1Heyrið, hvað Drottinn segir: Statt upp og sæk sök fyrir fjöllunum, svo að hæðirnar megi heyra raust þína.2Heyrið kærumál Drottins, þér fjöll, og hlýðið á, þér undirstöður jarðarinnar. Því að Drottinn hefir mál að kæra við þjóð sína og gengur í dóm við Ísrael:3Þjóð mín, hvað hefi ég gjört þér og með hverju hefi ég þreytt þig? Vitna þú í gegn mér!4Ég leiddi þig þó út af Egyptalandi og frelsaði þig úr þrælahúsinu og sendi þér Móse, Aron og Mirjam til forystu.5Þjóð mín, minnst þú þess, hvað Balak Móabskonungur hafði í hyggju og hverju Bíleam Beórsson svaraði honum, minnst þú þess er gjörðist á leiðinni frá Sittím til Gilgal, til þess að þú kannist við velgjörðir Drottins.6Með hvað á ég að koma fram fyrir Drottin, beygja mig fyrir Guði á hæðum? Á ég að koma fram fyrir hann með brennifórnir, með ársgamla kálfa?7Hefir Drottinn þóknun á þúsundum hrúta, á tíþúsundum olífuolíulækja? Á ég að fórna frumgetnum syni mínum fyrir misgjörð mína, ávexti kviðar míns sem syndafórn sálar minnar?8Hann hefir sagt þér, maður, hvað gott sé! Og hvað heimtar Drottinn annað af þér en að gjöra rétt, ástunda kærleika og fram ganga í lítillæti fyrir Guði þínum?9Heyr, Drottinn kallar til borgarinnar, og það er viska að óttast nafn hans. Heyrið, kynstofn og saman kominn borgarlýður!10Á ég að láta sem ég sjái ekki, í húsi hins óguðlega, rangfengin auðæfi og svikinn mæli, sem bölvun er lýst yfir?11Á ég að láta honum óhegnt, þótt hann hafi ranga vog og svikna vogarsteina í sjóði sínum?12Ríkismenn hennar eru fullir af ofríki, íbúar hennar tala lygar og tungan fer með svik í munni þeirra.13Því tek ég og að ljósta þig, að eyða vegna synda þinna.14Þú skalt eta, en þó ekki saddur verða, heldur skal hungrið haldast við í þér. Þótt þú takir eitthvað frá, þá skalt þú eigi fá bjargað því, og það sem þú bjargar, skal ég ofurselja sverðinu.15Þótt þú sáir, skalt þú ekkert uppskera. Þótt þú troðir olífurnar, skalt þú eigi smyrja þig með olíu, og þótt þú fáir vínberjalöginn, skalt þú ekki vínið drekka.16Þú hefir haldið setningum Omrí og öllu athæfi Akabs húss, og þér hafið breytt eftir háttum þeirra, til þess að ég gjöri hana að auðn og láti íbúa hennar verða að spotti. Já, þér skuluð bera háð þjóðanna.

6.1-2 Kærumál Drottins Hós 2.4+; sbr Jes 5.3-4
6.4 Út úr Egyptalandi 3Mós 11.45; 1Sam 8.8; Jer 2.6; Hós 12.14; Am 2.10+ ; Slm 81.11 – þrælahúsið 2Mós 20.2+ – Móse og Aron 1Sam 12.6; Slm 77.21
6.5 Balak og Bíleam 4Mós 22-24; 5Mós 23.5; Jós 24.9; Neh 13.2; Opb 2.14 – frá Sittím til Gilgal Jós 3.1-4.24
6.7 Fórna frumburði 3Mós 18.21; 20.2-5; 1Kon 16.34; 2Kon 16.3; 21.6
6.8 Hvers væntir Drottinn? 1Sam 15.22; Jes 1.11-17; 58.1-12; Hós 6.6; 8.11-14; Jl 2.13; Am 5.21-24; Sak 7.4-6; Slm 40.7-9; 50.8-15; 51.18-19 – réttur Am 5.24+ – kærleikur Hós 2.21; 4.1 – þjóna Guði 1Mós 5.24
6.10-11 Svik Am 8.5+
6.12 Ofbeldi Mík 2.1-2; Jes 30.12; Esk 22.29; Am 3.10+; Slm 55.10; 73.6; Lúk 3.14
6.13 Refsa Jes 1.5-9
6.14 Verða ekki saddur Hós 4.10
6.15 Erfiða til einskis Am 5.11+