1Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn.2Mikill fjöldi manna fylgdi honum, því þeir sáu þau tákn, er hann gjörði á sjúku fólki.3Þá fór Jesús upp á fjallið og settist þar niður með lærisveinum sínum.4Þetta var laust fyrir páska, hátíð Gyðinga.5Jesús leit upp og sá, að mikill mannfjöldi kom til hans. Hann segir þá við Filippus: Hvar eigum vér að kaupa brauð, að þessir menn fái að eta?6En þetta sagði hann til að reyna hann, því hann vissi sjálfur, hvað hann ætlaði að gjöra.7Filippus svaraði honum: Brauð fyrir tvö hundruð denara nægðu þeim ekki, svo að hver fengi lítið eitt.8Annar lærisveinn hans, Andrés, bróðir Símonar Péturs, segir þá við hann:9Hér er piltur, sem er með fimm byggbrauð og tvo fiska, en hvað er það handa svo mörgum?10Jesús sagði: Látið fólkið setjast niður. Þarna var gras mikið. Menn settust nú niður, um fimm þúsund karlmenn að tölu.11Nú tók Jesús brauðin, gjörði þakkir og skipti þeim út til þeirra, sem þar sátu, og eins af fiskunum, svo mikið sem þeir vildu.12Þegar þeir voru mettir, segir hann við lærisveina sína: Safnið saman leifunum, svo ekkert spillist.13Þeir söfnuðu þeim saman og fylltu tólf körfur með leifum byggbrauðanna fimm, sem af gengu hjá þeim, er neytt höfðu.14Þegar menn sáu táknið, sem hann gjörði, sögðu þeir: Þessi maður er sannarlega spámaðurinn, sem koma skal í heiminn.15Jesús vissi nú, að þeir mundu koma og taka hann með valdi til að gjöra hann að konungi, og vék því aftur upp til fjallsins einn síns liðs.16Þegar kvöld var komið, fóru lærisveinar hans niður að vatninu,17stigu út í bát og lögðu af stað yfir um vatnið til Kapernaum. Myrkur var skollið á, og Jesús var ekki enn kominn til þeirra.18Vind gerði hvassan, og tók vatnið að æsast.19Þegar þeir höfðu róið hér um bil tuttugu og fimm eða þrjátíu skeiðrúm, sáu þeir Jesú gangandi á vatninu og nálgast bátinn. Þeir urðu hræddir,20en hann sagði við þá: Það er ég, óttist eigi.21Þeir vildu þá taka hann í bátinn, en í sömu svifum rann báturinn að landi, þar sem þeir ætluðu að lenda.22Daginn eftir sá fólkið, sem eftir var handan vatnsins, að þar hafði ekki verið nema einn bátur og að Jesús hafði ekki stigið í bátinn með lærisveinum sínum, heldur höfðu þeir farið burt einir saman.23Aðrir bátar komu frá Tíberías í nánd við staðinn, þar sem þeir höfðu etið brauðið, þegar Drottinn gjörði þakkir.24Nú sáu menn, að Jesús var ekki þarna fremur en lærisveinar hans. Þeir stigu því í bátana og komu til Kapernaum í leit að Jesú.25Þeir fundu hann hinum megin við vatnið og spurðu hann: Rabbí, nær komstu hingað?26Jesús svaraði þeim: Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér leitið mín ekki af því, að þér sáuð tákn, heldur af því, að þér átuð af brauðunum og urðuð mettir.27Aflið yður eigi þeirrar fæðu, sem eyðist, heldur þeirrar fæðu, sem varir til eilífs lífs og Mannssonurinn mun gefa yður. Því á hann hefur faðirinn, Guð sjálfur, sett innsigli sitt.28Þá sögðu þeir við hann: Hvað eigum vér að gjöra, svo að vér vinnum verk Guðs?29Jesús svaraði þeim: Þetta er verk Guðs, að þér trúið á þann, sem hann sendi.30Þeir spurðu hann þá: Hvaða tákn gjörir þú, svo að vér sjáum og trúum þér? Hvað afrekar þú?31Feður vorir átu manna í eyðimörkinni, eins og ritað er: Brauð af himni gaf hann þeim að eta.32Jesús sagði við þá: Sannlega, sannlega segi ég yður: Móse gaf yður ekki brauðið af himni, heldur gefur faðir minn yður hið sanna brauð af himni.33Brauð Guðs er sá, sem stígur niður af himni og gefur heiminum líf.34Þá sögðu þeir við hann: Herra, gef oss ætíð þetta brauð.35Jesús sagði þeim: Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra, sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir.36En ég hef sagt við yður: Þér hafið séð mig og trúið þó ekki.37Allt sem faðirinn gefur mér, mun koma til mín, og þann sem kemur til mín, mun ég alls eigi brott reka.38Ég er stiginn niður af himni, ekki til að gjöra vilja minn, heldur vilja þess, er sendi mig.39En sá er vilji þess, sem sendi mig, að ég glati engu af öllu því, sem hann hefur gefið mér, heldur reisi það upp á efsta degi.40Því sá er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann, hafi eilíft líf, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.41Nú kom upp kurr meðal Gyðinga út af því, að hann sagði: Ég er brauðið, sem niður steig af himni,42og þeir sögðu: Er þetta ekki hann Jesús, sonur Jósefs? Vér þekkjum bæði föður hans og móður. Hvernig getur hann sagt, að hann sé stiginn niður af himni?43Jesús svaraði þeim: Verið ekki með kurr yðar á meðal.44Enginn getur komið til mín, nema faðirinn, sem sendi mig, dragi hann, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.45Hjá spámönnunum er skrifað: Þeir munu allir verða af Guði fræddir. Hver sem hlýðir á föðurinn og lærir af honum, kemur til mín.46Ekki er það svo, að nokkur hafi séð föðurinn. Sá einn, sem er frá Guði, hefur séð föðurinn.47Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir, hefur eilíft líf.48Ég er brauð lífsins.49Feður yðar átu manna í eyðimörkinni, en þeir dóu.50Þetta er brauðið, sem niður stígur af himni. Sá sem etur af því, deyr ekki.51Ég er hið lifandi brauð, sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði, mun lifa að eilífu. Og brauðið, sem ég mun gefa, er hold mitt, heiminum til lífs.52Nú deildu Gyðingar sín á milli og sögðu: Hvernig getur þessi maður gefið oss hold sitt að eta?53Þá sagði Jesús við þá: Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef þér etið ekki hold Mannssonarins og drekkið blóð hans, hafið þér ekki lífið í yður.54Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, hefur eilíft líf, og ég reisi hann upp á efsta degi.55Hold mitt er sönn fæða, og blóð mitt er sannur drykkur.56Sá sem etur hold mitt og drekkur blóð mitt, er í mér og ég í honum.57Eins og hinn lifandi faðir sendi mig og ég lifi fyrir föðurinn, svo mun sá lifa fyrir mig, sem mig etur.58Þetta er það brauð, sem niður steig af himni. Það er ekki eins og brauðið, sem feðurnir átu og dóu. Sá sem etur þetta brauð, mun lifa að eilífu.59Þetta sagði hann, þegar hann var að kenna í samkundunni í Kapernaum.60Margir af lærisveinum hans, er á hlýddu, sögðu: Þung er þessi ræða. Hver getur hlustað á hana?61Jesús vissi með sjálfum sér, að kurr var með lærisveinum hans út af þessu, og sagði við þá: Hneykslar þetta yður?62En ef þér sæjuð Mannssoninn stíga upp þangað, sem hann áður var?63Það er andinn, sem lífgar, holdið megnar ekkert. Orðin, sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf.64En meðal yðar eru nokkrir, sem ekki trúa. Jesús vissi frá upphafi, hverjir þeir voru, sem trúðu ekki, og hver sá var, sem mundi svíkja hann.65Og hann bætti við: Vegna þess sagði ég við yður: Enginn getur komið til mín, nema faðirinn veiti honum það.66Upp úr þessu hurfu margir af lærisveinum hans frá og voru ekki framar með honum.67Þá sagði Jesús við þá tólf: Ætlið þér að fara líka?68Símon Pétur svaraði honum: Herra, til hvers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs,69og vér trúum og vitum, að þú ert hinn heilagi Guðs.70Jesús svaraði þeim: Hef ég eigi sjálfur útvalið yður tólf? Þó er einn yðar djöfull.71En hann átti við Júdas Símonarson Ískaríots, sem varð til að svíkja hann, einn þeirra tólf.

6.2 Mannfjöldinn fylgir Jesú Matt 4.25; 8.1; 12.15; 19.2; 20.29; Mrk 5.24; Lúk 9.11 – sáu þau tákn … Jóh 2.23+ ; 6.14
6.3 Upp á fjallið Matt 5.1; 24.3; Mrk 3.13; Lúk 22.39
6.4 Laust fyrir páska Lúk 22.1; Jóh 2.13+
6.6 Jesús vissi Jóh 1.48; 2.25; 4.17-19,29; 6.61,64,71; 13.11,27-28; 16.19,30; 18.4; 21.17
6.8 Andrés Matt 4.18+
6.9 Brauð og fiskar Jóh 21.9,13 – sbr 2Kon 4.42-44
6.14 Spámaðurinn Matt 21.11+ ; Post 7.37
6.15 Gera að konungi Jóh 18.36 – aftur upp til fjallsins Matt 14.23; 15.29; Mrk 6.46; Lúk 6.12
6.20 Það er ég Matt 14.27; sbr Mrk 16.6+
6.26 Sjá tákn og trúa Jóh 2.11 – eta og mettast Jóh 6.11-12
6.27 Til eilífs lífs Jóh 14.4; 6.50,51,54,58 – Mannssonurinn Matt 8.20+ – veitt honum vald Ef 1.14; 4.30; Opb 7.3-4
6.28 Verk Guðs Jóh 9.4; 1Kor 15.58
6.29 Trúa Róm 3.28
6.30 Hvaða tákn? Jóh 2.18+
6.31 Manna 2Mós 16.15; 4Mós 11.7-9; 5Mós 8.3; Neh 9.15; SSal 16.20; Jóh 6.49,58 – gaf hann þeim … Slm 78.24; 105.40
6.33 Brauð Guðs Jóh 6.41,51
6.34 Gef okkur ætíð … Jóh 4.15 – gef okkur Matt 6.11; Lúk 11.3
6.35 Ég er … Jóh 8.12; 10.7,9; 11.25; 14.6; 15.1 – brauð lífsins Jóh 6.48,51,58 – aldrei þyrsta Jóh 4.14
6.36 Sjá og trúa Jóh 20.29; sbr 9.41
6.37 Allt sem faðirinn gefur mér Jóh 17.2,6-7,24 – þann sem kemur til mín Matt 11.28
6.38 Ekki vilja minn heldur … Mrk 14.36 og hlst.; Jóh 4.34; 5.30
6.39 Öllu því, sem hann hefur gefið mér Matt 18.14; Jóh 10.28-29; 17.12; 18.9 – á efsta degi Jóh 6.44,54; 11.24; sbr 5.28-29; 14.3,19
6.41 Kurr 2Mós 16.2-8 – bauð af himni Jóh 6.33,35,51,58
6.42 Sonur Jósefs Mrk 6.3 og hlst.
6.44 Nema faðirinn laði hann Jóh 6.65 – reisa hann upp á efsta degi Jóh 6.39+
6.45 Guð mun kenna þeim Jes 54.13; sbr Jer 31.33-34; 1Þess 4.9
6.46 Enginn hefur sér föðurinn Jóh 1.18
6.47 Trú og eilíft líf Jóh 3.15,16,36
6.48 Brauð lífsins Jóh 6.35+
6.49 Manna Jóh 6.31+
6.50-51 Hið lifandi brauð Jóh 6.33,58
6.51 Líkami minn Jóh 3.6+ – gefa Jóh 10.11,15; 11.50-52; 15.13; 17.19; 18.14; 1Jóh 3.16
6.54 Reisi hann upp á efsta degi Jóh 6.39+
6.56 Vera í Jesú Jóh 15.5; sbr 1Jóh 3.24
6.62 Mannssonurinn Matt 8.20+ – stíga upp … Post 1.9-11
6.63 Andinn lífgar 2Kor 3.6 – maðurinn megnar ekkert Jóh 3.6
6.64 Vissi frá upphafi Jóh 13.11
6.65 Nema faðirinn … Jóh 6.44
6.68 Orð eilífs lífs Jóh 6.63
6.69 Hinn heilagi Guðs Mrk 1.24+ ; sbr Jóh 10.36; 17.18; Matt 16.16-23; Mrk 8.27-33; Lúk 9.18-22
6.70 Útvalið Jóh 15.16
6.71 Júdas Jóh 12.4; Matt 10.4+