1Eftir Davíð. Ég vil lofa þig af öllu hjarta, lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.2Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti, því að þú hefir gjört nafn þitt og orð þitt meira öllu öðru.3Þegar ég hrópaði, bænheyrðir þú mig, þú veittir mér hugmóð, er ég fann kraft hjá mér.4Allir konungar á jörðu skulu lofa þig, Drottinn, er þeir heyra orðin af munni þínum.5Þeir skulu syngja um vegu Drottins, því að mikil er dýrð Drottins.6Því að Drottinn er hár og sér þó hina lítilmótlegu og þekkir hinn drambláta í fjarska.7Þótt ég sé staddur í þrengingu, lætur þú mig lífi halda, þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna, og hægri hönd þín hjálpar mér.8Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig, Drottinn, miskunn þín varir að eilífu. Yfirgef eigi verk handa þinna.

138.1 Af öllu hjarta Slm 9.2+- guðirnir Slm 29.1; 82.1; 86.8; 89.7; sbr Job 1.6; 2.1
138.2 Falla fram Slm 5.8
138.3 Ég hrópaði, þú bænheyrðir mig Slm 99.6+
138.4 Allir konungar Slm 68.33
138.6 Drottinn lítur til hins lága Slm 113.6-8; Jes 57.15; sbr Lúk 1.48
138.8 Eilíf miskunn Slm 100.5; 107.1+ ; 136.1