1Ég elska Drottin, af því að hann heyrir grátbeiðni mína.2Hann hefir hneigt eyra sitt að mér, og alla ævi vil ég ákalla hann.3Snörur dauðans umkringdu mig, angist Heljar mætti mér, ég mætti nauðum og harmi.4Þá ákallaði ég nafn Drottins: Ó, Drottinn, bjarga sál minni!5Náðugur er Drottinn og réttlátur, og vor Guð er miskunnsamur.6Drottinn varðveitir varnarlausa, þegar ég var máttvana hjálpaði hann mér.7Verð þú aftur róleg, sála mín, því að Drottinn gjörir vel til þín.8Já, þú hreifst sál mína frá dauða, auga mitt frá gráti, fót minn frá hrösun.9Ég geng frammi fyrir Drottni á landi lifenda.10Ég trúði, þó ég segði: Ég er mjög beygður.11Ég sagði í angist minni: Allir menn ljúga.12Hvað á ég að gjalda Drottni fyrir allar velgjörðir hans við mig?13Ég lyfti upp bikar hjálpræðisins og ákalla nafn Drottins.14Ég greiði Drottni heit mín, og það í augsýn alls lýðs hans.15Dýr er í augum Drottins dauði dýrkenda hans.16Æ, Drottinn, víst er ég þjónn þinn, ég er þjónn þinn, sonur ambáttar þinnar, þú leystir fjötra mína.17Þér færi ég þakkarfórn og ákalla nafn Drottins.18Ég greiði Drottni heit mín, og það í augsýn alls lýðs hans,19í forgörðum húss Drottins, í þér, Jerúsalem. Halelúja.

116.1 Ég elska Drottinn Slm 18.2 – heyrir grátbeiðni Slm 28.2; 66.19
116.2 Guð hneigir eyra sitt Slm 102.3
116.3 Snörur dauðans Slm 18.5 – mæta nauðum og harmi Slm 31.11
116.4 Ákalla nafn Drottins Slm 118.5 – bjarga lífi mínu Slm 16.5; 22.6
116.5 Náðugur og réttlátur 2Mós 34.6+ ; Slm 112.4; 145.17 – miskunnsamur Slm 103.13
116.6 Í nauðum Slm 142.7
116.7 Drottinn gerir vel Slm 13.6
116.8 Bjarga frá dauða Slm 16.10; 49.16; 86.13; VDan 3.66; Post 2.24; sbr Heb 5.7 – tárum Jes 25.8; Opb 21.4 – frá hrösun Slm 56.14
116.11 Í angist Slm 31.2 – allir menn ljúga Slm 12.3; 62.10; Róm 3.4
116.13 Bikar hjálpræðisins 1Kor 10.16
116.14 Greiða heit Slm 116.18; 50.14; 56.13; Jón 2.10
116.15 Dýr er … Slm 72.14
116.16 Þjónn þinn Slm 119.125; 143.12 – leysir fjötra Jer 30.8
116.17 Þakkarfórn Slm 107.22; sbr 3Mós 7.12
116.19 Hallelúja Slm 104.34+