1Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði:2Vinnur maðurinn Guði gagn? Nei, sjálfum sér vinnur vitur maður gagn.3Er það ábati fyrir hinn Almáttka, að þú ert réttlátur, eða ávinningur, að þú lifir grandvöru lífi?4Er það vegna guðsótta þíns, að hann refsar þér, að hann dregur þig fyrir dóm?5Er ekki vonska þín mikil og misgjörðir þínar óþrjótandi?6Því að þú tókst veð af bræðrum þínum að ástæðulausu og færðir fáklædda menn úr flíkum þeirra.7Þú gafst ekki hinum örmagna vatn að drekka, og hinum hungraða synjaðir þú brauðs.8En hinn voldugi átti landið, og virðingarmaðurinn bjó í því.9Ekkjur lést þú fara burt tómhentar, og armleggir munaðarleysingjanna voru brotnir sundur.10Fyrir því eru snörur allt í kringum þig, og fyrir því skelfir ótti þig skyndilega!11Eða sér þú ekki myrkrið og vatnaflauminn, sem hylur þig?12Er ekki Guð himinhár? og lít þú á hvirfil stjarnanna, hve hátt þær gnæfa!13Og þú segir: Hvað veit Guð? Getur hann dæmt gegnum skýsortann?14Skýin skyggja á hann, svo að hann sér ekki, og hann gengur á himinhvelfingunni.15Ætlar þú að halda fortíðar leið, þá er ranglátir menn hafa farið?16Þeir er kippt var burt fyrir tímann og grundvöllur þeirra skolaðist burt sem straumur,17þeir er sögðu við Guð: Vík frá oss! og hvað gæti hinn Almáttki gjört fyrir oss?18og það þó hann fyllti hús þeirra blessun. Hugarfar óguðlegra sé fjarri mér!19Hinir réttlátu sjá það og gleðjast, og hinn saklausi gjörir gys að þeim:20Vissulega er andstæðingur vor að engu orðinn, og eldurinn hefir eytt leifum þeirra.21Vingast þú við Guð, þá muntu vera í friði, við það mun blessun yfir þig koma.22Tak á móti kenning af munni hans, og fest þér orð hans í hjarta.23Ef þú snýr þér til hins Almáttka, auðmýkir þig, ef þú rekur ranglætið langt burt frá tjaldi þínu24já, varpaðu gullinu í duftið og skíragullinu ofan í lækjamölina!25þá skal hinn Almáttki vera gull þitt, vera þér hið skærasta silfur.26Já, þá munt þú hafa yndi af hinum Almáttka og lyfta augliti þínu til Guðs.27Biðjir þú til hans, bænheyrir hann þig, og heit þín munt þú greiða.28Og áformir þú eitthvað, mun þér heppnast það, og birta skína yfir vegu þína.29Þegar þeir liggja niður á við, þá kallar þú Upp á við! og hinum auðmjúka hjálpar hann.30Hann bjargar jafnvel þeim, sem ekki er saklaus, já, hann bjargast fyrir hreinleik handa þinna.

22.3 Ávinningur Job 35.7; Lúk 17.9-10; sbr Job 19.4
22.4 Fyrir dóm Job 9.3+
22.6-9 Kúgun sbr Job 31.16-22; Matt 25.34-36
22.6 Veðsetja 2Mós 22.25-26; 5Mós 24.10-13; Esk 18.12
22.7 Synja brauðs og vatns Matt 25.42-43; sbr Jes 58.7
22.8 Auðgast með rangindum sbr Job 29.17
22.9 Ekkjur og munaðarleysingjar Job 24.3-11; sbr 29.12-13; 5Mós 15.7-11
22.10 Snörur Job 18.8+ – skelfing Job 6.4+
22.12 Himinhár Jes 40.22; Préd 5.1
22.13 Hvað veit Guð? Jes 29.15; Slm 73.11
22.15 Stígur illmenna 1Mós 6.5,12-13
22.17 Farðu frá okkur Job 21.14+
22.18 Gæði Hós 2.10
22.19 Réttlátir sáu Slm 52.8; 107.42; Opb 18.20
22.21 Náðu sáttum við Guð, lifðu í friði Jes 27.5; Róm 5.10+
22.23 Snúa sér 5Mós 30.2-10; 1Kon 8.46-51; Jes 44.22
22.24 Varpa gullinu í duftið Matt 6.19-21; 19.21
22.25 Guð er þér gull Slm 16.5-6; Hlj 3.24; sbr Job 31.24
22.26 Gleðjast yfir Guði Job 27.10; Jes 58.14 – hefja auglit þitt Job 11.15
22.27 Standa við heit sín Nah 2.1; Slm 66.13; Préd 5.3-4
22.29 Guð hjálpar auðmjúkum Jes 57.15; Slm 18.28
22.30 Bjargast vegna … Job 42.8; sbr Esk 14.12-20