1Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: Göngum í hús Drottins.2Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem.3Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,4þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins það er regla fyrir Ísrael til þess að lofa nafn Drottins,5því að þar standa dómarastólar, stólar fyrir Davíðs ætt.6Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig.7Friður sé kringum múra þína, heill í höllum þínum.8Sakir bræðra minna og vina óska ég þér friðar.9Sakir húss Drottins, Guðs vors, vil ég leita þér hamingju.

122.1 Hús Drottins Slm 27.4; 42.5; 43.4; Jes 2.3; 30.29; sbr Sak 8.21
122.3 Jerúsalem, rammgerða Mrk 13.1; sbr 1Pét 2.5; Opb 21.10-27
122.4 Regla í Ísrael Slm 81.5; 2Mós 34.24; Lúk 2.41-42
122.5 Hásæti dómsins 5Mós 17.8-11; 1Kon 7.7; 2Kro 19.8
122.6 Friður í Jerúsalem Slm 51.20
122.9 Hús Drottins Slm 26.8