1Júdas, þjónn Jesú Krists, bróðir Jakobs, heilsar hinum kölluðu, sem eru elskaðir af Guði föður og varðveittir Jesú Kristi.2Miskunn, friður og kærleiki margfaldist yður til handa.3Þér elskaðir, mér var það ríkt í huga að rita yður um sameiginlegt hjálpræði vort. En nú kemst ég ekki hjá því að skrifa og hvetja yður til að berjast fyrir þeirri trú, sem heilögum hefur í eitt skipti fyrir öll verið í hendur seld.4Því að inn hafa læðst nokkrir menn, sem fyrir löngu var ritað um að þessi dómur biði þeirra. Þeir eru óguðlegir menn, sem misnota náð Guðs vors til taumleysis og afneita vorum einasta lávarði og Drottni, Jesú Kristi.5Ég vil minna yður á, þótt þér nú einu sinni vitið það allt, að Drottinn frelsaði lýðinn úr Egyptalandi, en tortímdi samt síðar þeim, sem ekki trúðu.6Og englana, sem ekki gættu tignar sinnar, heldur yfirgáfu eigin bústað, hefur hann í myrkri geymt í ævarandi fjötrum til dóms hins mikla dags.7Eins og Sódóma og Gómorra og borgirnar umhverfis þær, sem drýgt höfðu saurlifnað á líkan hátt og þeir og stunduðu óleyfilegar lystisemdir, þær liggja fyrir sem dæmi, líðandi hegningu eilífs elds.8Á sama hátt saurga og þessir draumvilltu menn líkamann, meta að engu drottinvald og lastmæla tignum.9Eigi dirfðist einu sinni höfuðengillinn Míkael að leggja lastmælisdóm á djöfulinn, er hann átti í orðadeilu við hann um líkama Móse, heldur sagði: Drottinn refsi þér!10En þessir menn lastmæla öllu því, sem þeir þekkja ekki, en spilla sér á því sem þeir skilja af eðlisávísun eins og skynlausar skepnur.11Vei þeim, því að þeir hafa gengið á vegi Kains og hrapað í villu Bíleams fyrir ávinnings sakir og tortímst í þverúð Kóra.12Þessir menn eru blindsker við kærleiksmáltíðir yðar, er þeir sitja að veislum með yður og háma í sig blygðunarlaust. Þeir eru vatnslaus ský, sem rekast fyrir vindum, tré, sem bera ekki ávöxt að hausti, tvisvar dauð og rifin upp með rótum.13Þeir eru ofsalegar hafsbylgjur, sem freyða eigin skömmum, reikandi stjörnur, sem eiga dýpsta myrkur í vændum til eilífðar.14Um þessa menn spáði líka Enok, sjöundi maður frá Adam, er hann segir: Sjá, Drottinn er kominn með sínum þúsundum heilagra15til að halda dóm yfir öllum og til að sanna alla óguðlega menn seka um öll þau óguðlegu verk, sem þeir hafa drýgt, og um öll þau hörðu orð, sem óguðlegir syndarar hafa talað gegn honum.16Þessir menn eru möglarar, umkvörtunarsamir og lifa eftir girndum sínum. Munnur þeirra mælir ofstopaorð og þeir meta menn eftir hagnaði.17En, þér elskaðir, minnist þeirra orða, sem áður hafa töluð verið af postulum Drottins vors Jesú Krists.18Þeir sögðu við yður: Á síðasta tíma munu koma spottarar, sem stjórnast af sínum eigin óguðlegu girndum.19Þessir menn eru þeir, sem valda sundrungu, holdlegir menn, sem eigi hafa andann.20En þér, elskaðir, byggið yður sjálfa upp í yðar helgustu trú. Biðjið í heilögum anda.21Varðveitið sjálfa yður í kærleika Guðs, og bíðið eftir náð Drottins vors Jesú Krists til eilífs lífs.22Verið mildir við suma, þá sem eru efablandnir,23suma skuluð þér frelsa, með því að hrífa þá út úr eldinum. Og suma skuluð þér vera mildir við með ótta, og hatið jafnvel kyrtilinn, sem flekkaður er af holdinu.24En honum, sem megnar að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína, lýtalausa í fögnuði,25einum Guði, sem frelsar oss fyrir Jesú Krist, Drottin vorn, sé dýrð, hátign, máttur og vald fyrir allar aldir, nú og um allar aldir. Amen.

1 Jakob Post 15.13+
2 Miskunn og friður margfaldist 2Pét 1.2
3 Berjist fyrir trúnni 1Tím 1.18 – hin heilögu Róm 1.7
4 Laumast inn Gal 2.4 – ritað fyrir um löngu Slm 69.29; 139.16; sbr Dan 7.10 – afneita lávarði okkar 2Pét 2.1
5 Þótt þér vitið allt 1Jóh 2.20 – minna á 2Pét 1.12 – frelsaði lýðinn úr Egyptalandi 2Mós 12.51 – tortímdi þeim sem trúðu ekki 4Mós 14.29-30,35; 1Kor 10.5
6 Fallnir englar 2Pét 2.4 – geymdir til dóms 2Pét 2.9
7 Sódóma og Gómorra 1Mós 19.4-25; 2Pét 2.6; sbr Matt 10.15+
8 Meta að engu drottinvald 2Pét 2.10
9 Míkael höfuðengill Dan 10.13,21; 12.1; Opb 12.7 – saka um guðlast 2Pét 2.11 – Drottinn refsi þér Sak 3.2
10 Lastmæla því, sem þeir þekkja ekki 2Pét 2.12
11 Kain 1Mós 4.3-8; 1Jóh 3.12 – Bíleam 4Mós 22.5; 31.16; 2Pét 2.15; Opb 2.14 – uppreisn Kóra 4Mós 16.19-35
12 Smánarblettir á kærleiksmáltíðum ykkar 2Pét 2.13 – háma í sig blygðunarlaust Esk 34.8; sbr 1Kor 11.21 – rekast fyrir vindum Ef 4.14
13 Hafsbylgjur Jes 57.20 – dýpsta myrkur 2Pét 2.17
14 Enok sjöundi maður frá Adam 1Mós 5.3-18; 1Kro 1.1-3; Lúk 3.37-38
16 Ofstopaorð Dan 11.36
17 Boðskapur postulanna 2Pét 3.2
18 Á síðasta tíma 2Pét 3.3
19 Bundnir við þennan heim sbr 1Kor 2.14; Jak 3.15
20 Byggið ykkur upp 1Þess 5.11 – í trú ykkar Kól 2.7
23 Út úr eldinum Am 4.11; Sak 3.2
24 Lýtalaus Fil 1.10; 1Þess 5.23
25 Guð frelsar 1Tím 1.1+ – einum Guði sé dýrð Róm 16.2