1Páll, að Guðs vilja postuli Krists Jesú, og Tímóteus, bróðir vor, heilsa söfnuði Guðs, sem er í Korintu, ásamt öllum heilögum, í gjörvallri Akkeu.2Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, faðir miskunnsemdanna og Guð allrar huggunar,4sem huggar oss í sérhverri þrenging vorri, svo að vér getum huggað alla aðra í þrengingum þeirra með þeirri huggun, sem vér höfum sjálfir af Guði hlotið.5Því að eins og þjáningar Krists koma í ríkum mæli yfir oss, þannig hljótum vér og huggun í ríkum mæli fyrir Krist.6En ef vér sætum þrengingum, þá er það yður til huggunar og hjálpræðis, og ef vér hljótum huggun, þá er það til þess að þér hljótið huggun og kraft til að standast þær þjáningar, sem vér einnig líðum.7Von vor um yður er staðföst. Vér vitum, að þér eigið hlut í huggun vorri eins og þér eigið hlut í þjáningum vorum.8Vér viljum ekki, bræður mínir, að yður sé ókunnugt um þrenging þá, sem vér urðum fyrir í Asíu. Vér vorum aðþrengdir langt um megn fram, svo að vér jafnvel örvæntum um lífið.9Já, oss sýndist sjálfum, að vér hefðum þegar fengið vorn dauðadóm. Því að oss átti að lærast það að treysta ekki sjálfum oss, heldur Guði, sem uppvekur hina dauðu.10Úr slíkri dauðans hættu frelsaði hann oss og mun frelsa oss. Til hans höfum vér sett von vora, að hann muni enn frelsa oss.11Til þess getið þér og hjálpað með því að biðja fyrir oss. Þá munu margir þakka þá náðargjöf, sem oss er veitt að fyrirbæn margra.12Þetta er hrósun vor: Samviska vor vitnar um, að vér höfum lifað í heiminum, og sérstaklega hjá yður, í heilagleika og hreinleika, sem kemur frá Guði, ekki látið stjórnast af mannlegri speki, heldur af náð Guðs.13Vér skrifum yður ekki annað en það, sem þér getið lesið og skilið. Ég vona, að þér munið til fulls skilja það,14sem yður er að nokkru ljóst, að þér getið miklast af oss eins og vér af yður á degi Drottins vors Jesú.15Í þessu trausti var það ásetningur minn að koma fyrst til yðar, til þess að þér skylduð verða tvöfaldrar gleði aðnjótandi.16Ég hugðist bæði koma við hjá yður á leiðinni til Makedóníu og aftur á leiðinni þaðan og láta yður búa ferð mína til Júdeu.17Var það nú svo mikið hverflyndi af mér, er ég afréð þetta? Eða ræð ég ráðum mínum að hætti heimsins, svo að hjá mér sé já, já sama og nei, nei?18Svo sannarlega sem Guð er trúr: Það, sem vér segjum yður, er ekki bæði já og nei.19Sonur Guðs, Jesús Kristur, sem vér höfum prédikað á meðal yðar, ég, Silvanus og Tímóteus, var ekki bæði já og nei, heldur er allt í honum já.20Því að svo mörg sem fyrirheit Guðs eru, þá er játun þeirra í honum. Þess vegna segjum vér og fyrir hann amen Guði til dýrðar.21Það er Guð, sem gjörir oss ásamt yður staðfasta í Kristi og hefur smurt oss.22Hann hefur sett innsigli sitt á oss og gefið oss anda sinn sem pant í hjörtum vorum.23Ég kalla Guð til vitnis og legg líf mitt við, að það er af hlífð við yður, að ég hef enn þá ekki komið til Korintu.24Ekki svo að skilja, að vér viljum drottna yfir trú yðar, heldur erum vér samverkamenn að gleði yðar. Því að í trúnni standið þér.

1.1 Páll postuli Róm 1.1; 1Kor 1.1 – Tímóteus Post 16.1+
1.2 Náð og friður Róm 1.7; 1Kor 1.3 – Drottinn Jesús Kristur Post 2.36; 1Kor 12.3; 2Kor 4.5; Fil 2.11
1.3 Guð allrar huggunar Jes 40.1; Slm 34.19; 94.19; Róm 15.5
1.4 Þrenging Matt 13.21; Jóh 16.33; Post 14.22; 1Kor 7.28; 2Kor 1.8; 4.1; 8.2; Fil 1.20; Kól 1.24
1.6 Kristur og hin trúuðu 2Kor 5.21; 8.9 – postulinn og hin trúuðu 1Kor 11.1; 12.26
1.9-10 Guð frelsar Fil 2.27; 2Tím 4.18
1.11 Þakkir til Guðs 2Kor 4.15; 9.11-12
1.12 Mannleg speki 1Kor 1.17; 2.1
1.13 Eitt fagnaðarerindi 2Kor 11.4; Gal 1.6-9; 2.2,6
1.16 Ég hugðist Post 19.21; 1Kor 16.5-6 – ferð frestað 2Kor 1.23; 2.1
1.17 Já og nei Matt 5.37; Jak 5.12
1.19 Silvanus (Sílas) Post 15.22+ – Tímóteus 1Kor 1.1; Post 16.1+
1.20 Staðfesta með ,,jái’’ Róm 16.27; 1Kor 14.16; Opb 5.14
1.21 Smyrja 1Jóh 2.20,27
1.22 Innsigli Ef 1.13; 4.30 – trygging 2Kor 5.5; Róm 8.23; Ef 1.14
1.24 Drottna yfir trú 1Pét 5.2-3