1Eins og því Kristur leið líkamlega, svo skuluð þér og herklæðast sama hugarfari. Sá sem hefur liðið líkamlega, er skilinn við synd,2hann lifir ekki framar í mannlegum fýsnum, heldur lifir hann tímann, sem eftir er, að vilja Guðs.3Nógu lengi hafið þér gjört vilja heiðingjanna og lifað í saurlifnaði, girndum, ofdrykkju, óhófi, samdrykkjum og svívirðilegri skurðgoðadýrkun.4„Nú furðar þá, að þér hlaupið ekki með þeim út í hið sama spillingardíki; og þeir hallmæla yður.“5En þeir munu verða að gjöra reikningsskil þeim, sem reiðubúinn er að dæma lifendur og dauða.6Því að til þess var og dauðum boðað fagnaðarerindið, að þeir, þótt dæmdir væru líkamlega með mönnum, mættu lifa í andanum með Guði.7En endir allra hluta er í nánd. Verið því gætnir og algáðir til bæna.8Umfram allt hafið brennandi kærleika hver til annars, því að kærleikur hylur fjölda synda.9Verið gestrisnir hver við annan án möglunar.10Þjónið hver öðrum með þeirri náðargáfu, sem yður hefur verið gefin, sem góðir ráðsmenn margvíslegrar náðar Guðs.11Sá sem talar flytji Guðs orð, sá sem þjónustu hefur skal þjóna eftir þeim mætti, sem Guð gefur, til þess að Guð vegsamist í öllum hlutum fyrir Jesú Krist. Hans er dýrðin og mátturinn um aldir alda. Amen.12Þér elskaðir, látið yður eigi undra eldraunina, sem yfir yður er komin yður til reynslu, eins og yður hendi eitthvað kynlegt.13Gleðjist heldur er þér takið þátt í píslum Krists, til þess að þér einnig megið gleðjast miklum fögnuði við opinberun dýrðar hans.14Sælir eruð þér, er þér eruð smánaðir vegna nafns Krists, því að andi dýrðarinnar, andi Guðs hvílir þá yfir yður.15Enginn yðar líði sem manndrápari, þjófur eða illvirki eða fyrir að hlutast til um það, er öðrum kemur við.16En ef hann líður sem kristinn maður, þá fyrirverði hann sig ekki, heldur gjöri Guð vegsamlegan með þessu nafni.17Því að nú er tíminn kominn, að dómurinn byrji á húsi Guðs. En ef hann byrjar á oss, hver munu þá verða afdrif þeirra, sem ekki hlýðnast fagnaðarerindi Guðs?18Ef hinn réttláti naumlega frelsast, hvar mun þá hinn óguðlegi og syndarinn lenda?19Þess vegna skulu þeir, sem líða eftir vilja Guðs, fela sálir sínar á hendur hinum trúa skapara og halda áfram að gjöra hið góða.

4.1 Búast sama hugarfari Róm 6.2,7
4.3 Nógu lengi Ef 2.2-3; Tít 3.3 – lestir Róm 1.29-31
4.4 Sama spillingardíki Lúk 15.13
4.5 Dómari lifenda og dauðra 2Tím 4.1+
4.6 Dauðum boðað fagnaðarerindið sbr 1Pét 3.18-19; 1Þess 4.13-18
4.7 Endir í nánd Róm 13.11-12; 1Jóh 2.18
4.8 Kærleikurinn hylur … Okv 10.12; Jak 5.20; Lúk 7.47; sbr Matt 5.7; 1Kor 13.7
4.9 Gestrisin Heb 13.2
4.10 Sérhverju er gefið Róm 12.6-8 – góðir ráðsmenn Matt 25.14-30 og hlst.; Lúk 12.42-48 og hlst.
4.11 Þjónusta Post 6.2-4; Róm 12.7; 1Tím 3.8 – Guð vegsamist í öllu 1Kor 10.31
4.12 Þið elskuðu 1Pét 2.11 – eldraun 1Pét 1.7
4.13 Gleðjist í píslum Krists Matt 5.11-12; Post 5.41
4.14 Smánuð vegna nafns Krists sbr Slm 89.51-52; 1Pét 2.20 – andi Guðs hvílir yfir ykkur Jes 11.2; sbr Matt 10.20 og hlst.
4.16 Kristinn Post 11.26+ – fyrirverða sig ekki Mrk 8.38 og hlst.; Post 5.41; sbr Róm 1.16
4.17 Dómurinn byrjar á húsi Guðs Jer 25.29; Esk 9.6 – þau sem ekki hlýðnast 2Þess 1.8
4.18 Ef hinn réttláti … Okv 11.31
4.19 Fela sig skaparanum Slm 31.6; Lúk 23.46