Frumburðir helgaðir. Gyðingar ferðast til Etams. Skýstólpinn og eldstólpinn.

1Þvínæst talaði Drottinn við Móses, og sagði:2þú skalt helga mér alla frumburði, sem fyrst fæðast á meðal Ísraelsmanna, bæði af mönnum og fénaði; þeir skulu tilheyra mér!3Móses sagði til fólksins: verið minnugir þessa dags, á hvörjum þér genguð út af Egyptalandi, úr þrælahúsinu; því með voldugri hendi leiddi Drottinn yður út þaðan. Sýrð brauð má eigi eta.4Í dag farið þér af stað, í mánuðinum abíb ***);5og þegar Drottinn leiðir þig inn í land þeirra Kananíta, Hetíta, Amoríta, Hevíta og Jebúsíta, sem hann sór feðrum þínum að gefa þér, í það land er flýtur af mjólk og hunangi, þá skaltú halda þessa þjónustugjörð í þessum sama mánuði.6Sjö daga skaltú eta ósýrt brauð, og á hinum sjöunda degi skal vera hátíð Drottins.7Ósýrt brauð skal eta í sjö daga, ekkert sýrt brauð má sjást hjá þér, og ekki má heldur súrdeig sjást nokkurs staðar hjá þér innan þinna landamerkja.8Á þeim degi skaltú gjöra syni þínum grein hér fyrir, og segja: fyrir þá sök að Drottinn fór þannig með mig, þá eg fór út af Egyptalandi (held eg þessa hátíð);9og þetta skal vera þér áþreifanlegt merki og augsýnileg minning, svo að lögmál Drottins sé þér æ á vörum, því með voldugri hendi leiddi Drottinn þig út af Egyptalandi;10og þessa skipun skaltu halda á ákveðnum tíma ár frá ári.
11Þegar Drottinn leiðir þig inn í land Kananíta, eins og hann sór þér og þínum feðrum, og gefur þér landið,12þá skaltu eigna Drottni allt það sem fyrst fæðist; og allir frumburðir, sem koma undan þeim fénaði, er þú átt, heyra Drottni til.13Alla frumburði undan ösnum skaltu leysa með lambi; leyfir þú ekki, skaltú brjóta þá úr hálsliðum; en alla frumburði manna meðal þinna barna, þá skaltu leysa.14Og þegar sonur þinn spyr þig á síðan, og segir: hvað á þetta að þýða? þá svara honum: með voldugri hendi leiddi Drottinn oss út af Egyptalandi, úr þrælahúsinu;15því þegar faraó synjaði þverlega að láta oss lausa, þá sló Drottinn alla frumburði í Egyptalandi, bæði frumburði mannanna og frumburði fénaðarins: þess vegna fórnfæri eg Drottni öllu karlkyns, sem fyrst fæðist, en eg leysi frumburði barna minna;16þetta skal vera þér áþreifanlegt merki og augsýnileg minning þess, að Drottinn útleiddi oss af Egyptalandi með voldugri hendi.
17Þegar faraó hafði gefið fólkinu burtfararleyfi, þá leiddi Guð þá ekki á leið til Filistalands, þó sú leið væri skemmst; því Guð sagði: vera má að fólkið iðrist eftir, þegar það sér landsherinn, og snúi svo aftur til Egyptalands;18heldur sneri Guð fólkinu fram að Hafinu rauða á leið til eyðimerkurinnar; höfðu þó Ísraelsmenn farið vígbúnir af Egyptalandi.19Móses tók með sér bein Jóseps, því hann hafði tekið eið *) af Ísraelsmönnum, og sagt: Guð mun vitja yðar, og þá skuluð þér færa bein mín héðan burt með yður.
20Þeir tóku sig upp frá Súkkot, og settu herbúðir sínar í Etam á takmörkum eyðimerkurinnar.21Drottinn gekk fyrir þeim á daginn í skýstólpa **) til að vísa þeim veg, en á næturnar í eldstólpa til að lýsa þeim, svo þeir gæti ferðast nótt sem dag;22og skýstólpinn veik ekki frá fólkinu á daginn, og ekki heldur eldstólpinn á nóttunni.

***) Svarar til síðara hluta maii og fyrrahluta aprílismánaðar. *) Gen. 50,25. **) 1 Cor. 10,1.