1Hvers vegna eru ekki hegningartímar geymdir af hinum Almáttka,2og hví sjá þeir ekki daga hans, sem á hann trúa? Menn færa landamerki úr stað, ræna hjörðum og halda þeim á beit.3Asna munaðarleysingjanna reka menn burt og taka uxa ekkjunnar að veði.4Þeir hrinda hinum fátæku út af veginum, hinir bágstöddu í landinu verða allir að fela sig.5Já, sem skógarasnar á öræfum ganga þeir út til starfa sinna, leitandi að fæðu, eyðimörkin veitir þeim brauð handa börnunum.6Á akrinum uppskera þeir fóður sitt og fara í eftirleit í víngarði hins óguðlega.7Naktir liggja þeir um nætur, klæðlausir, og hafa enga ábreiðu í kuldanum.8Þeir eru gagndrepa af fjallaskúrunum, og hælislausir faðma þeir klettinn.9Menn slíta föðurleysingjana af brjóstinu og taka veð af hinum bágstöddu.10Naktir ganga þeir, klæðlausir, og hungraðir bera þeir kornbundin.11Í olífugörðum annarra pressa þeir olíu, troða vínlagarþrór og kveljast af þorsta.12Úr borgunum heyrast stunur deyjandi manna, sálir hinna drepnu hrópa á hefnd, en Guð gefur ekki gaum að óhæfunni.13Slíkir menn eru ljósfjendur orðnir, þeir þekkja ekki vegu hans og halda sig ekki á stigum hans.14Með morgunsárinu fer morðinginn á fætur og drepur hinn volaða og snauða, og á nóttunni læðist þjófurinn.15Og auga hórkarlsins bíður eftir rökkrinu, og hann segir: Ekkert auga sér mig, og dregur skýlu fyrir andlitið.16Í myrkrinu brjótast þeir inn í hús, á daginn loka þeir sig inni, þeir þekkja ekki ljósið.17Því að öllum er þeim niðamyrkrið morgunn, því að þeir eru nákunnugir skelfingum niðamyrkursins.18Fljótt berst hann burt með straumnum, bölvaður verður erfðahluti hans í landinu, hann snýr eigi framar á leið til víngarðanna.19Þurrkur og hiti hrífa snjóvatnið burt, Hel þann, er svo hefir syndgað.20Móðurskautið gleymir honum, ormarnir gæða sér á honum. Hans er eigi framar minnst, og ranglætið verður brotið sundur eins og tré,21hann sem rændi óbyrjuna, er ekki fæddi, og enga velgjörð sýndi ekkjunni.22En Guð heldur samt hinum volduga við með mætti sínum, slíkur maður rís aftur upp, þótt hann væri tekinn að örvænta um lífið.23Guð veitir honum að lifa óhultur, og hann er studdur, og augu hans vaka yfir vegum hans.24Hátt standa þeir, en eftir stundarkorn eru þeir horfnir. Þeir hníga, þeir eru hrifnir burt eins og allir aðrir og sviðnir af eins og höfuð kornaxins.25Og ef það er eigi svo, hver vill þá sanna, að ég sé lygari, og gjöra ræðu mína að engu?

24.2 Færa landamerki 5Mós 19.14; Hós 5.10; Okv 22.28
24.3-11 Kúgun Job 22.9+
24.3 Að veði 5Mós 24.17
24.4 Fela sig Okv 28.12,28
24.7 Hafa enga ábreiðu 5Mós 24.12-13
24.10 Hungraðir sbr 5Mós 28.30-33
24.12 Stunur Job 35.9-13; Sef 1.10-11; Préd 4.1 – Guð bænheyrir ekki Slm 94.5-7
24.14 Drepur umkomulausa Slm 10.8-9
24.15 Bíður rökkursins Okv 7.9-10; Sír 23.18
24.19 Undirheimar eyða syndaranum Slm 49.15
24.20 Maðkur Jes 14.11 – aldrei minnst Jes 26.14; Esk 21.37; sbr Matt 26.13
24.23 Öryggi Job 21.30+