1Elísa talaði við konuna, er soninn átti, sem hann hafði lífgað, á þessa leið: Tak þig upp og far burt með fólk þitt og sest þú að einhvers staðar erlendis, því að Drottinn kallar sjö ára hallæri yfir landið, og er það þegar komið.2Þá tók konan sig upp og gjörði eins og guðsmaðurinn sagði, fór burt með fólk sitt og dvaldist sjö ár í Filistalandi.3Að sjö árunum liðnum kom konan aftur heim frá Filistalandi og lagði af stað til þess að biðja konung ásjár um hús sitt og akra.4Konungur var þá að tala við Gehasí, þjón guðsmannsins, og sagði: Seg mér af öllum stórmerkjunum, sem Elísa hefir gjört.5Og er hann var að segja konungi, hvernig hann hefði lífgað hinn dána, þá kom konan, er soninn átti, sem hann hafði lífgað, og bað konung ásjár um hús sitt og akra. Þá sagði Gehasí: Minn herra konungur! Þetta er konan, og þetta er sonur hennar, sá er Elísa lífgaði.6Konungur spurði konuna, og sagði hún honum frá. Fékk konungur henni einn af hirðmönnunum og sagði við hann: Sjá þú um, að hún fái aftur allt, sem hún á, svo og allan afrakstur akranna frá þeim degi, er hún fór úr landi, allt til þessa dags.7Elísa kom til Damaskus. Þá lá Benhadad Sýrlandskonungur sjúkur. Og er honum var sagt: Guðsmaðurinn er kominn hingað,8þá sagði konungur við Hasael: Tak með þér gjöf nokkra og far til fundar við guðsmanninn og lát hann ganga til frétta við Drottin, hvort ég muni aftur heill verða af sjúkleik þessum.9Hasael fór þá til fundar við hann og tók með sér gjöf nokkra, alls konar gersemar úr Damaskus, klyfjar á fjörutíu úlfalda. Og er hann kom, gekk hann fyrir hann og mælti: Sonur þinn, Benhadad Sýrlandskonungur, sendir mig til þín og lætur spyrja: Mun ég aftur heill verða af sjúkleik þessum?10Elísa svaraði honum: Far og seg honum: Víst munt þú heill verða, þótt Drottinn hafi birt mér, að hann muni deyja.11Og guðsmaðurinn starði fram fyrir sig og skelfdist harla mjög og grét.12Þá sagði Hasael: Hví grætur þú, herra minn? Hann svaraði: Af því að ég veit, hvílíkt böl þú munir búa Ísraelsmönnum. Þú munt leggja eld í víggirtar borgir þeirra, drepa æskumenn þeirra með sverði, slá ungbörnum þeirra niður við og rista á kvið þungaðar konur þeirra.13Hasael svaraði: Hvað er þjónn þinn, hundurinn sá, að hann megi vinna slík stórvirki? Þá mælti Elísa: Drottinn hefir sýnt mér þig svo sem konung yfir Sýrlandi.14Síðan fór Hasael burt frá Elísa, og er hann kom til herra síns, sagði konungur við hann: Hvað sagði Elísa við þig? Hann svaraði: Hann sagði mér að þú mundir áreiðanlega heill verða.15En daginn eftir tók Hasael ábreiðu, dýfði henni í vatn og breiddi hana yfir andlit honum, svo að hann kafnaði. Og Hasael tók ríki eftir hann.16Á fimmta ríkisári Jórams Akabssonar Ísraelskonungs varð Jóram Jósafatsson konungur í Júda.17Hann var þrjátíu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og átta ár ríkti hann í Jerúsalem.18Hann fetaði í fótspor Ísraelskonunga, eins og Akabs ætt gjörði, því að hann var kvæntur dóttur Akabs. Þannig gjörði hann það, sem illt var í augum Drottins.19En Drottinn vildi ekki afmá Júda, vegna Davíðs þjóns síns, samkvæmt því, er hann hafði heitið honum, að gefa honum ávallt lampa fyrir augliti hans.20Á hans dögum brutust Edómítar undan yfirráðum Júda og tóku konung yfir sig.21Þá fór Jóram með öllu vagnliðinu yfir til Saír. Hann tók sig upp um nóttina og barði á Edómítum, sem héldu honum í herkví, svo og á foringjum vagnliðsins, og flýði liðið til heimkynna sinna.22Þannig brutust Edómítar undan yfirráðum Júda, og er svo enn í dag. Þá braust og Líbna undan um sama leyti.23Það sem meira er að segja um Jóram og allt sem hann gjörði, það er ritað í Árbókum Júdakonunga.24Og Jóram lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í borg Davíðs. Og Ahasía sonur hans tók ríki eftir hann.25Á tólfta ríkisári Jórams Akabssonar Ísraelskonungs tók ríki Ahasía, Jóramsson Júdakonungs.26Ahasía var tuttugu og tveggja ára gamall, þá er hann varð konungur, og ríkti hann eitt ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Atalía, sonardóttir Omrí Ísraelskonungs.27Hann fetaði í fótspor Akabs ættar og gjörði það sem illt var í augum Drottins, eins og ætt Akabs, því að hann var í mægðum við ætt Akabs.28Ahasía fór herför með Jóram Akabssyni í móti Hasael Sýrlandskonungi til Ramót í Gíleað, en Sýrlendingar særðu Jóram.29Þá sneri Jóram konungur aftur til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum við Rama, þá er hann barðist við Hasael Sýrlandskonung. En Ahasía Jóramsson Júdakonungur fór ofan til Jesreel til þess að vitja um Jóram Akabsson, af því að hann var sjúkur.

8.2 Fara út landi Rut 1.1 – sjö ára hallæri 1Mós 41.25-32
8.3 Biðja um hjálp 2Kon 6.26+
8.8 Gjöf 2Kon 5.5 – leita svara 2Kon 3.11; 2Mós 18.15; 1Sam 9.9; 1Kon 22.8
8.9 Ná sér 2Kon 1.2
8.12 Hann grét Jer 4.16-20; 13.17; 14.17; Lúk 19.41-44 – hvílíkt böl 2Kon 10.32-33; 12.18; 13.3-7
8.13 Konungur yfir Aram 1Kon 19.15
8.20 Uppreisn í Edóm 1Mós 27.40; sbr 1Kon 22.48
8.21 Til búða sinna 1Kon 8.66; 12.16
8.28 Ramót í Gíleað 1Kon 22.1-38