1 Bæn hrjáðs manns þá er hann örmagnast
og úthellir harmi sínum fyrir augliti Drottins.
2Drottinn, heyr þú bæn mína,
hróp mitt berist til þín.
3Byrg eigi auglit þitt fyrir mér
þegar ég er í nauðum staddur,
hneig eyra þitt að mér,
svara mér skjótt þegar ég kalla.
4Dagar mínir líða hjá sem reykur
og bein mín brenna sem í eldi,
5hjarta mitt er mornað og þornað sem gras
því að ég gleymi að eta brauð mitt.
6Af kveinstöfum mínum
er ég sem skinin bein.
7Ég líkist pelíkana í eyðimörkinni,
er eins og ugla í eyðirúst,
8ég ligg andvaka,
líkist einmana fugli á þaki.
9Fjandmenn mínir smána mig liðlangan daginn;
þeir sem hamast gegn mér nota nafn mitt til formælinga.
10Já, ég neyti ösku sem brauðs,
blanda drykk minn tárum
11vegna reiði þinnar og bræði
því að þú hófst mig upp og varpaðir mér aftur til jarðar.
12Dagar mínir eru sem síðdegisskuggi
og ég visna sem gras.
13En þú, Drottinn, ríkir að eilífu
og þín er minnst frá kyni til kyns.
14Þú munt rísa upp, sýna Síon miskunn
því að nú er tími til kominn að líkna henni,
já, stundin er runnin upp.
15Því að þjónar þínir elska steina Síonar
og harma yfir rústum hennar.
16Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins
og allir konungar jarðarinnar dýrð þína
17því að Drottinn byggir upp Síon
og birtist í dýrð sinni.
18Hann gefur gaum að bæn hinna allslausu
og hafnar ekki bæn þeirra.
19Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð
og þjóð, sem enn er ekki sköpuð, skal lofa Drottin.
20Drottinn lítur niður frá sinni heilögu hæð,
horfir frá himni til jarðar
21til að heyra andvörp bandingja
og leysa börn dauðans,
22 til að kunngjöra nafn Drottins á Síon
og lofa hann í Jerúsalem
23 þegar þjóðir safnast þar saman
og konungsríki til að þjóna Drottni.
24 Hann bugaði kraft minn á miðri ævi,
fækkaði ævidögum mínum.
25 Ég segi: „Guð minn, sviptu mér ekki burt á miðri ævi
því að ár þín vara frá kyni til kyns.“
26 Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina
og himinninn er verk handa þinna;
27 þau munu líða undir lok en þú varir,
þau munu fyrnast sem fat,
þú leggur þau frá þér sem klæði og þau hverfa
28 en þú ert hinn sami og ár þín fá engan enda.
29 Börn þjóna þinna munu búa óhult
og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.