Jesús er leiddur fyrir þann andlega rétt; fyrir þann veraldlega rétt.

1Þegar Jesús hafði talað þetta, gekk hann út með sínum lærisveinum yfir um lækinn Kedron. Þar var grasgarður, þangað gekk Jesús og hans lærisveinar.2En Júdas, sem sveik hann, þekkti og staðinn, því Jesús var vanur að koma þangað með sínum lærisveinum.3Þegar nú Júdas hafði tekið með sér stríðsmannaflokkinn og þénara frá prestahöfðingjunum og faríseunum, kom hann þangað með blysum, skriðbyttum og vopnum.4En Jesús, sem vissi allt, er yfir hann mundi koma, gekk fram og sagði: að hvörjum leitið þér?5þeir svöruðu honum: að Jesú frá Nasaret. Jesús sagði við þá: eg em hann. En Júdas, sem sveik hann, stóð hjá þeim.6Þegar hann þá sagði til þeirra: eg em hann, hopuðu þeir á hæl og féllu til jarðar.7Hann spurði þá þar fyrir í annað sinn: að hvörjum leitið þér? en þeir sögðu: að Jesú frá Nasaret.8Jesús svaraði: eg sagði yður að eg væri sá hinn sami; ef að þér þá leitið mín, leyfið þessum að fara;9svo það orð rættist, sem Jesús hafði talað: engum glataði eg af þeim, sem þú gafst mér.10En Símon Pétur, sem hafði sverð, rykkti því, hjó þjón prestahöfðingjans og sneið af honum hægra eyrað; en sá þjón hét Malkus.11Jesús sagði þá til Péturs: slíðra þú sverð þitt! skylda eg ekki drekka þann kaleik, sem minn Faðir hefir mér gefið?12Flokkurinn, fyrirliðinn og þjónar Gyðinganna gripu nú Jesúm og bundu hann.13Og leiddu hann fyrst til Hannas, því hann var tengdafaðir Kaífasar, sem það árið var æðsti prestur.14En Kaífas var sá, sem gefið hafði Gyðingum það atkvæði, að gagnlegt væri að einn maður væri líflátinn fyrir þjóðina.15En Símon Pétur fylgdi Jesú og annar lærisveinn, en sá lærisveinn var kunnugur þeim æðsta presti og gekk inn með Jesú í hús prestahöfðingjans, en Pétur stóð fyrir utan dyrnar.16Þá gekk út hinn annar lærisveinn, sem kunnugur var prestahöfðingjanum, talaði við þá þernu, sem gætti dyranna og leiddi Pétur inn.17Þá sagði þernan sem gætti dyranna, við Pétur: ertú og einn af lærisveinum þessa manns? hann svaraði: ekki em eg.18En þar stóðu þrælarnir og þénararnir og vermdu sig, því kalt var; en Pétur stóð hjá þeim og vermdi sig.19Þá spurði prestahöfðinginn Jesúm að hans lærisveinum og hans kenningu.20Jesús svaraði honum: eg hefi talað opinberlega fyrir heiminum; eg hefi ætíð kennt í samkundunum og í musterinu, hvar allir Gyðingar saman koma, og ekkert hefi eg talað í leyni, hví spyr þú mig?21spyr þú þá, sem heyrt hafa hvað eg hefi talað við þá; sjá! þessir vita hvað eg hefi sagt.22En er Jesús talaði þetta, gaf einn af þénurunum, sem hjá stóð, Jesú kinnhest og sagði: svarar þú svona prestahöfðingjanum?23Jesús svaraði honum: hafi eg talað rangt, þá sannaðu það, en hafi eg talað rétt, hví slær þú mig?24Hannas sendi hann bundinn til prestahöfðingjans Kaífasar. En Símon Pétur stóð og vermdi sig.25Þeir sögðu þá við þann: ert þú og einn af hans lærisveinum? hann neitaði og sagði: ekki em eg.26Einn af þjónum prestahöfðingjans, frændi þess, sem Pétur hjó af eyrað, segir þá: sá eg þig ekki í grasgarðinum með honum?27þá neitaði Pétur enn aftur og strax gól haninn.
28Nú leiddu þeir Jesúm frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans, en það var snemma morguns, og þeir gengu ekki sjálfir inn í höllina, svo þeir saurguðust ekki, heldur mættu neyta páskalambsins.29Pílatus gekk þá út til þeirra og sagði: hvörja ákæru færið þér gegn þessum manni?30Þeir svöruðu og sögðu: væri þessi ekki illræðismaður, þá hefðum vér ekki fært þér hann.31Pílatus sagði þá við þá: takið þér hann og dæmið hann eftir yðar lögum. Þá sögðu Gyðingar til hans: oss leyfist ekki að lífláta nokkurn,32svo það rættist, sem Jesús hafði fyrirfram sagt um það, hvaða dauðdaga hann mundi fá.33Þá gekk Pílatus aftur inn í höllina, kallaði Jesúm til sín og sagði: ert þú Gyðingakonungurinn?34Jesús svaraði: talar þú þetta af sjálfum þér, eður hafa aðrir sagt þér það um mig?35Pílatus svaraði: er eg þá Gyðingur? þín þjóð og kennimannahöfðingjarnir færðu mér þig, hvað hefir þú aðhafst?36Jesús svaraði: mitt ríki er ekki af þessum heimi; væri mitt ríki af þessum heimi, þá hefðu mínir þénarar barist, svo eg kæmist ekki á vald Gyðinga; en nú er mitt ríki ekki þaðan.37Pílatus sagði þá við hann: ertú þá ekki konungur? Jesús svaraði: rétt segir þú að eg sé konungur; til þess em eg fæddur og til þess kom eg í heiminn að eg beri vitni sannleikanum og hvör, sem elskar sannleikann, sá hlýðir minni röddu.38Pílatus svaraði honum: hvað er sannleikur? og í því hann sagði þetta, gekk hann út aftur til Gyðinga og segir við þá: eg finn enga sök hjá honum;39en það er venja hjá yður, að eg á páskum gefi yður einn lausan. Viljið þér þá ekki að eg gefi yður nú lausan Gyðingakonunginn?40Þeir æptu þá allir á móti og sögðu: ekki þennan, heldur Barabbas; en Barabbas var stigamaður.