Fyrsta undur: vatn verður að blóði.

1Drottinn sagði við Móses: eg hefi sett þig sem Guð yfir faraó, en Aron bróðir þinn skal vera þinn spámaður (túlkur).2Þú skalt tala allt það eg býð þér, en Aron bróðir þinn skal flytja við faraó, að hann gefi Ísraelsmönnum fararleyfi úr landi sínu.3En eg vil forherða hjarta faraós, og fremja margar jarteiknir og stórmerki í Egyptalandi.4faraó mun ekki skipast við orð ykkar, og skal eg þá leggja mína hönd á Egyptaland, og útleiða þaðan mína herskara, Ísraelsniðja, með stórum refsidómum;5skulu Egyptar fá að vita, að eg em Drottinn, þá eg útrétti mína hönd yfir Egyptaland og útleiði Ísraelsniðja þaðan.6Þeir Móses og Aron gjörðu nú sem Drottinn hafði þeim um boðið;7var Móses áttræður, en Aron hafði 3 um áttrætt, þá þeir töluðu við faraó.
8Drottinn talaði við þá Móses og Aron, og sagði:9ef faraó skorar á ykkur, að þið skulið sýna jarteiknir ykkar, þá seg til Arons: tak staf þinn og kasta honum frammi fyrir faraó, og skal þá stafurinn verða að höggormi.10Þá gengu þeir Móses og Aron inn fyrir faraó, og gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið þeim; og kastaði Aron staf sínum frammi fyrir faraó og þjónum hans, og varð stafurinn að höggormi.11Þá kallaði faraó á vitringana og töframennina, og þessir forneskjumenn Egypta gjörðu slíkt hið sama með töfrum sínum:12kastaði hver þeirra staf sínum, og urðu stafirnir að höggormum; en stafur Arons gleypti þeirra stafi.13Þá forhertist hjarta faraós, svo hann skipaðist ekki við orð þeirra, eins og Drottinn hafði fyrir sagt.
14Þá sagði Drottinn til Mósis: hjarta faraós er ósveigjanlegt; hann vill ei láta fólkið laust.15Far þú á morgun á fund faraós; hann mun ganga ofan að ánni, skaltu þá ganga til móts við hann á árbakkanum, og haf í hendi þér staf þann, er varð að höggormi.16Þú skalt segja til hans: Drottinn, Guð ebreskra manna, hefir sent mig til þín og hann lætur segja þér: gef mínu fólki orlof, að það megi þjóna mér á eyðimörku; en þú hefir ekki hér til viljað við það skipast.17Svo segir Drottinn: hér af skaltu við kannast, að eg em Drottinn: með þeim staf, sem eg hef í minni hendi, lýst eg á vatnið, sem er í ánni, og þá skal það verða að blóði;18fiskarnir í ánni skulu deyja, og vatnið í ánni skal fúlna, svo að egypska menn skal velgja við að drekka af því.
19Drottinn mælti við Móses: Seg til Arons: tak staf þinn, og rétt þína hönd út yfir vötn Egyptalands, yfir árnar, fljótin, tjarnirnar og yfir öll stöðuvötn, og skulu þau þá verða að blóði, og um allt Egyptaland skal blóð vera bæði í tréílátum og steinkerum.20Móses og Aron gjörðu, sem Drottinn hafði boðið þeim; hann reiddi upp stafinn og laust á vatnið í ánni, að ásjáanda faraó og hans þjónum, og allt í ánni varð að blóði;21fiskarnir í ánni dóu, og vatnið í ánni varð svo stækt, að Egyptar gátu ekki drukkið það, og blóð varð í öllu Egyptalandi.22En þar eð forneskjumenn egypskra gjörðu slíkt hið sama með töfrum sínum, þá harðnaði hjarta faraós, svo hann gegndi þeim ekki, eins og Drottinn hafði fyrir sagt;23sneri faraó þá heim til hallarinnar, og lét sér þetta ekki heldur til hjarta ganga.24En allir egypskir menn grófu í kringum ána eftir neysluvatni, því þeir gátu eigi drukkið vatnið úr ánni;25liðu svo sjö samfleyttir dagar, eftir það að Drottinn hafði lostið ána.