1Á þriðja mánuði eftir brottför Ísraelsmanna frá Egyptalandi, á þeim degi komu þeir í Sínaí-eyðimörk.2Þeir tóku sig upp frá Refídím og komu í Sínaí-eyðimörk og settu búðir sínar í eyðimörkinni. Og Ísrael setti búðir sínar þar gegnt fjallinu.3Gekk Móse þá upp til Guðs, og kallaði Drottinn til hans af fjallinu og sagði: Svo skalt þú segja Jakobs niðjum og kunngjöra Ísraelsmönnum:4Þér hafið sjálfir séð, hvað ég hefi gjört Egyptum, og hversu ég hefi borið yður á arnarvængjum og flutt yður til mín.5Nú ef þér hlýðið minni röddu grandgæfilega og haldið minn sáttmála, þá skuluð þér vera mín eiginleg eign umfram allar þjóðir, því að öll jörðin er mín.6Og þér skuluð vera mér prestaríki og heilagur lýður. Þetta eru þau orð, sem þú skalt flytja Ísraelsmönnum.7Og Móse fór og stefndi saman öldungum lýðsins og flutti þeim öll þau orð, er Drottinn hafði boðið honum.8Þá svaraði allur lýðurinn einum munni og sagði: Vér viljum gjöra allt það, sem Drottinn býður. Og Móse flutti Drottni aftur orð fólksins.9Þá sagði Drottinn við Móse: Sjá, ég vil koma til þín í dimmu skýi, svo að fólkið heyri, er ég tala við þig, og trúi þér ævinlega. Og Móse flutti Drottni orð lýðsins.10Þá mælti Drottinn við Móse: Far til fólksins og helga þá í dag og á morgun, og lát þá þvo klæði sín,11og skulu þeir vera búnir á þriðja degi, því að á þriðja degi mun Drottinn ofan stíga á Sínaífjall í augsýn alls lýðsins.12En þú skalt marka fólkinu svið umhverfis og segja: Varist að ganga upp á fjallið eða snerta fjallsræturnar. Hver sem snertir fjallið, skal vissulega láta líf sitt.13Engin mannshönd skal snerta hann, heldur skal hann grýttur eða skotinn til bana, hvort það er heldur skepna eða maður, þá skal það ekki lífi halda. Þegar lúðurinn kveður við, skulu þeir stíga upp á fjallið.14Þá gekk Móse ofan af fjallinu til fólksins og helgaði fólkið, og þeir þvoðu klæði sín.15Og hann sagði við fólkið: Verið búnir á þriðja degi: Komið ekki nærri nokkurri konu.16Á þriðja degi, þegar ljóst var orðið, gengu reiðarþrumur og eldingar, og þykkt ský lá á fjallinu, og heyrðist mjög sterkur lúðurþytur. Skelfdist þá allt fólkið, sem var í búðunum.17Þá leiddi Móse fólkið út úr búðunum til móts við Guð, og tóku menn sér stöðu undir fjallinu.18Sínaífjall var allt í einum reyk, fyrir því að Drottinn sté niður á það í eldinum. Mökkurinn stóð upp af því, eins og reykur úr ofni, og allt fjallið lék á reiðiskjálfi.19Og lúðurþyturinn varð æ sterkari og sterkari. Móse talaði, og Guð svaraði honum hárri röddu.20Og Drottinn sté niður á Sínaífjall, á fjallstindinn. Og Drottinn kallaði Móse upp á fjallstindinn, og gekk Móse þá upp.21Þá sagði Drottinn við Móse: Stíg ofan og legg ríkt á við fólkið, að það brjótist ekki upp hingað til Drottins fyrir forvitni sakir og fjöldi af þeim farist.22Einnig prestarnir, sem annars nálgast Drottin, skulu helga sig, svo að Drottinn gjöri eigi skarð í hóp þeirra.23En Móse sagði við Drottin: Fólkið getur ekki stigið upp á Sínaífjall, því að þú hefir lagt ríkt á við oss og sagt: Set vébönd umhverfis fjallið og helga það.24Og Drottinn sagði við hann: Far nú og stíg ofan, og kom því næst upp aftur og Aron með þér. En prestarnir og fólkið má ekki brjótast upp hingað til Drottins, að hann gjöri ekki skarð í hóp þeirra.25Móse gekk þá ofan til fólksins og sagði þeim þetta.

19.1 Sinaíeyðimörk 4Mós 33.15
19.4 Þið hafið séð 5Mós 29.2-3 – á arnarvængjum 5Mós 32.11; Jes 46.4; 63.9
19.5 Mín eign Tít 2.14 – jörðin er Guðs 2Mós 9.29+
19.6 Konungsríki presta 1Pét 2.9; Opb 1.6; 5.10; 20.6
19.8 Við skulum gera allt … Jós 24.16-24
19.9 Skýið 2Mós 13.21+ – teysti Móse sbr 2Mós 4.1+
19.10 Helga 1Mós 35.2
19.12 Snertið ekki 2Mós 34.3; Heb 12.20
19.15 Ekki nálægt konu 1Sam 21.5
19.16 Þrumur og eldingar 5Mós 4.10-12; Slm 29; 50.3; 77.19; Opb 4.5