1Drottinn talaði við Móse og sagði:2Sjá, ég hefi kvatt til Besalel Úríson, Húrssonar, af Júda ættkvísl.3Ég hefi fyllt hann Guðs anda, bæði vísdómi, skilningi, kunnáttu og hvers konar hagleik,4til þess að upphugsa listaverk og smíða úr gulli, silfri og eiri5og skera steina til greypingar og til tréskurðar, til þess að vinna að hvers konar smíði.6Og sjá, ég hefi fengið honum til aðstoðar Oholíab Akísamaksson af Dans ættkvísl. Og öllum hugvitsmönnum hefi ég gefið vísdóm, að þeir megi gjöra allt það, sem ég hefi fyrir þig lagt:7samfundatjaldið, sáttmálsörkina, lokið, sem er yfir henni, og öll áhöld tjaldsins,8borðið og áhöld þess, gull-ljósastikuna og öll áhöld hennar og reykelsisaltarið,9brennifórnaraltarið og öll áhöld þess, kerið og stétt þess,10glitklæðin, hin helgu klæði Arons prests og prestsþjónustuklæði sona hans,11smurningarolíuna og ilmreykelsið til helgidómsins. Allt skulu þeir gjöra eins og ég hefi fyrir þig lagt.12Drottinn talaði við Móse og sagði:13Tala þú til Ísraelsmanna og seg: Sannlega skuluð þér halda mína hvíldardaga, því að það er teikn milli mín og yðar frá kyni til kyns, svo að þér vitið, að ég er Drottinn, sá er yður helgar.14Haldið því hvíldardaginn, því að hann skal vera yður heilagur. Hver sem vanhelgar hann, skal vissulega líflátinn verða, því að hver sem þá vinnur nokkurt verk, sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni.15Sex daga skal verk vinna, en sjöundi dagurinn er algjör hvíldardagur, helgaður Drottni. Hver sem verk vinnur á hvíldardegi, skal vissulega líflátinn verða.16Fyrir því skulu Ísraelsmenn gæta hvíldardagsins, svo að þeir haldi hvíldardaginn heilagan frá kyni til kyns sem ævinlegan sáttmála.17Ævinlega skal hann vera teikn milli mín og Ísraelsmanna, því að á sex dögum gjörði Drottinn himin og jörð, en sjöunda daginn hvíldist hann og endurnærðist.18Þegar Drottinn hafði lokið viðræðunum við Móse á Sínaífjalli, fékk hann honum tvær sáttmálstöflur, steintöflur, ritaðar með fingri Guðs.

31.2,6 Besalel og Oholíab 2Mós 35.30-36.7; sbr 1Kon 7.13-14
31.13 Halda hvíldardaga 2Mós 35.1-3; sbr 2Mós 20.8-11
31.15 Hvíldardagurinn vanhelgaður 4Mós 15.32-36; Matt 12.1+
31.18 Tvær sáttmálstöflur 2Mós 24.12+