1Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um þjóðirnar.2Um Egyptaland. Viðvíkjandi her Faraós, Nekós Egyptalandskonungs. Herinn var við Efratfljót, hjá Karkemis, er Nebúkadresar Babelkonungur vann sigur á honum á fjórða ríkisári Jójakíms Jósíasonar, Júdakonungs:3Búið út törgu og skjöld og gangið fram til orustu!4Beitið fyrir hestana og stígið á bak herfákunum og fylkið yður hjálmaðir! Fægið lensurnar! Klæðist pansara!5Hví sé ég þá skelfda hörfa aftur á bak? Og kappar þeirra eru yfirkomnir af ótta og flýja allt hvað af tekur og líta ekki við skelfing allt um kring segir Drottinn.6Eigi mun hinn frái forða sér né kappinn komast undan. Norður frá, á bökkum Efratfljóts, hrasa þeir og falla.7Hver var það, sem belgdist upp eins og Níl, hvers vötn komu æðandi eins og fljót?8Egyptaland belgdist upp eins og Níl, og vötn þess komu æðandi eins og fljót, og það sagði: Ég vil stíga upp, þekja landið, eyða borgir og íbúa þeirra.9Komið, hestar, og æðið, vagnar, og kapparnir leggi af stað, Blálendingar og Pút-menn, sem bera skjöld, og Lúdítar, sem benda boga!10En sá dagur er hefndardagur herranum, Drottni allsherjar, að hann hefni sín á mótstöðumönnum sínum. Þá mun sverðið eta og seðjast og drekka sig drukkið af blóði þeirra, því að herrann, Drottinn allsherjar, heldur fórnarhátíð í landinu norður frá, við Efratfljót.11Far upp til Gíleað og sæk smyrsl, þú mærin, dóttirin Egyptaland! Til einskis munt þú viðhafa mörg læknislyf, enginn plástur er til handa þér!12Þjóðirnar fréttu smán þína, og jörðin er full af harmakveini þínu, því að einn kappinn hrasaði um annan, féllu báðir jafnsaman.13Orðið sem Drottinn talaði til Jeremía spámanns, um það að Nebúkadresar Babelkonungur mundi vinna sigur á Egyptalandi.14Kunngjörið í Egyptalandi og boðið í Migdól, já boðið í Nóf og Takpanes, segið: Gakk fram og gjör þig vígbúinn, því að sverðið hefir þegar etið umhverfis þig!15Hví eru þínir sterku menn að velli lagðir? Þeir fengu eigi staðist, því að Drottinn kollvarpaði þeim.16Hann lét marga hrasa, og þeir féllu hver um annan þveran, svo að þeir sögðu: Á fætur, og hverfum aftur til þjóðar vorrar, til ættlands vors, undan hinu vígfreka sverði!17Þeir munu nefna Faraó, Egyptalandskonung: Tortíming! hann lét hinn hentuga tíma líða hjá.18Svo sannarlega sem ég lifi, segir konungurinn, Drottinn allsherjar er nafn hans: Líkur Tabor meðal fjallanna og líkur Karmel við sjóinn mun hann koma.19Gjör þér áhöld til brottfarar, þú sem þar býr, dóttirin Egyptaland, því að Nóf mun verða að auðn og hún mun verða brennd og verða mannauð.20Egyptaland er mjög fögur kvíga, kleggjar úr norðri koma yfir hana.21Jafnvel málaliðið, sem það hefir hjá sér, eins og alikálfa já, jafnvel það snýr við, flýr allt saman, fær eigi staðist. Því að glötunardagur þeirra er yfir þá kominn, hegningartími þeirra.22Rödd þess er orðin eins og þruskið í höggorminum, sem skríður burt, því með herliði bruna þeir áfram og með öxum ryðjast þeir inn á það, eins og viðarhöggsmenn.23Þeir höggva upp skóg þess segir Drottinn því að um hann verður ekki farið, því að þeir eru fleiri en engisprettur og á þá verður engri tölu komið.24Dóttirin Egyptaland varð til skammar, hún var seld á vald þjóð að norðan.25Drottinn allsherjar, Ísraels Guð, segir: Sjá, ég vitja Amóns frá Þebu og Faraós og þeirra, sem á hann treysta,26og sel þá á vald þeirra, er sækjast eftir lífi þeirra, og á vald Nebúkadresars Babelkonungs og á vald þjóna hans. En eftir það skal það byggt vera, eins og fyrri á dögum segir Drottinn.27En óttast þú ekki, þjónn minn Jakob, og hræðst þú ekki, Ísrael, því að ég frelsa þig úr fjarlægu landi og niðja þína úr landinu, þar sem þeir eru herleiddir, til þess að Jakob hverfi heim aftur og njóti hvíldar og búi óhultur, án þess nokkur hræði hann.28„Óttast þú ekki, þjónn minn Jakob segir Drottinn því að ég er með þér! Því að ég vil gjöreyða öllum þeim þjóðum, er ég hefi rekið þig til, en þér vil ég ekki gjöreyða, heldur vil ég hirta þig í hófi; en ég vil ekki láta þér með öllu óhegnt.“

46.1 Um þjóðirnar Jer 1.10+
46.2 Um Egyptaland Jer 25.19+ – Nekó 2Kon 23.29; 2Kro 35.20 – fjórða stjórnarár Jójakíms Jer 25.1
46.5 Skelfing Jer 6.25+
46.6 Hinn frái, kappinn Am 2.15
46.7 Eins og vatsflaumur Jer 47.2; Jes 8.7; Dan 11.10
46.10 Fórnarveisla Sef 1.7 – fyrir norðan Jer 1.14+
46.11 Smyrsl frá Gíleað Jer 8.22; 1Mós 37.25 – grær ekki Jer 10.19+
46.13 Sigur á Egyptalandi Jer 43.11+
46.14 Migdól Jer 44.1+ – Nóf, Takpanes Jer 2.16+
46.17 Faraó uppnefndur sbr Jes 30.7; 36.6
46.18 Konungurinn Slm 93.1+ – nafn hans Jer 10.16; 16.21; 48.15; 50.34; 51.19,57; Jes 48.2; 51.15
46.19 Farangur til útlegðar Jer 10.17; Esk 12.3
46.21 Stund uppgjörsins Jer 8.12+
46.24 Úr norðri Jer 1.14+
46.26 Selja á vald Jer 44.30 – endurreisn í Egyptalandi Jes 19.1-25; Esk 29.13-15; sbr Jer 12.15+
46.27-28 En þú … Jer 30.10-11
46.27 Óttastu ekki Jes 41.13-14 – enginn mun ógna honum 3Mós 26.6; Esk 34.28; Job 11.19
46.28 Ég er með þér Jer 1.8; Jes 43.5 – látið óhegnt 2Mós 24.7; Nah 1.3; Slm 99.8