1En svo ég minnist á gáfur andans, bræður, þá vil ég ekki að þér séuð fáfróðir um þær.2Þér vitið, að þegar þér voruð heiðingjar, þá létuð þér leiða yður til mállausra skurðgoðanna, rétt eins og verkast vildi.3Fyrir því læt ég yður vita, að enginn, sem talar af Guðs anda, segir: Bölvaður sé Jesús! og enginn getur sagt: Jesús er Drottinn! nema af heilögum anda.4Mismunur er á náðargáfum, en andinn er hinn sami,5og mismunur er á embættum, en Drottinn hinn sami,6og mismunur er á hæfileikum að framkvæma, en Guð hinn sami, sem öllu kemur til leiðar í öllum.7Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er.8Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki, öðrum að mæla af þekkingu í krafti sama anda.9Hinn sami andi veitir einum trú, öðrum lækningagáfu10og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær spádómsgáfu, annar hæfileika að greina anda, einn að tala tungum og annar að útleggja tungutal.11En öllu þessu kemur til leiðar eini og sami andinn, og hann útbýtir hverjum einum eftir vild sinni.12Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi, en allir limir líkamans, þótt margir séu, eru einn líkami, þannig er og Kristur.13Í einum anda vorum vér allir skírðir til að vera einn líkami, hvort sem vér erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og allir fengum vér einn anda að drekka.14Því að líkaminn er ekki einn limur, heldur margir.15Ef fóturinn segði: Fyrst ég er ekki hönd, heyri ég ekki líkamanum til, þá er hann ekki fyrir það líkamanum óháður.16Og ef eyrað segði: Fyrst ég er ekki auga, heyri ég ekki líkamanum til, þá er það ekki þar fyrir líkamanum óháð.17Ef allur líkaminn væri auga, hvar væri þá heyrnin? Ef hann væri allur heyrn, hvar væri þá ilmanin?18En nú hefur Guð sett hvern einstakan lim á líkamann eins og honum þóknaðist.19Ef allir limirnir væru einn limur, hvar væri þá líkaminn?20En nú eru limirnir margir, en líkaminn einn.21Augað getur ekki sagt við höndina: Ég þarfnast þín ekki! né heldur höfuðið við fæturna: Ég þarfnast ykkar ekki!22Nei, miklu fremur eru þeir limir á líkamanum nauðsynlegir, sem virðast vera í veikbyggðara lagi.23Og þeim, sem oss virðast vera í óvirðulegra lagi á líkamanum, þeim veitum vér því meiri sæmd, og þeim, sem vér blygðumst vor fyrir, sýnum vér því meiri blygðunarsemi.24Þess þarfnast hinir ásjálegu limir vorir ekki. En Guð setti líkamann svo saman, að hann gaf þeim, sem síðri var, því meiri sæmd,25til þess að ekki yrði ágreiningur í líkamanum, heldur skyldu limirnir bera sameiginlega umhyggju hver fyrir öðrum.26Og hvort heldur einn limur þjáist, þá þjást allir limirnir með honum, eða einn limur er í hávegum hafður, samgleðjast allir limirnir honum.27Þér eruð líkami Krists og limir hans hver um sig.28Guð hefur sett nokkra í kirkjunni, fyrst postula, í öðru lagi spámenn, í þriðja lagi fræðara, sumum hefur hann veitt gáfu að gjöra kraftaverk, lækna, vinna líknarstörf, stjórna og tala tungum.29Hvort eru allir postular? Hvort eru allir spámenn? Hvort eru allir fræðarar? Hvort eru allir kraftaverkamenn?30Hvort hafa allir hlotið lækningagáfu? Hvort tala allir tungum? Hvort útlista allir tungutal?31Nei, sækist heldur eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið.

12.1 Gáfur andans 1Kor 14.1,37
12.2 Mállaus skurðgoð Hab 2.18-19
12.3 Tala af anda Guðs Mrk 9.39; 1Jóh 4.2-3 – bölvaður 1Kor 16.22
12.4 Mismunur á náðargjöfum Róm 12.6 – andinn hinn sami Ef 4.4
12.5 Mismunur á þjónustustörfum Ef 4.11
12.7 Til þess að gera öðrum gagn 1Kor 14.26; Ef 4.12
12.8 Af speki 1Kor 2.6
12.9 Trú 1Kor 13.2
12.10 Sannreyna anda 1Kor 14.29; 1Þess 5.21; 1Jóh 4.1-3 – tala tungum 1Kor 14.5; sbr Post 2.4,8,11
12.11 Eftir vild sinni Róm 12.3; 1Kor 7.7; Ef 4.7
12.12 Margir limir, einn líkami Róm 12.4-5; 1Kor 10.17
12.13 Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir Gal 3.28
12.27 Líkami og limir Krists Róm 12.5; Ef 5.30
12.28 Postular, spámenn, kennarar Ef 4.11-12; sbr 1Kor 14.1
12.31 Sækist eftir náðargáfum 1Kor 14.1