1Andi Drottins er yfir mér, af því að Drottinn hefir smurt mig. Hann hefir sent mig til að flytja nauðstöddum gleðilegan boðskap og til að græða þá, sem hafa sundurmarið hjarta, til að boða herteknum frelsi og fjötruðum lausn,2til að boða náðarár Drottins og hefndardag Guðs vors, til að hugga alla hrellda,3til að láta hinum hrelldu í Síon í té, gefa þeim höfuðdjásn í stað ösku, fagnaðarolíu í stað hryggðar, skartklæði í stað hugarvíls. Þeir munu kallaðir verða réttlætis-eikur, plantan Drottins honum til vegsemdar.4Þeir munu byggja upp hinar fornu rústir, reisa að nýju tóttir fyrri tíða, koma upp aftur eyddum borgum, sem legið hafa við velli í marga mannsaldra.5Útlendingar munu standa yfir hjörðum yðar og halda þeim til haga, og aðkomnir menn vera akurmenn og víngarðsmenn hjá yður,6en sjálfir munuð þér kallaðir verða prestar Drottins og nefndir verða þjónar Guðs vors. Þér munuð njóta fjárafla þjóðanna og stæra yður af auðlegð þeirra.7Fyrir þá smán, er þér þolduð, skuluð þér fá tvöfalt. Í stað háðungar skulu þeir fagna yfir hlutskipti sínu. Fyrir því skulu þeir eignast tvöföld óðul í landi sínu, og eilíf gleði skal falla þeim í skaut.8Því að ég, Drottinn, elska réttlæti, en hata glæpsamlegt rán. Ég geld þeim laun þeirra með trúfesti og gjöri við þá eilífan sáttmála.9Niðjar þeirra munu kunnir verða meðal þjóðanna og afsprengi þeirra á meðal þjóðflokkanna. Allir sem sjá þá, munu kannast við, að þeir eru sú kynslóð, sem Drottinn hefir blessað.10Ég gleðst yfir Drottni, sál mín fagnar yfir Guði mínum, því að hann hefir klætt mig klæðum hjálpræðisins, hann hefir sveipað mig í skikkju réttlætisins, eins og þegar brúðgumi lætur á sig höfuðdjásn og brúður býr sig skarti sínu.11Því eins og jörðin lætur gróður sinn koma upp og eins og aldingarðurinn lætur frækornin upp spretta, svo mun hinn alvaldi Drottinn láta réttlæti og frægð upp spretta í augsýn allra þjóða.

61.1-2 Sjá Lúk 4.18-19
61.1 Andi Drottins Jes 42.1+ ; Post 10.38 – smurt Jes 45.1+ – gleðilegan boðskap sbr Jes 40.9; Lúk 7.22 – fátækum, brostið hjarta Jes 57.15 – föngum lausn Jes 42.7
61.2 Náðarár Drottins Jes 49.8; 2Mós 21.2; 5Mós 15.12; Jer 34.8-16; sbr 3Mós 25.10 – hefndardag Jes 63.4 – hugga Jes 40.1+ ; 57.18 – hryggir Jes 60.20
61.3 Birtir dýrð Drottins Jes 60.21
61.4 Endurreisa Jes 58.12
61.5 Útlendingar Jes 56.6 – þjóna hinum útvöldu Jes 14.2; 60.10
61.6 Prestar Drottins 2Mós 19.6; 1Pét 2.5; Opb 1.6
61.7 Tvöfalt Jes 40.2; Sak 9.12; Job 42.10
61.8 Drottinn elskar réttlæti Slm 37.28 – ævarandi sáttmála Jes 55.3+
61.9 Niðjar þeirra Jes 44.3+
61.10 Fagna Jes 41.16; 1Sam 2.1; Lúk 1.46-47 – sveipaði mig sbr Jes 59.17; Opb 19.8 – eins og brúður Jes 49.18; Opb 21.2
61.11 Spíra Jes 45.8