Lofsöngur Mósis. Ferð Gyðinga til Mara og Elim.

1Þá söng Móses og Ísraelsmenn Drottni þenna lofsöng, og sögðu:
Eg vil lofsyngja Drottni, því hann hefir sig með dásemdum dýrðlegan gjört; hestum og riddurum hefir hann steypt niður í hafið.2Drottinn er mín vegsemd og lofsöngur; hann var mitt hjálpræði; hann er minn Guð, hann vil eg prísa; hann er míns föðurs Guð, hann vil eg upphefja.3Drottinn er stríðshetja, Drottinn er hans nafn.4Vögnum og herliði faraós varpaði hann í hafið; hans útvöldu herstjórar sukku í Hafinu rauða.5Vötnin huldu þá; þeir sukku niður í djúpið, eins og steinn.6Þín hægri hönd, Drottinn, hefir auðsýnt sig dýrðlega í krafti; þín hægri hönd, Drottinn, sundurkremur fjandmanninn.7Með mikilleik þinnar hátignar afmáir þú mótstöðumenn þína; þú útsendir þína reiði, og hún eyðir þeim, eins og hálmleggjum.8Við þinn andardrátt belgdust vötnin upp; rastirnar stóðu eins og veggur; bylgjurnar stirðnuðu mitt í hafinu.9Óvinurinn sagði: eg skal elta þá, eg skal ná þeim, eg skal skipta herfanginu; eg skal skeyta skapi mínu á þeim, eg skal bregða mínu sverði, og mín hönd skal eyðileggja þá.10Þú blést með þínum anda: hafið huldi þá, þeir sukku sem blý niður í sjávardjúpið.11Drottinn, hvör er sem þú meðal guðanna? hvör er svo dýrðlegur að heilagleik sem þú, svo dásamlegur til lofsöngva, þú sem stórmerkin gjörir?12Þú útréttir þína hægri hönd,—jörðin gleypir þá,13af þinni miskunnsemi leiðir þú það fólk, sem þú hefir frelsað, og færir það með þínum styrk til þíns heilaga bústaðar.14Þjóðirnar heyra það, og skelfast, og óttinn gagntekur innbúa Filistalands.15Þá titra höfuðfeðurnir í Edomslandi, hræðsla grípur höfðingjana í Móabslandi, allir innbúar Kanaanslands verða felmtsfullir.16Falli þá skelfing og hræðsla yfir þá! þegi þeir, sem steinn, fyrir mikilleik þíns armleggs, meðan þitt fólk, Drottinn, fer leiðar sinnar, meðan það fólk, sem þú hefir útvegað þér, er á ferðinni.17Leið þá inn, og gróðurset þá á þínu erfðafjalli, á þeim stað, sem þú, Drottinn, hefir gjört að þínum bústað, til þess helgidóms, sem þínar hendur, Drottinn, hafa tilreitt.18Drottinn skal ríkja um aldur og að eilífu!19Því hestar faraós fóru með vögnum og riddurum út í hafið, og Drottinn lét vötn sjávarins flæða yfir þá, en Ísraelsmenn gengu á þurru mitt í gegnum hafið.
20Þá tók María spákona, systir Arons, bumbu í hönd sér og allar konurnar gengu á eftir henni með bumbum og dansleik.21Og María söng fyrir þeim: lofsyngið Drottni, því hann hefir sig með dásemdum dýrðlegan gjört; hestum og riddurum hefir hann niður steypt í hafið.22Síðan lét Móses Ísraelsmenn hefja ferð sína frá Hafinu rauða, og fóru þeir til eyðimerkurinnar Súr; gengu þeir 3 daga um öræfin, og fundu ekkert vatn.23Þá komu þeir til Mara; en þeir gátu ekki drukkið vatnið í Mara, af því það var beiskt, og fyrir þá skuld var sá staður kallaður Mara.24Þá möglaði fólkið móti Móses, og sagði: hvað eigum vér að drekka?25En hann kallaði til Drottins, og vísaði Drottinn honum þá á tré nokkurt; kastaði hann því í vatnið, og varð vatnið þá sætt. Þar setti Drottinn fólkinu lög og rétt, og þar reyndi hann fólkið,26og sagði: ef þú hlýðir gaumgæfilega raust Drottins Guðs þíns, og gjörir það sem rétt er fyrir honum, lætur hans boðorð þér í eyrum loða og heldur allar hans skipanir, þá vil eg öngvan þann sjúkdóm á þig leggja, sem eg lagði á Egyptaland, því eg em Drottinn, þinn græðari.
27Síðan komu þeir til Elíms; þar voru 12 uppsprettur og 7 pálmatré og settu þeir herbúðir sínar þar við vatnið.