Daníeli kastað í ljónagröf.

1Þá tók Daríus frá Medíalandi við ríkinu, og hafði þá tvo vetur um sextugt.2Daríus lét sér líka að setja yfir ríkið 120 þjóðjarla, og skipti þeim út um allt ríkið;3yfir þessa setti hann þrjá yfirhöfðingja, einn af þeim var Daníel; skyldu þjóðjarlarnir gjöra þeim skilagrein, svo konungur biði engan skaða.4En af því Daníel þessi bar af yfirhöfðingjunum og þjóðjörlunum, sökum þess hann hafði frábæra andagift, þá hugði konungur að setja hann yfir allt ríkið.5Þá leituðu yfirhöfðingjarnir að finna Daníeli eitthvað til saka, það er landstjórninni viðvéki, en gátu enga sök eða misgjörð fundið, því hann var trúr, svo ekkert afbrot eða misgjörð fannst í fari hans.6Þá sögðu þessir menn: vér munum ekkert fundið geta Daníeli þessum til saka, nema ef vér finnum honum eitthvað að sök í því, sem viðkemur átrúnaði hans.7Síðan þustu þessir yfirhöfðingjar og þjóðjarlar til konungsins, og sögðu svo til hans: Daríus konungur njóti langra lífdaga!8Öllum yfirhöfðingjum ríkisins, yfirjörlum, þjóðjörlum, ráðgjöfum og undirjörlum hefir komið ásamt um að láta þá konungs skipun út ganga og það forboð staðfesta, að hvör sem í 30 daga gjörir bæn sína til nokkurs guðs eða manns, nema til þín, konungur, þeim skal varpað í ljónagryfju.9Nú skaltu, konungur, staðfesta þetta forboð, og láta það skriflegt útganga, svo það, eftir órjúfanlegu lögmáli Meda og Persa, aldrei verði umbreytt.10Af þessum sökum lét Daríus konungur þetta forboð skriflegt útganga.11En er Daníel varð þess vísari, að þessi skipun var útgengin, gekk hann inn í hús sitt, þar hafði hann uppi í loftsalnum opna glugga, sem sneru móti Jerúsalemsborg; þá kraup hann á kné þrem sinnum á dag, bað til síns Guðs, og vegsamaði hann, eins og hann áður var vanur að gjöra.12Þá þustu þessir menn að, og fundu Daníel, þar sem hann var að biðja og ákalla sinn Guð.13Nú gengu þeir fyrir konunginn, og sögðu í trausti til hins konunglega forboðs: hefir þú ei látið það boð útganga, að hvör sem í 30 daga gjöri bæn sína til nokkurs guðs eða nokkurs manns, nema til þín, konungur, að þeim hinum sama skuli varpa í ljónagryfju? konungurinn svaraði og sagði: það stendur stöðugt, eftir órjúfanlegu lögmáli Meda og Persa.14Þá svöruðu þeir, og sögðu til konungsins: Daníel, einn af þeim herleiddu Gyðingum, skeytir hvörki um þig, konungur, né um það forboð, sem þú hefir látið skriflegt útganga, heldur gjörir bæn sína þrem sinnum á dag.15Þegar konungur heyrði þetta, þá féll honum það næsta illa, og lagði allan hug á að frelsa Daníel, og allt til sólarlags leitaði hann alls við, að hann fengi honum borgið.16En þá þustu hinir sömu menn til konungsins, og sögðu til hans: þú veist, konungur, að það eru lög hjá Medum og Persum, að ekki má raska því boði eða banni, sem konungur hefir sjálfur staðfest.17Þá bauð konungur að leiða Daníel fram, og kasta honum í ljónagryfjuna; en konungurinn sagði til Daníels: þinn Guð, sem þú dýrkar án afláts, hann frelsi þig!18Síðan var sóttur steinn og lagður fyrir grafarmunnann, og innsiglaði konungur hann sjálfur með sínum innsiglishring og með innsiglishringum stórhöfðingja sinna, til þess sú ráðstöfun, sem gjörð var við Daníel, skyldi ei raskast.19Eftir það gekk konungur heim til hallarinnar, var hann þar um nóttina og neytti einskis matar, og lét öngva af hjákonum sínum koma inn til sín, og varð honum ekki svefnsamt.20Undir eins og lýsti af degi, stóð konungur upp, og skundaði til ljónagryfjunnar,21og þegar hann kom að gröfinni, kallaði hann á Daníel með sorglegri raust; konungurinn tók til orða og sagði til Daníels: Daníel, þjón lifanda Guðs! þinn Guð, sem þú dýrkar án afláts, hefir þá megnað að frelsa þig frá ljónunum!22Daníel svaraði konunginum: njóti konungurinn langra lífdaga!23minn Guð sendi sinn engil til að afturloka munni ljónanna, svo þau skyldu mér ekki granda, sökum þess að eg eftir hans dómi er saklaus fundinn, eins og eg líka eftir þínum dómi, konungur, önga misgjörð hefi framið.24Þá varð konungurinn næsta glaður, og bauð að draga Daníel upp af gröfinni; var Daníel þá dreginn upp úr gröfinni, og fannst ekki að honum hefði neitt að skaða vorðið, því hann trúði sínum Guði.25Því næst bauð konungur að leiða fram þá menn, sem höfðu rægt Daníel, og kasta þeim í ljónagryfjuna með börnum þeirra og konum; og áður en þeir komust til botns í gryfjunni, hremmdu ljónin þá, og sundurmuldu öll þeirra bein.26Síðan ritaði Daríus konungur bréf öllum þjóðum í öllu sínu ríki, í hvaða landi sem þær voru og á hvörja tungu sem þær mæltu: „Yðar friður sé mikill!27það er mín skipun, að hvervetna þar sem mitt ríki yfir stendur, þá skulu menn hræðast og óttast Daníels Guð; því hann er lifandi Guð, og varir að eilífu, hans ríki kann ei til grunna að ganga, og hans veldi nær allt til heimsenda;28hann er sá, sem frelsar og varðveitir, hann gjörir tákn og furðuverk á himni og jörðu, hann frelsaði Daníel frá valdi ljónanna.“29Daníel var í miklu gengi, meðan þeir sátu að ríki Daríus og Sýrus hinn persiski.