1Því næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest, þar sem hann stóð frammi fyrir engli Drottins og Satan honum til hægri handar til þess að ákæra hann.2En Drottinn mælti til Satans: Drottinn ávíti þig, Satan! Drottinn, sem útvalið hefir Jerúsalem, ávíti þig! Er ekki þessi eins og brandur úr báli dreginn?3Jósúa var í óhreinum klæðum, þar er hann stóð frammi fyrir englinum.4Þá tók engillinn til máls og mælti til þeirra, er stóðu frammi fyrir honum: Færið hann úr hinum óhreinu klæðum! Síðan sagði hann við hann: Sjá, ég hefi burt numið misgjörð þína frá þér og læt nú færa þig í skrúðklæði.5Enn fremur sagði hann: Látið hreinan ennidúk um höfuð hans! Þá létu þeir hreinan ennidúk um höfuð hans og færðu hann í klæðin, en engill Drottins stóð hjá.6Og engill Drottins vitnaði fyrir Jósúa og sagði:7Svo segir Drottinn allsherjar: Ef þú gengur á mínum vegum og varðveitir boðorð mín, þá skalt þú og stjórna húsi mínu og gæta forgarða minna, og ég heimila þér að ganga meðal þessara þjóna minna.8Heyr, Jósúa æðsti prestur, þú og félagar þínir, sem sitja frammi fyrir þér, eru fyrirboðar þess, að ég læt þjón minn Kvist koma.9Því sjá, steinninn, sem ég hefi lagt frammi fyrir Jósúa sjö augu á einum steini sjá, ég gref á hann letur hans segir Drottinn allsherjar og tek burt á einum degi misgjörð þessa lands.10Á þeim degi segir Drottinn allsherjar munuð þér bjóða hver öðrum inn undir víntré og fíkjutré.

3.1 Satan Job 1.6; 1Kro 21.1; Mrk 1.13+
3.2 Satan ávítaður Júdt 9 – úr báli dreginn Am 4.11
3.4 Burt numin sök Jer 31.34 – skrúðklæði 2Mós 29.5; 3Mós 8.7
3.5 Ennisspöng 2Mós 29.6; 3Mós 8.9
3.7 Ef þú gengur … 1Kon 2.4; 9.4
3.8 Þjónn minn Jes 49.5-6; 52.13; Hag 2.23 – ,,Sproti” Jer 23.5; 33.15; sbr Jes 11.1-2
3.9 Sjö augu Sak 4.10
3.10 Undir vínvið og fíkjutré Mík 4.4+