Jakob giftist tveimur dætrum Labans, eignast syni með Leu, verður auðugur.

1Og Jakob fór af stað og gekk til lands austursins sona.2Þar litaðist hann um, og sjá! þar var brunnur á mörkinni, og við hann lágu þrjár sauðahjarðir, því þeim átti að vatna við þennan sama brunn; en mikill steinn lá yfir munna brunnsins.3Þangað átti að reka allar hjarðirnar, velta svo steininum frá munna brunnsins og vatna fénaðinum, síðan var steinninn látinn aftur yfir munna brunnsins á sinn stað.4Þá sagði Jakob til þeirra: bræður mínir! hvaðan eruð þér? og þeir sögðu: vér erum frá Haran.5Og hann mælti til þeirra: þekkið þér Laban Nahorsson. Og þeir sögðu: vér þekkjum hann.6Og hann mælti til þeirra: gengur honum vel? þeir svöruðu: vel gengur honum, og sjá! þarna kemur Rakel dóttir hans með sauðina.7Og hann mælti: sjá! enn er mikið dags eftir; og ekki kominn tími til að reka féð saman; vatnið sauðunum og rekið þá aftur á beit!8Og þeir svöruðu: vér megum það ekki fyrr en allar hjarðirnar koma saman og menn velta steininum frá brunnsmynninu, þá er fénu vatnað.9Í því hann ræddi þetta við þá, kom Rakel með sauði föður síns, því hún gætti þeirra.10En sem Jakob sá Rakel, dóttur Labans móðurbróður síns, og sauði Labans móðurbróður síns, þá fór hann til, og velti steininum frá munna brunnsins, og vatnaði sauðum Labans, móðurbróður síns.11Og Jakob kyssti Rakel, og grét hástöfum.
12Og Jakob sagði Rakel frá, að hann væri ættingi föður hennar, sonur Rebekku; en hún hljóp og sagði þetta föður sínum.13Og það skeði, þá Laban frétti til Jakobs, systur sonar síns, hljóp hann á móti honum, og tók hann sér í faðm, og minntist við hann, og leiddi hann í sitt hús; og hann (Jakob) sagði Laban frá öllum þessum atburðum.14Þá sagði Laban til hans: sannarlega ertu mitt hold og bein! og hann var hjá honum heilan mánuð.
15Og Laban sagði við Jakob: skyldir þú þjóna mér fyrir ekkert, þó þú sért minn ættingi? segðu til, hver þín laun skulu vera!16En Laban átti tvær dætur, sú eldri hét Lea, en hin yngri hét Rakel.17Lea var augndöpur, en Rakel var bæði vel vaxin og fríð sýnum.18Og Jakob elskaði Rakel og sagði: eg vil þjóna þér í 7 ár fyrir Rakel þína yngri dóttur.19Laban svaraði: það er betra að eg gefi þér hana en að eg gefi hana öðrum manni. Vertu hjá mér!20svo vann Jakob fyrir Rakel í 7 ár, og þótti honum sem fáir dagar væru, því hann elskaði hana.21Og Jakob sagði við Laban: fáðu mér nú konu mína því tími er til kominn að eg giftist henni.22Þá bauð Laban öllum mönnum í þeim stað og hélt veislu.23En um kvöldið tók Laban dóttur sína Leu, og leiddi hana inn til hans og hann lá með henni.24Og Laban fékk Leu dóttur sinni, ambátt sína Silpu, að hún væri hennar þerna.25En um morguninn, sjá! þá var það Lea! og hann sagði til Labans: því gjörðir þú mér þetta! hefi eg ekki unnið þér fyrir Rakel? því hefur þú svikið mig!26Og Laban sagði: það er ekki siður hér að gifta frá sér þá yngri dóttur heldur en þá frumgetnu.27Haltu nú þessa, vikuna út, þá skulum vér gefa þér hina líka fyrir þá vinnu sem þú munt vinna mér í önnur 7 ár.28Og Jakob gjörði svo, og hélt út vikuna. svo gifti Jakob honum dóttur sína Rakel.29Og hann fékk dóttur sinni Rakel ambátt sína Bilu fyrir þernu.30Og hann lagðist og með Rakel og elskaði hana meir en Leu. Og hann vann Laban enn nú í 7 ár.31En sem Drottinn sá að Lea var fyrirlitin, þá gjörði hann hana frjóvsama, en Rakel var ófrjóvsöm.32Og Lea fékk getnað og fæddi son, og kallaði hann Ruben (sjá son) því hún sagði: Drottinn hefur séð mínar raunir, því nú mun maðurinn minn elska mig.33Og hún varð ólétt aftur og fæddi son, og hún sagði: Drottinn hefur heyrt að eg var fyrirlitin, því hefur hann líka gefið mér þennan; og hún kallaði hann Simeon (heyrn).34Og enn varð hún ólétt og fæddi son, þá sagði hún: nú mun maðurinn minn hænast að mér, því eg hefi fætt honum þrjá syni, því kallaði hún hann Levi (meðfylgd).35Og enn varð hún þunguð og fæddi son og sagði: nú vil eg vegsama Drottin, því kallaði hún hann Juda (Guð vegsamaður) og hún hætti að eiga börn.