Jetró leggur Mósi ráð.

1En er Jetró, kennimaður í Midíanslandi, tengdafaðir Mósis, heyrði allt það sem Guð hafði gjört Móses og sínu fólki Ísraelsmönnum, að Drottinn hafði leitt Ísraelsmenn út af Egyptalandi,2þá tók Jetró, tengdafaðir Mósis, Sippóru með sér, konu Mósis, hvörja hann hafði aftur sent,3og tvo sonu hennar: hét annar Gersom, af því Móses hafði sagt: eg hefi verið gestur í ókunnu landi;4hinn hét Elíeser, því hann hafði sagt: Guð föður míns var mín hjálp, og hann frelsaði mig frá sverði faraós.5Nú sem Jetró tengdafaðir Mósis, kom með sonu hans og konu til hans í eyðimörkina, þar sem hann hafði sett herbúðir sínar hjá Guðs fjalli,6þá lét hann segja Móses: eg Jetró tengdafaðir þinn er kominn til þín, og kona þín og báðir synir hennar með henni.7Þá gekk Móses út á móti honum, laut honum og kyssti hann; og þegar þeir höfðu heilsast, þá gengu þeir inn í tjaldið.8Móses sagði tengdaföður sínum frá öllu því sem Drottinn hafði gjört faraó og Egyptalandsmönnum fyrir sakir Ísraelsmanna, svo og frá öllum þeim þrautum, sem þeir höfðu mætt á leiðinni, og hvörsu Drottinn hafði frelsað þá.9Jetró gladdist yfir öllu því góða, sem Drottinn hafði gjört Ísraelsmönnum, hvörja hann hafði frelsað af hendi Egyptalandsmanna.10Og Jetró sagði: lofaður veri Drottinn, sem frelsaði yður af hendi Egyptalandsmanna og af hendi faraós, sem frelsaði fólkið undan ofríki Egyptalandsmanna!11Nú veit eg, að Drottinn er meiri en allir aðrir guðir; því það ofdramb, sem Egyptar sýndu, kom í koll sjálfum þeim.12Þá tók Jetró, tengdafaðir Mósis, brennifórn og slátursfórnir, Guði til fórnar; kom þá Aron og helstu menn af Ísraels lýð til að halda fórnarveislu, ásamt með tengdaföður Mósis, til þakklætis við Guð.
13Daginn eftir settist Móses til að dæma meðal fólksins, og stóð fólkið frammi fyrir Móses frá morgni til kvölds.14En er tengdafaðir hans sá allt það sem hann gjörði við fólkið, þá sagði hann: hvað á þetta að þýða, sem þú gjörir við fólkið? hvörs vegna situr þú einn saman, en allt fólkið stendur frammi fyrir þér frá morgni til kvölds.15Móses svaraði tengdaföður sínum: fólkið kemur til mín, þegar það vill leita Guðs atkvæða;16því þegar er nokkurt mál gjörist þeirra á milli, þá fara þeir á fund minn, til þess að eg dæmi þær sakir, er til falla milli manna, og kunngjöri þeim lög Guðs og boðorð hans.17Tengdafaðir Mósis sagði til hans: þessi aðferð hentar ekki;18bæði þreytist þú, og fólkið, sem hjá þér er; þetta starf er þér um meg, svo þú fær því ekki afkastað einn saman.19Hlýð nú mínum tillögum, eg vil leggja þér ráð, og mun Guð vera með þér: þú skalt ganga fram fyrir Guð í nafni fólksins, og fram bera málefni þess fyrir Guð;20þú skalt skýra fyrir þeim lögin og boðorðin, og kenna þeim þann veg, sem þeir skulu ganga, og þau verk, sem þeir skulu gjöra;21þú skalt velja meðal fólksins dugandi menn, þá er óttast Guð, ráðvanda menn og ósérplægna, og setja þá sem formenn lýðsins, suma yfir 1000 menn, suma yfir 100, suma yfir 50, og suma yfir 10;22þeir skulu dæma milli manna á öllum tímum, en öll hin stærri mál skulu þeir láta koma fyrir þig, en sjálfir skulu þeir dæma í öllum smærri málum, skaltu svo gjöra þér hægra fyrir, og þeir skulu létta undir með þér.23Ef þú gjörir þetta og sé það Guðs vilji, þá muntu fá því afkastað, og þá mun og allur þessi lýður með friði komast til átthaga sinna.24Móses hlýddi tillögum tengdaföður síns, og gjörði eins og hann hafði gefið ráð til.25Móses valdi dugandi menn af öllum Ísraels lýð, og setti þá til höfðingja yfir fólkið, suma sem formenn yfir 1000 mönnum, suma yfir 100, suma yfir 50, suma yfir 10,26til þess þeir skyldu dæma meðal manna á öllum tímum; vandamálum öllum skyldu þeir skjóta til Mósis, en dæma sjálfir í hinum minni málum.27Gaf Móses þá orlof tengdaföður sínum, og fór hann aftur heim í sitt land.