Þau 10 lagaboðorð. Boðorð um altarisgjörð.

1Drottinn talaði öll þessi orð, og sagði:
2eg er Drottinn, þinn Guð, sem útleiddi þig af Egyptalandi, út af þrældómshúsinu.3Þú mátt ekki dýrka hjáguði undir eins og mig;4þú mátt öngvar líkneskjur gjöra þér, eða nokkurar myndir eftir því sem er á himnum uppi, eður á jörðu niðri, eður í vötnum, eður undir jörðunni:5þú mátt ekki tilbiðja þær, og ekki dýrka þær, því eg Drottinn, þinn Guð, er vandlætissamur Guð, sem hegni misgjörðir feðranna, á börnunum í þriðja og fjórða lið, þeim sem mig hata,6en auðsýni miskunnsemi í þúsund liðu, þeim, sem elska mig og varðveita mín boðorð.7Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma, því Drottinn mun ekki láta þann óhegndan, sem brúkar hans nafn gálauslega.8Minnstu að halda hvíldardaginn heilagan!9Sex daga skaltu erfiða, og vinna alla vinnu þína;10en sjöundi dagurinn er hvíldardagur Drottins Guðs þíns, þá skalt þú ekkert verk vinna, og ekki sonur þinn eða dóttir, þræll eða ambátt, eða skepnur þínar, eða nokkur útlendingur, sem er innan borgarhliða þinna:11því á 6 dögum gjörði Drottinn himin og jörð og haf, og allt sem í þeim er, og hann hvíldist á hinum sjöunda degi; þess vegna blessaði Drottinn hvíldardaginn, og helgaði hann.12Heiðra föður þinn og móður þína, svo þú megir lengi lifa í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.13Þú skalt ekki mann vega.14Þú skalt ekki hórdóm drýgja.15Þú skalt ekki stela.16Þú skalt ekki bera ljúgvætti á móti þínum náunga.17Þú skalt ekki girnast kvinnu náunga þíns, ekki hans þræl eða hans ambátt, ekki hans uxa eða asna, eða nokkuð af því sem náunga þínum tilheyrir.
18Allt fólkið sá reiðarþrumurnar og eldsglossana og lúðurþytinn og fjallið rjúkanda; og er fólkið sá þetta, hörfaði það til baka og stóð langt frá.19Þeir sögðu þá til Móses: tala þú við oss, og vér skulum hlýða; en lát Guð ekki tala við oss, svo vér ekki deyjum.20Móses sagði til fólksins: óttist ekki! því Guð er kominn til þess að reyna yður, svo að hans ótti sé yður fyrir augum, til þess þér syndgið ekki.21Fólkið stóð þá langt frá, en Móses gekk inn í dimmuna, þar sem Guð var.
22Drottinn mælti við Móses: svo skaltu segja Ísraelsmönnum: þér hafið séð, að eg hefi talað til yðar af himnum.23Þér skuluð ekkert taka til jafns við mig; þér skuluð öngva guði tilbúa yður af silfri eða gulli.24Þú skalt byggja mér altari af torfi, og fórnfæra þar á þinni brennifórn og þakkarfórn, kvikfénaði þínum, smáum og stórum; allstaðar, þar sem eg læt prísa mitt nafn, vil eg koma til þín og blessa þig.25En ef þú vilt reisa mér altari af steinum, þá máttu ekki hlaða það af höggnu grjóti; því berir þú meitilinn (klöppuna) á það, þá vanhelgar þú það.26Þú mátt ekki um palla ganga upp að altari mínu, svo þín blygðun opinberist þar ekki.