mós 32.16
2.27 Trédrumbur, steinn Jer 3.9; sbr SSal 13.17 – faðir minn 5Mós 32.6
2.28 Vanmáttugir guðir Jer 10.8,14; 5Mós 32.37-38; 1Kon 18.26-29 – þú hefur gert Jer 16.20; Jes 2.8; Hós 14.4 – jafnmargir og … Jer 11.13; Hós 8.11; sbr 5Mós 12.5
2.30 Létu sér ekki segjast Jer 5.3 – spámönnum tortímt Neh 9.26; Matt 23.35; 1Þess 2.15
2.31 Snúum ekki aftur Jer 2.20; 5.23; 14.10
2.32 Gleyma Guði Jer 2.17; 3.21; 6.19; 13.25; 18.15; 5Mós 8.19
2.34 Blóð Hlj 4.14
2.35 Reiði Guðs Jer 3.5
2.36 Egyptaland og Assýría Jer 2.18+