1Svo sagði Drottinn: Far og kaup krús eftir leirkerasmið, tak því næst með þér nokkra af helstu mönnum þjóðarinnar og nokkra af helstu prestunum2og gakk út í Hinnomssonar-dal, sem er fyrir utan Leirbrotahlið, og kunngjör þar þau orð, sem ég mun tala til þín,3og seg: Heyrið orð Drottins, þér Júdakonungar og Jerúsalembúar! Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég mun leiða ógæfu yfir þennan stað, svo að óma mun fyrir báðum eyrum allra þeirra, er það heyra.4Af því að þeir yfirgáfu mig og óvirtu þennan stað og færðu á honum reykelsisfórnir öðrum guðum, sem þeir ekki þekktu, hvorki þeir né feður þeirra né Júdakonungar, og fylltu þennan stað blóði saklausra manna5og byggðu Baals-fórnarhæðir til þess að brenna sonu sína í eldi sem brennifórn Baal til handa, sem ég hefi hvorki skipað né mælt svo fyrir og mér hefir aldrei til hugar komið.6Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma segir Drottinn að þessi staður mun ekki framar nefndur verða Tófet og Hinnomssonar-dalur, heldur Drápsdalur.7Þá mun ég ónýta ráð Júda og Jerúsalem á þessum stað og láta þá falla fyrir sverði, er þeir flýja undan óvinum sínum, og fyrir hendi þeirra, er sitja um líf þeirra, en lík þeirra mun ég gefa fuglum himinsins og dýrum jarðarinnar að æti,8og ég mun gjöra þessa borg að skelfingu og háði: Hver sá, er hér fer um, mun skelfast og hæðast að öllum áföllunum, sem hún hefir orðið fyrir.9Og ég mun láta þá eta hold sona sinna og hold dætra sinna, og þeir munu eta hver annars hold í neyð þeirri og þrenging, er óvinir þeirra og þeir, er sitja um líf þeirra, munu koma þeim í.10Og þú skalt brjóta krúsina fyrir augum þeirra manna, sem með þér hafa farið,11og segja við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Svo mun ég brjóta þessa þjóð og þessa borg, eins og menn brjóta leirker, sem ekki verður gjört heilt aftur, og í Tófet mun verða jarðað, með því að ekkert pláss er til að jarða í.12Þannig mun ég fara með þennan stað segir Drottinn og þá, er hér búa, svo að ég gjöri þessa borg að Tófet.13Þá skulu hús Jerúsalem og hús Júdakonunga verða óhrein, eins og Tófet-staðurinn, öll þau hús, þar sem menn hafa fært öllum himinsins her reykelsisfórnir á þökunum og öðrum guðum dreypifórnir.14En er Jeremía kom frá Tófet, þangað sem Drottinn hafði sent hann til þess að spá, nam hann staðar í forgarði musteris Drottins og sagði við allan lýðinn:15Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég leiði yfir þessa borg og allar borgir, er henni tilheyra, alla þá ógæfu, er ég hefi hótað henni, af því að þeir hafa verið harðsvíraðir og ekki hlýtt orðum mínum.

19.2 Hinnomssonardalur Jer 2.23+
19.3 Senda böl Jer 45.5 – gjalla 1Sam 3.11; 2Kon 21.12
19.4 Svikið mig Jer 2.13+ – aðrir guðir Jer 7.9+ – fórna öðrum guðum Jer 1.16+
19.5-9 Drápsdalur Jer 7.31-8.3 – barnafórnir Jer 7.6,31+
19.7 Spilla ráðagerð Jes 19.3 – bíða ósigur 3Mós 26.17 – að æti Jer 7.33+
19.8 Hrylla við og hæðast að Jer 18.16+
19.9 Eta börn sín 3Mós 26.29; 2Kon 6.29; Esk 5.10; Bar 2.3
19.10 Spámannlegar athafnir Jer 13.1+
19.13 Færa öðrum guðum fórnir Jer 1.16+ ; 32.29 – himinsins her Jer 8.2+
19.15 Þverskallast Jer 7.26+