1Abraham tók sér enn konu. Hún hét Ketúra.2Og hún ól honum Símran, Joksan, Medan, Midían, Jísbak og Súa.3Og Joksan gat Séba og Dedan, og synir Dedans voru Assúrítar, Letúsítar og Leúmmítar.4Og synir Midíans voru: Efa, Efer, Hanok, Abída og Eldaa. Allir þessir eru niðjar Ketúru.5Abraham gaf Ísak allt, sem hann átti.6En sonum þeim, sem Abraham hafði átt með hjákonunum, gaf hann gjafir og lét þá, meðan hann enn var á lífi, fara burt frá Ísak syni sínum í austurátt, til austurlanda.7Þetta eru ævidagar Abrahams, sem hann lifði, hundrað sjötíu og fimm ár.8Og Abraham andaðist og dó í góðri elli, gamall og saddur lífdaga, og safnaðist til síns fólks.9Og Ísak og Ísmael synir hans jörðuðu hann í Makpelahelli í landi Efrons, sonar Hetítans Sóars, sem er gegnt Mamre,10í landi því, sem Abraham hafði keypt af Hetítum, þar var Abraham jarðaður og Sara kona hans.11Og eftir andlát Abrahams blessaði Guð Ísak son hans. En Ísak bjó hjá Beer-lahaj-róí.12Þetta er ættartal Ísmaels Abrahamssonar, sem Hagar hin egypska, ambátt Söru, ól honum.13Og þessi eru nöfn Ísmaels sona, samkvæmt nöfnum þeirra, eftir kynþáttum þeirra. Nebajót var hans frumgetinn son, þá Kedar, Adbeel, Míbsam,14Misma, Dúma, Massa,15Hadar, Tema, Jetúr, Nafis og Kedma.16Þessir eru synir Ísmaels, og þessi eru nöfn þeirra, eftir þorpum þeirra og tjaldbúðum, tólf höfðingjar, eftir ættkvíslum þeirra.17Og þetta voru æviár Ísmaels: hundrað þrjátíu og sjö ár, þá andaðist hann og dó, og safnaðist til síns fólks.18Og þeir bjuggu frá Havíla til Súr, sem er fyrir austan Egyptaland, í stefnu til Assýríu. Fyrir austan alla bræður sína tók hann sér bústað.19Þetta er saga Ísaks Abrahamssonar. Abraham gat Ísak.20Ísak var fertugur að aldri, er hann gekk að eiga Rebekku, dóttur Betúels hins arameíska frá Paddan-aram, systur Labans hins arameíska.21Ísak bað Drottin fyrir konu sinni, því að hún var óbyrja, og Drottinn bænheyrði hann, og Rebekka kona hans varð þunguð.22Og er börnin hnitluðust í kviði hennar, sagði hún: Sé það svona, hví lifi ég þá? Gekk hún þá til frétta við Drottin.23En Drottinn svaraði henni: Þú gengur með tvær þjóðir, og tveir ættleggir munu af skauti þínu kvíslast. Annar verður sterkari en hinn, og hinn eldri mun þjóna hinum yngri.24Er dagar hennar fullnuðust, að hún skyldi fæða, sjá, þá voru tvíburar í kviði hennar.25Og hinn fyrri kom í ljós, rauður að lit og allur sem loðfeldur, og var hann nefndur Esaú.26Og eftir það kom bróðir hans í ljós, og hélt hann um hælinn á Esaú, og var hann nefndur Jakob. En Ísak var sextíu ára, er hún ól þá.27Er sveinarnir voru vaxnir, gjörðist Esaú slyngur veiðimaður og hafðist við á heiðum, en Jakob var maður gæfur og bjó í tjöldum.28Og Ísak unni Esaú, því að villibráð þótti honum góð, en Rebekka unni Jakob.29Einu sinni hafði Jakob soðið rétt nokkurn. Kom þá Esaú af heiðum og var dauðþreyttur.30Þá sagði Esaú við Jakob: Gef mér fljótt að eta hið rauða, þetta rauða þarna, því að ég er dauðþreyttur. Fyrir því nefndu menn hann Edóm.31En Jakob mælti: Seldu mér fyrst frumburðarrétt þinn.32Og Esaú mælti: Ég er kominn í dauðann, hvað stoðar mig frumburðarréttur minn?33Og Jakob mælti: Vinn þú mér þá fyrst eið að því! Og hann vann honum eiðinn og seldi Jakob frumburðarrétt sinn.34En Jakob gaf Esaú brauð og baunarétt, og hann át og drakk og stóð upp og gekk burt. Þannig lítilsvirti Esaú frumburðarrétt sinn.

25.5 Allt sem hann átti 1Mós 24.36
25.8 Í hárri elli 1Mós 15.15
25.12 Ísmael 1Mós 16.11; 1Kro 1.29-31
25.21 Óbyrja 1Mós 11.30; 29.31; Dóm 13.2-3; 1Sam 1.5-6; Lúk 1.7
25.23 Hinn eldri mun þjóna 1Mós 27.29,37; Róm 9.12, sbr 1Mós 48.19; Mal 1.2-3
25.26 Hélt um hælinn á Esaú Hós 12.4
25.28 Villibráð 1Mós 27.3-10
25.34 Át og drakk Jes 22.13 – Esaú sýnir lítilsvirðingu Heb 12.16