1Son minn, varðveit þú orð mín og geym þú hjá þér boðorð mín.2Varðveit þú boðorð mín, og þá munt þú lifa, og áminning mína eins og sjáaldur auga þíns.3Bind þau á fingur þína, skrifa þau á spjald hjarta þíns.4Seg við spekina: Þú ert systir mín! og kallaðu skynsemina vinkonu,5svo að þær varðveiti þig fyrir léttúðarkonu, fyrir blíðmálugri konu sem annar á.6Út um gluggann á húsi mínu, út um grindurnar skimaði ég7og sá þar meðal sveinanna ungan og vitstola mann.8Hann gekk á strætinu nálægt horni einu og fetaði leiðina að húsi hennar,9í rökkrinu, að kveldi dags, um miðja nótt og í niðdimmu.10Gekk þá kona í móti honum, búin sem portkona og undirförul í hjarta11hávær er hún og óhemjuleg, fætur hennar tolla aldrei heima,12hún er ýmist á götunum eða á torgunum, og situr um menn hjá hverju horni,13hún þrífur í hann og kyssir hann og segir við hann, ósvífin í bragði:14Ég átti að greiða heillafórn, í dag hefi ég goldið heit mitt.15Fyrir því fór ég út til móts við þig, til þess að leita þín, og hefi nú fundið þig.16Ég hefi búið rúm mitt ábreiðum, marglitum ábreiðum úr egypsku líni.17Myrru, alóe og kanel hefi ég stökkt á hvílu mína.18Kom þú, við skulum drekka okkur ástdrukkin fram á morgun, gamna okkur með blíðuhótum.19Því að maðurinn minn er ekki heima, hann er farinn í langferð.20Peningapyngjuna tók hann með sér, hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfylling.21Hún tældi hann með sínum áköfu fortölum, ginnti hann með kjassmælum sínum.22Hann fer rakleiðis á eftir henni, eins og naut gengur fram á blóðvöllinn, og eins og hjörtur, sem anar í netið,23uns örin fer í gegnum lifur hans, eins og fuglinn hraðar sér í snöruna, og veit ekki, að líf hans er í veði.24Og nú, þér yngismenn, hlýðið á mig og gefið gaum að orðum munns míns.25Lát eigi hjarta þitt teygjast á vegu hennar, villst eigi inn á stigu hennar.26Því að margir eru þeir, sem hún hefir sært til ólífis, og mesti grúi allir þeir, sem hún hefir myrt.27Hús hennar er helvegur, er liggur niður til heimkynna dauðans.

7.22-23 Kona annars Okv 5.3-5+