1Þá er Davíð var gamall orðinn og saddur lífdaga, gjörði hann Salómon son sinn að konungi yfir Ísrael.2Og hann stefndi saman öllum höfðingjum Ísraels, prestunum og levítunum.3Levítarnir voru taldir, þrítugir og þaðan af eldri, og höfðatala þeirra var þrjátíu og átta þúsund karlmenn.4Af þeim skulu tuttugu og fjögur þúsund vera fyrir verkum við hús Drottins, sex þúsund skulu vera embættismenn og dómarar,5fjögur þúsund hliðverðir, og fjögur þúsund skulu lofa Drottin með áhöldum þeim, er ég hefi látið gjöra til þess að vegsama með, sagði Davíð.6Davíð skipti þeim í flokka eftir þeim Gerson, Kahat og Merarí, Levísonum.7Til Gersonsniðja töldust Laedan og Símeí.8Synir Laedans voru: Jehíel, er var fyrir þeim, Setam og Jóel, þrír alls.9Synir Símeí voru: Selómít, Hasíel og Haran, þrír alls. Voru þeir ætthöfðingjar Laedansættar.10Og synir Símeí: Jahat, Sína, Jeús og Bería. Þessir voru synir Símeí, fjórir alls.11Var Jahat fyrir þeim, þá Sína, en Jeús og Bería áttu eigi margt barna, svo að þeir töldust ein ætt, einn flokkur.12Synir Kahats: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel, fjórir alls.13Synir Amrams: Aron og Móse. En Aron var greindur frá hinum, til þess að hann skyldi verða vígður sem háheilagur ásamt sonum sínum, um aldur og ævi, til þess að þeir skyldu brenna reykelsi frammi fyrir Drottni, þjóna honum og lofa nafn hans um aldur og ævi.14Og að því er snertir guðsmanninn Móse, þá voru synir hans taldir til Levíkynkvíslar.15Synir Móse voru Gersóm og Elíeser.16Sonur Gersóms: Sebúel höfðingi.17En sonur Elíesers var Rehabja höfðingi. Aðra sonu átti Elíeser eigi, en synir Rehabja voru afar margir.18Sonur Jísehars: Selómít höfðingi.19Synir Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasíel, fjórði Jekameam.20Synir Ússíels: Míka höfðingi, annar Jissía.21Synir Merarí: Mahlí og Músí. Synir Mahlí: Eleasar og Kís.22En Eleasar dó svo, að hann átti enga sonu, heldur dætur einar, og tóku þeir Kíssynir, frændur þeirra, þær sér að konum.23Synir Músí voru: Mahlí, Eder og Jeremót, þrír alls.24Þessir eru þeir Levíniðjar eftir ættum þeirra, ætthöfðingjar þeir, er taldir voru af þeim, eftir nafnatölu og höfða, er höfðu það starf á hendi að þjóna í musteri Drottins, tvítugir og þaðan af eldri.25Davíð mælti: Drottinn, Guð Ísraels, hefir veitt lýð sínum hvíld, og býr nú að eilífu í Jerúsalem.26Levítarnir þurfa því ekki lengur að bera búðina og öll þau áhöld, er að starfi hennar lúta.27Því að eftir síðustu fyrirmælum Davíðs voru levítar taldir, tvítugir og þaðan af eldri .28Embætti þeirra er að aðstoða Aronsniðja, gegna þjónustu við musteri Drottins, hafa umsjón með forgörðunum og klefunum og ræstingu á öllum hinum helgu munum, og gegna störfunum við hús Guðs,29annast um raðsettu brauðin, hveitimjölið í matfórnirnar, hin ósýrðu flatbrauð, pönnuna og hið samanhrærða, og hvers konar mæli og stiku,30og að koma fram á hverjum morgni til þess að lofa og vegsama Drottin, og eins á kveldin,31og að færa Drottni hverja brennifórn á hvíldardögum, tunglkomudögum og löghátíðum, allar þær, sem ákveðið er að stöðugt skuli færa Drottni.32Hafa þeir störf á hendi við samfundatjaldið og störf við helgidóminn og störf hjá Aronsniðjum, frændum sínum, við þjónustuna í musteri Drottins.

23.1 Davíð gamall orðinn 1Kon 1.1 – Salómon konungur 1Kon 1.30
23.3 Þrjátíu ára 4Mós 4.3+
23.24 Tuttugu ára 1Kro 23.3; 4Mós 4.3+
23.28-32 Embætti levíta 4Mós 1.50-53; 3.6-9; 4