1.) Ísak á að fórnfærast. 2.) Abraham fær nýtt fyrirheit.

11.) Og það skeði eftir þessa atburði, að Guð freistaði Abrahams og mælti til hans: Abraham! og hann ansaði: hér em eg!2Og hann sagði: láttu sjá! tak þú son þinn, þinn einkason, sem þú elskar, hann Ísak, og far þú í landið Moría, og offra honum þar sem brennifórn á því fjalli sem eg mun vísa þér á.3Og Abraham var snemma á fótum og söðlaði asna sinn, og tók með sér tvo af þrælum sínum, og Ísak son sinn, og hann klauf viðinn til brennifórnarinnar, tók sig upp og hélt á stað, þangað sem Guð sagði honum.4Á þriðja degi sá Abraham staðinn álengdar.5Þá sagði Abraham til sinna þræla: verið hér hjá asnanum; en eg og sveinninn, við munum ganga þangað (sem eg bendi til) til að biðjast fyrir, og komum svo til ykkar aftur.6Og Abraham tók brennifórnarviðinn og lagði syni sínum, Ísak á herðar, en tók eldinn og hnífinn sér í hönd; og svo gengu þeir báðir saman.7Þá mælti Ísak við föður sinn Abraham: faðir minn! og hann svaraði: hér er eg, sonur minn. Og hann mælti: sjá! hér er eldurinn og viðurinn, en hvar er sauðurinn til brennifórnarinnar?8Og Abraham sagði: Guð mun sjá fyrir sauð til brennifórnarinnar, sonur minn! og svo gengu þeir tveir einir saman.9Og þeir komu á staðinn sem Guð hafði vísað á, og Abraham byggði þar altari, og lagði viðinn á, og batt son sinn Ísak og lagði hann upp á altarið, ofan á viðinn.10Og Abraham rétti út sína hönd og tók hnífinn, til að slátra syni sínum.11Þá kallaði engill Drottins til hans af himni, og mælti: Abraham! Abraham! og hann ansaði: hér em eg.12Hann sagði þá: legg þú ekki hönd á sveininn! og gjörðu honum ekkert! því nú veit eg að þú óttast Guð, að þú synjaðir mér ekki um þinn son, þinn einasta.13Þá varð Abraham litið við, og sjá! hrútur hékk á bakvið hann á hornunum í runna nokkrum; og Abraham fór og tók hrútinn og offraði honum, sem brennifórn, í stað sonar síns.14Og Abraham kallaði þennan stað: Drottinn sér ráð.15Og engill Drottins kallaði í annað sinn af himni til Abrahams,16og mælti: eg sver við sjálfan mig, segir Drottinn, að fyrst þú gjörðir slíkt, og sparaðir ekki við mig þinn son, þinn eina son,17þá skal eg blessa þig, og margfalda þitt kyn, sem stjörnur á himni, sem sand á sjávarströnd. Og þín ætt skal ná borgarhliðinu sinna óvina.18Og af þinni ætt skulu allar þjóðir á jörðunni blessun hljóta, vegna þess þú hlýddir minni raust.19Og Abraham fór til baka til sinna þræla. Og þeir tóku sig upp, og urðu samferða til Berseba; því Abraham bjó þá í Berseba.
20Og það skeði eftir þessa atburði að Abraham var sagt: sjá! Milka hefir fætt bróður þínum Nahor börn.21Us sinn frumburð og Bús hans bróður, og Kemuel, föður Arams,22og Kesed og Kafo og Fildas, og Idlaf og Betuel.23Og Betuel gat Rebekku; þessa átta fæddi Milka, Nahor bróður Abrahams.24Og hans hjákona, sem hét Reuma, hún ól líka: Teda, og Gaham og Tabus og Maaka.