1Með því að vér höfum þessa þjónustu á hendi fyrir miskunn Guðs, þá látum vér ekki hugfallast.2Vér höfnum allri skammarlegri launung, vér framgöngum ekki með fláttskap né fölsum Guðs orð, heldur birtum vér sannleikann, og fyrir augliti Guðs skírskotum vér til samvisku hvers manns um sjálfa oss.3En ef fagnaðarerindi vort er hulið, þá er það hulið þeim, sem glatast.4Því guð þessarar aldar hefur blindað huga hinna vantrúuðu, til þess að þeir sjái ekki ljósið frá fagnaðarerindinu um dýrð Krists, hans, sem er ímynd Guðs.5Ekki prédikum vér sjálfa oss, heldur Krist Jesú sem Drottin, en sjálfa oss sem þjóna yðar vegna Jesú.6Því að Guð, sem sagði: Ljós skal skína fram úr myrkri! hann lét það skína í hjörtu vor, til þess að birtu legði af þekkingunni á dýrð Guðs, eins og hún skín frá ásjónu Jesú Krists.7En þennan fjársjóð höfum vér í leirkerum, til þess að ofurmagn kraftarins sé Guðs, en ekki frá oss.8Á allar hliðar erum vér aðþrengdir, en þó ekki ofþrengdir, vér erum efablandnir, en örvæntum þó ekki,9ofsóttir, en þó ekki yfirgefnir, felldir til jarðar, en tortímumst þó ekki.10Jafnan berum vér með oss á líkamanum dauða Jesú, til þess að einnig líf Jesú verði opinbert í líkama vorum.11Því að vér, sem lifum, erum jafnan framseldir til dauða vegna Jesú, til þess að líf Jesú verði opinbert í dauðlegu holdi voru.12Þannig er dauðinn að verki í oss, en lífið í yður.13Vér höfum sama anda trúarinnar sem skrifað er um í ritningunni: Ég trúði, þess vegna talaði ég. Vér trúum líka og þess vegna tölum vér.14Vér vitum, að hann, sem vakti upp Drottin Jesú, mun einnig uppvekja oss ásamt Jesú og leiða oss fram ásamt yður.15Allt er þetta yðar vegna, til þess að náðin verði sem mest og láti sem flesta flytja þakkargjörð Guði til dýrðar.16Fyrir því látum vér ekki hugfallast. Jafnvel þótt vor ytri maður hrörni, þá endurnýjast dag frá degi vor innri maður.17Þrenging vor er skammvinn og léttbær og aflar oss eilífrar dýrðar sem stórum yfirgnæfir allt.18Vér horfum ekki á hið sýnilega, heldur hið ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýnilega eilíft.
4.6 Ljós 1Mós 1.3; Jes 9.1
4.7 Í leirkerum 2Kor 12.7-10; Gal 4.14; sbr 1Mós 2.7; Róm 9.21-23; 1Kor 15.47; 1Þess 4.4
4.8-12 Aðþrengdur, læt ekki bugast Róm 8.36-37; 1Kor 15.31; 2Kor 1.4,8-11; 6.4-5; 7.5; 11.23-33; Fil 3.10
4.13 Ég trúði … Slm 116.10
4.14 Uppvekja ásamt Jesú Róm 8.11; 1Kor 6.14; 15.5,20
4.17 Þrengingin aflar dýrðar Róm 8.17-18; 1Pét 1.6-7
4.18 Hið sýnilega og hið ósýnilega Kól 1.16; 2Kor 5.7; Heb 11.1,3