1Réttlættir af trú höfum vér því frið við Guð fyrir Drottin vorn Jesú Krist.2Fyrir hann höfum vér aðgang að þeirri náð, sem vér lifum í, og vér fögnum í von um dýrð Guðs.3En ekki það eitt: Vér fögnum líka í þrengingunum, með því að vér vitum, að þrengingin veitir þolgæði,4en þolgæðið fullreynd, en fullreyndin von.5En vonin bregst oss ekki, því að kærleika Guðs er úthellt í hjörtum vorum fyrir heilagan anda, sem oss er gefinn.6Meðan vér enn vorum óstyrkir, dó Kristur á settum tíma fyrir óguðlega.7Annars gengur varla nokkur í dauðann fyrir réttlátan mann, fyrir góðan mann kynni ef til vill einhver að vilja deyja.8En Guð auðsýnir kærleika sinn til vor, þar sem Kristur er fyrir oss dáinn meðan vér enn vorum í syndum vorum.9Þar sem vér nú erum réttlættir fyrir blóð hans, því fremur mun hann frelsa oss frá reiðinni.10Því að ef vér vorum óvinir Guðs og urðum sættir við hann með dauða sonar hans, því fremur munum vér frelsaðir verða með lífi sonar hans, nú er vér erum í sátt teknir.11Og ekki það eitt, heldur fögnum vér í Guði fyrir Drottin vorn Jesú Krist, sem vér nú höfum öðlast sáttargjörðina fyrir.12Syndin kom inn í heiminn fyrir einn mann og dauðinn fyrir syndina, og þannig er dauðinn runninn til allra manna, af því að allir hafa syndgað.13Því að allt fram að lögmálinu var synd í heiminum, en synd tilreiknast ekki meðan ekki er lögmál.14Samt sem áður hefur dauðinn ríkt frá Adam til Móse einnig yfir þeim, sem ekki höfðu syndgað á sömu lund og Adam braut, en Adam vísar til hans sem koma átti.15En náðargjöfinni og misgjörðinni verður ekki jafnað saman. Því að hafi hinir mörgu dáið sakir þess að einn féll, því fremur hefur náð Guðs og gjöf streymt ríkulega til hinna mörgu í hinum eina manni Jesú Kristi, sem er náðargjöf Guðs.16Og ekki verður gjöfinni jafnað til þess, sem leiddi af synd hins eina manns. Því að dómurinn vegna þess, sem hinn eini hafði gjört, varð til sakfellingar, en náðargjöfin vegna misgjörða margra til sýknunar.17Ef misgjörð hins eina manns hafði í för með sér, að dauðinn tók völd með þeim eina manni, því fremur munu þá þeir, sem þiggja gnóttir náðarinnar og gjafar réttlætisins, lifa og ríkja vegna hins eina Jesú Krists.18Eins og af misgjörð eins leiddi sakfellingu fyrir alla menn, þannig leiðir og af réttlætisverki eins sýknun og líf fyrir alla menn.19Eins og hinir mörgu urðu að syndurum fyrir óhlýðni hins eina manns, þannig mun hlýðni hins eina réttlæta hina mörgu.20En hér við bættist svo lögmálið, til þess að misgjörðin yrði meiri. En þar sem syndin jókst, þar flóði náðin yfir enn meir.21Og eins og syndin ríkti í dauðanum, svo skyldi og náðin ríkja fyrir réttlæti til eilífs lífs í Jesú Kristi, Drottni vorum.

5.1 Friður Jes 53.5; Ef 2.14-17; Kól 3.15
5.3 Þrengingar Slm 37.39; 50.15; Matt 24.21; Post 11.19; 14.22; 2Kor 1.4-5; Fil 4.14; 1Þess 3.3; Opb 1.9; 7.14
5.4 Þolgæði Róm 8.18; 2Kor 4.17; Jak 1.2-4; 1Pét 1.6-7; Heb 6.18-19
5.5 Heilagur andi Róm 8.9-16; Gal 4.6; Tít 3.5-7; 1Jóh 4.13
5.6-8 Dó fyrir okkur Róm 3.25; 4.25; 5.6-11; 8.32; Gal 1.4; 2.20; Ef 5.2; 1Tím 2.6; Tít 2.14; 3.4-7; 1Pét 3.18; Jóh 3.16-17; 15.13; 1Jóh 3.16; 4.10
5.10 Sættir 2Kor 5.18-19; Ef 2.16; Kól 1.20-22
5.12 Dauðinn kom með syndinni 1Mós 2.17; 3.19; SSal 2.24; Róm 6.23; 7.5; 8.6,13; 1Kor 15.21-22,45; Gal 6.7-9; Jak 1.15
5.19 Hlýðni Krists Jes 53.11; Fil 2.8; Heb 5.8
5.21 Eilíft líf Dan 12.2; Matt 19.16; Jóh 3.15; 6.47; 17.3; Róm 2.7; 6.22-23; Gal 6.8; 1Tím 6.12; Tít 1.2; 1Jóh 5.11,20