Umkvörtun að menn séu vondir.

1Til hljóðfærameistarans. Sálmur Davíðs. Dárinn segir í sínu hjarta: þar er enginn Guð. Vond og viðurstyggileg er þeirra breytni. Þar er enginn sem gjörir gott.2Drottinn lítur af himni niður yfir mannanna börn, að hann sjái hvört nokkur er hygginn, sem leiti Guðs.3Allir eru þeir fallnir frá, allir spilltir orðnir, þar er enginn sem gjörir gott, ekki einn.4Munu þeir þá aldrei komast til viðurkenningar, allir þeir sem rangt gjöra, þeir sem uppeta mitt fólk, eins og og þeir eta brauð, og ákalla ekki Drottin?5Já! mikil skelfing mun yfir þá koma, því Guð er með kynslóð hinna réttlátu.6Þér gjörið gys að ráði hins aðþrengda, en Drottinn er hans athvarf.7Hvör mun frá Síon gefa Ísrael frelsi? Þegar Drottinn flytur til baka sitt hertekna fólk, þá mun Jakob fagna og Ísrael gleðjast.