1Þaðan fór Jesús og kom í ættborg sína, og lærisveinar hans fylgdu honum.2Þegar hvíldardagur var kominn, tók hann að kenna í samkundunni, og þeir mörgu, sem á hlýddu, undruðust stórum. Þeir sögðu: Hvaðan kemur honum þetta? Hver er sú speki, sem honum er gefin, og þau kraftaverk, sem gjörast fyrir hendur hans?3Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu, bróðir þeirra Jakobs, Jóse, Júdasar og Símonar? Og eru ekki systur hans hér hjá oss? Og þeir hneyksluðust á honum.4Þá sagði Jesús: Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu, með frændum og heimamönnum.5Og hann gat ekki gjört þar neitt kraftaverk, nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá.6Og hann undraðist vantrú þeirra. Hann fór nú um þorpin þar í kring og kenndi.7Og hann kallaði þá tólf til sín, tók að senda þá út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum.8Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti.9Þeir skyldu hafa skó á fótum, en ekki tvo kyrtla.10Og hann sagði við þá: Hvar sem þér fáið inni, þar sé aðsetur yðar, uns þér leggið upp að nýju.11En hvar sem ekki er tekið við yður né á yður hlýtt, þaðan skuluð þér fara og hrista dustið af fótum yðar þeim til vitnisburðar.12Þeir lögðu af stað og prédikuðu, að menn skyldu gjöra iðrun,13ráku út marga illa anda og smurðu marga sjúka með olíu og læknuðu þá.14Heródes konungur frétti þetta, enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: Jóhannes skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna eru kraftarnir að verki í honum.15Aðrir sögðu: Hann er Elía, enn aðrir: Hann er spámaður eins og spámennirnir fornu.16Þegar Heródes heyrði þetta, sagði hann: Jóhannes, sem ég lét hálshöggva, hann er upp risinn.17En Heródes hafði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana,18en Jóhannes hafði sagt við Heródes: Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns.19Þess vegna lagði Heródías fæð á Jóhannes og vildi deyða hann, en gat ekki,20því að Heródes hafði beyg af honum og verndaði hann, þar eð hann vissi, að hann var maður réttlátur og heilagur. Hann komst í mikinn vanda, þegar hann hlýddi á mál hans, en þó var honum ljúft að hlusta á hann.21„En nú kom hentugur dagur; á afmæli sínu gjörði Heródes veislu gæðingum sínum, hershöfðingjum og fyrirmönnum Galíleu.“22Dóttir Heródíasar gekk þar inn og sté dans. Hún hreif Heródes og gesti hans, og konungur sagði við stúlkuna: Bið mig hvers þú vilt, og mun ég veita þér.23Og hann sór henni: Hvað sem þú biður um, það mun ég veita þér, allt að helmingi ríkis míns.24Hún gekk þá út og spurði móður sína: Um hvað á ég að biðja? Hún svaraði: Höfuð Jóhannesar skírara.25Jafnskjótt skundaði hún til konungs og bað hann: Gef mér þegar á fati höfuð Jóhannesar skírara.26Konungur varð hryggur við, en vegna eiðsins og gesta sinna vildi hann ekki synja henni þessa,27heldur sendi þegar varðmann og bauð að færa sér höfuð Jóhannesar. Hann fór og hjó af höfuð Jóhannesar í fangelsinu,28kom með höfuð hans á fati og færði stúlkunni, en stúlkan móður sinni.29Þegar lærisveinar hans fréttu þetta, komu þeir, tóku lík hans og lögðu í gröf.30Postularnir komu nú aftur til Jesú og sögðu honum frá öllu því, er þeir höfðu gjört og kennt.31Hann sagði við þá: Komið þér nú á óbyggðan stað, svo að vér séum einir saman, og hvílist um stund. En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara, svo að þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast.32Og þeir fóru á bátnum einir saman á óbyggðan stað.33Menn sáu þá fara, og margir þekktu þá, og nú streymdi fólk þangað gangandi úr öllum borgunum og varð á undan þeim.34Þegar Jesús steig á land, sá hann þar mikinn mannfjölda, og hann kenndi í brjósti um þá, því að þeir voru sem sauðir, er engan hirði hafa. Og hann kenndi þeim margt.35Þá er mjög var áliðið dags, komu lærisveinar hans að máli við hann og sögðu: Hér er engin mannabyggð og langt á daginn liðið.36Lát þá fara, að þeir geti náð til býla og þorpa hér í kring og keypt sér eitthvað til matar.37En hann svaraði þeim: Gefið þeim sjálfir að eta. Þeir svara honum: Eigum vér að fara og kaupa brauð fyrir tvö hundruð denara og gefa þeim að eta?38Jesús spyr þá: Hve mörg brauð hafið þér? Farið og gætið að. Þeir hugðu að og svöruðu: Fimm brauð og tvo fiska.39Þá bauð hann þeim að láta alla setjast í grængresið og skipta sér í hópa.40Þeir settust niður í flokkum, hundrað í sumum, en fimmtíu í öðrum.41Og hann tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. Fiskunum tveim skipti hann og meðal allra.42Og þeir neyttu allir og urðu mettir.43Þeir tóku saman brauðbitana, er fylltu tólf körfur, svo og fiskleifarnar.44En þeir, sem brauðanna neyttu, voru fimm þúsund karlmenn.45Tafarlaust knúði hann lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan yfir til Betsaídu, meðan hann sendi fólkið brott.46Og þá er hann hafði kvatt það, fór hann til fjalls að biðjast fyrir.47Þegar kvöld var komið, var báturinn á miðju vatni, en hann einn á landi.48Hann sá, að þeim var þungur róðurinn, því að vindur var á móti þeim, og er langt var liðið nætur kemur hann til þeirra, gangandi á vatninu, og ætlar fram hjá þeim.49Þegar þeir sáu hann ganga á vatninu, hugðu þeir, að þar færi vofa, og æptu upp yfir sig.50Því að allir sáu þeir hann og varð þeim bilt við. En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir.51Og hann sté í bátinn til þeirra og lægði þá vindinn. Og þeir urðu öldungis agndofa,52enda höfðu þeir ekki skilið það, sem gjörst hafði með brauðin, hjörtu þeirra voru blind.53Þegar þeir höfðu náð yfir um, komu þeir að landi við Genesaret og lögðu þar að.54Um leið og þeir stigu úr bátnum, þekktu menn hann.55Og fólk tók að streyma fram og aftur um allt það hérað og bera sjúklinga í burðarrekkjum hvert þangað, sem þeir heyrðu, að hann væri.56Og hvar sem hann kom í þorp, borgir eða á bæi, lögðu menn sjúka á torgin og báðu hann, að þeir fengju rétt að snerta fald klæða hans, og allir þeir, sem snertu hann, urðu heilir.

6.1-6a Hlst. Matt 13.53-58; Lúk 4.16-30
6.2 Undrun Mrk 1.22+ – hver er sú speki? Jóh 7.15
6.3 Sonur Maríu Jóh 6.42 – móðir og bræður Jesú Mrk 3.31+ – orsök hneykslunar Matt 5.29+
6.4 Spámaður í föðurlandi Lúk 4.24; Jóh 4.44
6.5 Lækning og trú Mrk 2.5+ – Jesús læknar Matt 14.14; Mrk 6.13 – lagði hendur yfir Matt 9.18+ ; Mrk 5.23+
66b-13 Hlst. Matt 10.1,5-15; Lúk 9.1-6
6.7 Tveir og tveir Lúk 10.1
6.8 Bauð þeim … Lúk 10.4
6.10 Aðsetur Lúk 10.7
6.11 Hrista dustið Lúk 10.11; Post 13.51 – til viðvörunar Matt 8.4; 10.18; Mrk 1.44; 13.9; Lúk 5.14
6.12 Taka sinnaskiptum Matt 3.2+
6.13 Smurning með olíu Jak 5.14 – lækningar Matt 14.14; Mrk 6.5
6.14-29 Hlst. Matt 14.1-12; Lúk 9.7-9
6.14 Heródes Matt 14.1+
6.14-15 Hvern menn töldu Jesú vera Matt 16.14 og hlst.
6.15 Elía Matt 11.14+ ; Mrk 9.4 – Jesús talinn spámaður Matt 16.14+ ; sbr Matt 21.11
6.18 Óleyfilegt 3Mós 18.16
6.23 Hvað sem þú biður um Est 5.3,6; 7.2
6.29 Lögðu í gröf Matt 27.59-60; Lúk 23.52-53; Jóh 19.38,41
6.30-44 Hlst Matt 14.13-22; Lúk 9.10-17; Jóh 6.1-14
6.30 Postularnir Matt 10.2+ ; Lúk 6.13; sbr Mrk 3.13-14 – koma aftur Lúk 10.17
6.31 Ekki næði að matast Mrk 3.20
6.32 Mettun í óbyggðum 2Mós 16; 5Mós 8.3,16; Slm 78.24-25,29; 105.40; SSal 16.20-26; 1Kor 10.3
6.34 Kenndi í brjósti um þá Matt 9.36+ ; Mrk 8.2 – sauðir án hirðis Matt 9.36+ ; Sak 10.2; Júdt 11.19 – hirðir Ísraels 4Mós 27.15-17; Esk 34.15,23; 37.24; Slm 23.1; 77.21; 78.52-53,70-72; 80.1
6.35-44 Jesús mettar Matt 15.32-38; Mrk 8.1-9
6.37 Lærisveinum sagt til verka Mrk 3.14-15; 6.7,12-13,30
6.40 Í flokkum 2Mós 18.21,25; 4Mós 31.14; 5Mós 1.15
6.42 Mettunin Jes 25.6-8; 55.1-2; sbr Matt 8.11; 22.1-4
6.45-52 Hlst. Matt 14.22-23; Jóh 6.15-21
6.46 Jesús biðst fyrir Mrk 1.35; Lúk 3.21+ ; sbr Matt 14.23+ ; Jóh 6.15 – til fjalls Mrk 3.13; 6.46; 9.2
6.48 Gangandi á vatninu Job 9.8; Slm 77.20; sbr Mrk 4.41
6.49 Vofa Lúk 24.37
6.50 Það er ég 2Mós 3.14; 5Mós 32.39; Jes 41.4; 43.10,13; sbr Jóh 8.24,28,58 – verið óhræddir Mrk 16.6+
6.51 Vindinn lægði Mrk 4.39
6.52 Blind hjörtu Mrk 3.5+ ; sbr Mrk 4.13; 8.17
6.53-56 Hlst. Matt 14.34-36
6.55 Sjúkir bornir til Jesú Mrk 1.32+ ; sbr 3.8+
6.56 Faldur Matt 9.20 og hlst.+