1Því næst sagði Drottinn við Móse: Gakk fyrir Faraó og seg við hann: Svo segir Drottinn, Guð Hebrea: Gef fólki mínu fararleyfi, að þeir megi þjóna mér.2En synjir þú þeim fararleyfis, og haldir þú þeim enn lengur,3sjá, þá skal hönd Drottins koma yfir kvikfénað þinn, sem er í haganum, yfir hesta og asna og úlfalda, nautpening og sauðfé, með harla þungum faraldri.4Og Drottinn mun gjöra þann mun á kvikfénaði Ísraelsmanna og kvikfénaði Egypta, að engin skepna skal deyja af öllu því, sem Ísraelsmenn eiga.5Og Drottinn tók til ákveðinn tíma og sagði: Á morgun mun Drottinn láta þetta fram fara í landinu.6Og Drottinn lét þetta fram fara að næsta morgni. Dó þá allur kvikfénaður Egypta, en engin skepna dó af fénaði Ísraelsmanna.7Þá sendi Faraó menn, og sjá: Engin skepna hafði farist af fénaði Ísraelsmanna. En hjarta Faraós var ósveigjanlegt, og hann gaf fólkinu eigi fararleyfi.8Því næst sagði Drottinn við Móse og Aron: Takið handfylli ykkar af ösku úr ofninum, og skal Móse dreifa henni í loft upp að Faraó ásjáandi.9Skal hún þá verða að dufti um allt Egyptaland, en af því skal koma bólga, sem brýst út í kýli, bæði á mönnum og fénaði um allt Egyptaland.10Þeir tóku þá ösku úr ofninum og gengu fyrir Faraó. Dreifði þá Móse öskunni í loft upp, og kom þá á menn og fénað bólga, sem braust út í kýli.11En spásagnamennirnir gátu ekki komið á fund Móse sökum bólgunnar, því að bólga kom á spásagnamennina, eins og á alla Egypta.12En Drottinn herti hjarta Faraós, og hann hlýddi þeim ekki, eins og Drottinn hafði sagt Móse.13Þá mælti Drottinn við Móse: Rís upp árla á morgun, gakk fyrir Faraó og seg við hann: Svo segir Drottinn, Guð Hebrea: Gef fólki mínu fararleyfi, að þeir megi þjóna mér.14Því að í þetta sinn ætla ég að senda allar plágur mínar yfir þig sjálfan, yfir þjóna þína og yfir fólk þitt, svo að þú vitir, að enginn er minn líki á allri jörðinni.15Því að ég hefði þegar getað rétt út hönd mína og slegið þig og fólk þitt með drepsótt, svo að þú yrðir afmáður af jörðinni.16En þess vegna hefi ég þig standa látið, til þess að ég sýndi þér mátt minn og til þess að nafn mitt yrði kunngjört um alla veröld.17Þú stendur enn í móti fólki mínu með því að vilja ekki gefa þeim fararleyfi.18Sjá, á morgun í þetta mund vil ég láta dynja yfir svo stórfellt hagl, að aldrei hefir slíkt komið á Egyptalandi, síðan landið varð til og allt til þessa dags.19Fyrir því send nú og tak sem skjótast inn fénað þinn og allt það, er þú átt úti. Allir menn og skepnur, sem úti verða staddar og ekki eru í hús inn látnar og fyrir haglinu verða, munu deyja.20Sérhver af þjónum Faraós, sem óttaðist orð Drottins, hýsti inni hjú sín og fénað.21En þeir, sem ekki gáfu gaum að orðum Drottins, létu hjú sín og fénað vera úti.22Þá sagði Drottinn við Móse: Rétt hönd þína til himins og þá skal hagl drífa yfir allt Egyptaland, yfir menn og skepnur, og yfir allan jarðargróða í Egyptalandi.23Þá lyfti Móse staf sínum til himins, og Drottinn lét þegar koma reiðarþrumur og hagl. Og eldingum laust á jörð niður, og Drottinn lét hagl dynja yfir Egyptaland.24Og haglið dundi og eldingunum laust í sífellu niður innan um haglið, er var svo geysistórt, að slíkt hafði ekki komið á öllu Egyptalandi síðan það byggðist.25Og haglið laust til bana allt það, sem úti var í öllu Egyptalandi, bæði menn og skepnur, og haglið lamdi allan jarðargróða og braut hvert tré merkurinnar.26Aðeins í Gósenlandi, þar sem Ísraelsmenn bjuggu, kom ekkert hagl.27Þá sendi Faraó og lét kalla þá Móse og Aron og sagði við þá: Að þessu sinni hefi ég syndgað. Drottinn er réttlátur, en ég og mitt fólk höfum á röngu að standa.28Biðjið til Drottins. Nóg er komið af reiðarþrumum og hagli. Vil ég þá gefa yður fararleyfi, og skuluð þér ekki bíða lengur.29Móse svaraði honum: Jafnskjótt sem ég er kominn út úr borginni, skal ég fórna höndum til Drottins, og mun þá reiðarþrumunum linna og hagl ekki framar koma, svo að þú vitir, að jörðin tilheyrir Drottni.30Og veit ég þó, að þú og þjónar þínir óttast ekki enn Drottin Guð.31Hör og bygg var niður slegið, því að öx voru komin á byggið og knappar á hörinn.32En hveiti og speldi var ekki niður slegið, því að þau koma seint upp.33Því næst gekk Móse burt frá Faraó og út úr borginni og fórnaði höndum til Drottins. Linnti þá reiðarþrumunum og haglinu, og regn streymdi ekki lengur niður á jörðina.34En er Faraó sá, að regninu, haglinu og reiðarþrumunum linnti, hélt hann áfram að syndga og herti hjarta sitt, hann og þjónar hans.35Og hjarta Faraós harðnaði, og hann gaf Ísraelsmönnum eigi fararleyfi, eins og Drottinn hafði sagt fyrir munn Móse.

9.1 Plágan Slm 78.48; Am 4.10; Hab 3.5
9.4 Mun greina 2Mós 8.22+
9.7 Harðúð 2Mós 7.3+
9.8 Kýlin 5Mós 28.35; Job 2.7; Lúk 16.20-21; Opb 16.2,11
9.13 Haglið Slm 78.47; 105.32; Jes 28.2,17; 30.30; Esk 38.22; SSal 16.15-23; Opb 8.7; 16.21
9.16 Látið þig halda lífi Róm 9.17
9.26 Í Gósenlandi 2Mós 8.18+
9.27 Ég hefi syndgað 4Mós 22.34; 1Sam 15.24; 2Sam 24.10; Slm 51.6; Lúk 15.18,21
9.29 Landið er eign Drottins 2Mós 19.5; 5Mós 10.14; Slm 24.1
9.34-35 Harðúð 2Mós 7.3+