1Þá söng Móse og Ísraelsmenn Drottni þennan lofsöng: Ég vil lofsyngja Drottni, því að hann hefir sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann niður í hafið.2Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mitt hjálpræði. Hann er minn Guð, og ég vil vegsama hann, Guð föður míns, og ég vil tigna hann.3Drottinn er stríðshetja, Drottinn er hans nafn.4Vögnum Faraós og herliði hans varpaði hann í hafið, og hinir völdustu kappar hans drukknuðu í Hafinu rauða.5Undirdjúpin huldu þá, þeir sukku niður í sjávardjúpið eins og steinn.6Þín hægri hönd, Drottinn, hefir sýnt sig dýrlega í krafti, þín hægri hönd, Drottinn, sundurkremur fjandmennina.7Og með mikilleik þinnar hátignar leggur þú mótstöðumenn þína að velli, þú útsendir þína reiði, og hún eyðir þeim eins og hálmleggjum.8Og fyrir blæstri nasa þinna hlóðust vötnin upp, rastirnar stóðu eins og veggur, öldurnar stirðnuðu mitt í hafinu.9Óvinurinn sagði: Ég skal elta þá, ég skal ná þeim, ég skal skipta herfangi, ég skal skeyta skapi mínu á þeim, ég skal bregða sverði mínu, hönd mín skal eyða þeim.10Þú blést með þínum anda, hafið huldi þá, þeir sukku sem blý niður í hin miklu vötn.11Hver er sem þú, Drottinn, meðal guðanna? Hver er sem þú, dýrlegur að heilagleik, dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?12Þú útréttir þína hægri hönd, jörðin svalg þá.13Þú hefir leitt fólkið, sem þú frelsaðir, með miskunn þinni, þú fylgdir því með þínum krafti til þíns heilaga bústaðar.14Þjóðirnar heyrðu það og urðu felmtsfullar, ótti gagntók íbúa Filisteu.15Þá skelfdust ættarhöfðingjarnir í Edóm, hræðsla greip forystumennina í Móab, allir íbúar Kanaanlands létu hugfallast.16Skelfingu og ótta sló yfir þá. Fyrir mikilleik þíns armleggs urðu þeir hljóðir sem steinninn, meðan fólk þitt, Drottinn, fór leiðar sinnar, meðan fólkið, sem þú hefir aflað þér, fór leiðar sinnar.17Þú leiddir þá inn og gróðursettir þá á fjalli arfleifðar þinnar, þeim stað, sem þú, Drottinn, hefir gjört að þínum bústað, þeim helgidóm, sem þínar hendur, Drottinn, hafa reist.18Drottinn skal ríkja um aldur og að eilífu!19Þegar hestar Faraós ásamt vögnum hans og riddurum fóru út í hafið, lét Drottinn vötn sjávarins flæða yfir þá, en Ísraelsmenn gengu á þurru mitt í gegnum hafið.20Þá tók Mirjam spákona, systir Arons, bumbu í hönd sér, og allar konurnar gengu á eftir henni með bumbum og dansi.21Og Mirjam söng fyrir þeim: Lofsyngið Drottni, því að hann hefir sig dýrlegan gjört, hestum og riddurum steypti hann í hafið.22Móse lét Ísrael hefja ferð sína frá Sefhafinu, og héldu þeir til Súr-eyðimerkur. Gengu þeir þrjá daga um eyðimörkina og fundu ekkert vatn.23Þá komu þeir til Mara, en þeir gátu ekki drukkið vatnið fyrir beiskju, því að það var beiskt. Fyrir því var sá staður kallaður Mara.24Þá möglaði fólkið móti Móse og sagði: Hvað eigum vér að drekka?25En hann hrópaði til Drottins, og vísaði Drottinn honum þá á tré nokkurt. Kastaði hann því í vatnið, og varð vatnið þá sætt. Þar setti hann þeim lög og rétt, og þar reyndi hann þá.26Og hann sagði: Ef þú hlýðir gaumgæfilega raust Drottins Guðs þíns og gjörir það, sem rétt er fyrir honum, gefur gaum boðorðum hans og heldur allar skipanir hans, þá vil ég engan þann sjúkdóm á þig leggja, sem ég lagði á Egypta, því ég er Drottinn, græðari þinn.27Síðan komu þeir til Elím. Þar voru tólf vatnslindir og sjötíu pálmar, og settu þeir búðir sínar þar við vatnið.

15.1 Söngur Móse Jes 43.21; Slm 105.43; 106.12; SSal 10.20-21; Opb 15.3
15.2 Styrkur minn og lofsöngur Jes 12.2; Slm 118.14
15.3 Drottinn er stríðshetja sbr Jer 21.5; Slm 46.10; 76.4 – Drottinn er nafn hans 2Mós 3.15+
15.5 Sökkva eins og steinn Jer 51.63-64; Opb 18.21
15.7 Gleypir eins og hálm Jes 5.24; Ób 18; Nah 1.10
15.11 Hver er sem þú, Drottinn? 5Mós 3.24; Slm 86.8
15.13 Fólkið frelsað 2Mós 6.6
15.14 Titra Slm 48.5-7
15.18 Drottinn er konungur Slm 95.3; 96.10; 97.1; 98.6; 99.1
15.20 Með trumbuslætti og dansi Dóm 11.34; 1Sam 18.6; 2Sam 6.5
15.23 Til Mara 4Mós 33.8
15.24 Möglun fólksins 2Mós 14.11+
15.25 Vatnið varð ferskt Sír 38.5; sbr 2Kon 2.19-22; Esk 47.8 – lög og reglur Jós 24.25; 1Sam 30.25
15.26 Ef þú hlýðir 5Mós 7.12-15
15.27 Til Elím 4Mós 33.9