1Synir Leví: Gersom, Kahat og Merarí.2Og synir Kahats: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel.3Og synir Amrams: Aron, Móse og Mirjam. Og synir Arons: Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.4Eleasar gat Pínehas, Pínehas gat Abísúa,5Abísúa gat Búkkí, Búkkí gat Ússí,6Ússí gat Serahja, Serahja gat Merajót,7Merajót gat Amarja, Amarja gat Ahítúb,8Ahítúb gat Sadók, Sadók gat Akímaas,9Akímaas gat Asarja, Asarja gat Jóhanan,10Jóhanan gat Asarja, hann sem var prestur í musterinu, er Salómon byggði í Jerúsalem.11En Asarja gat Amarja, Amarja gat Ahítúb,12Ahítúb gat Sadók, Sadók gat Sallúm,13Sallúm gat Hilkía, Hilkía gat Asarja,14Asarja gat Seraja, Seraja gat Jósadak.15En Jósadak fór burt, þegar Drottinn lét Nebúkadnesar herleiða Júdamenn og Jerúsalembúa.16Synir Leví: Gersom, Kahat og Merarí.17Og þessi eru nöfn á sonum Gersoms: Libní og Símeí.18Og synir Kahats voru: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel.19Synir Merarí: Mahelí og Músí. Og þessar eru ættir Levíta eftir ættfeðrum þeirra.20Frá Gersom eru komnir: Libní, sonur hans, hans son Jahat, hans son Simma,21hans son Jóa, hans son Íddó, hans son Sera, hans son Jeatraí.22Synir Kahats: Ammínadab, sonur hans, hans son Kóra, hans son Assír,23hans son Elkana, hans son Ebjasaf, hans son Assír,24hans son Tahat, hans son Úríel, hans son Ússía, hans son Sál.25Og synir Elkana: Amasaí og Ahímót,26hans sonur Elkana, hans son Sofaí, hans son Nahat,27hans son Elíab, hans son Jeróham, hans son Elkana.28Og synir Samúels voru: Jóel, frumgetningurinn, og hinn annar Abía.29Synir Merarí: Mahelí, hans son var Libní, hans son Símeí, hans son Ússa,30hans son Símea, hans son Haggía, hans son Asaja.31Þessir eru þeir, er Davíð skipaði til söngs í húsi Drottins, er örkin hafði fundið hæli.32Þjónuðu þeir við sönginn fyrir dyrum samfundatjalds-búðarinnar, uns Salómon reisti musteri Drottins í Jerúsalem, og gegndu þeir þjónustu sinni eftir reglum þeim, er fyrir þá voru lagðar.33Þessir eru þeir, er þjónustu þessari gegndu og synir þeirra: Af sonum Kahatíta: Heman, söngvarinn, Jóelsson, Samúelssonar,34Elkanasonar, Jeróhamssonar, Elíelssonar, Tóasonar,35Súfssonar, Elkanasonar, Mahatssonar, Amasaísonar,36Elkanasonar, Jóelssonar, Asaríasonar, Sefaníasonar,37Tahatssonar, Assírssonar, Ebjasafssonar, Kórasonar,38Jíseharssonar, Kahatssonar, Levísonar, Ísraelssonar.39Bróðir hans var Asaf, er stóð honum til hægri handar, Asaf Berekíason, Símeasonar,40Míkaelssonar, Baasejasonar, Malkíasonar,41Etnísonar, Serasonar, Adajasonar,42Etanssonar, Simmasonar, Simmeísonar,43Jahatssonar, Gersomssonar, Levísonar.44Og bræður þeirra, synir Merarí, stóðu til vinstri handar: Etan Kísíson, Abdísonar, Mallúkssonar,45Hasabjasonar, Amasjasonar, Hilkíasonar,46Amsísonar, Banísonar, Semerssonar,47Mahelísonar, Músísonar, Merarísonar, Levísonar.48Og bræður þeirra, levítarnir, voru settir yfir alla þjónustuna við musterisbústað Guðs.49En Aron og synir hans fórnuðu á brennifórnaraltarinu og reykelsisaltarinu og önnuðust öll störf í Hinu allrahelgasta og að friðþægja fyrir Ísrael að öllu leyti eins og Móse, þjónn Guðs, hafði fyrirskipað.50Og þessir eru synir Arons: Eleasar, sonur hans, hans son Pínehas, hans son Abísúa,51hans son Búkkí, hans son Ússí, hans son Serahja,52hans son Merajót, hans son Amaría, hans son Ahítúb,53hans son Sadók, hans son Akímaas.54Þetta eru bústaðir þeirra, taldir eftir tjaldbúðum í héraði þeirra: Niðjum Arons, ætt Kahatíta því að fyrsti hluturinn hlotnaðist þeim55gáfu þeir Hebron í Júdalandi og beitilandið umhverfis hana.56En akurland borgarinnar og þorpin, er að henni lágu, gáfu þeir Kaleb Jefúnnesyni.57En sonum Arons gáfu þeir griðastaðinn Hebron, enn fremur Líbna og beitilandið, er að henni lá, Jattír og Estamóa og beitilandið, er að henni lá,58Hólon og beitilandið, er að henni lá, Debír og beitilandið, er að henni lá,59Asan og beitilandið, er að henni lá, og Bet Semes og beitilandið, er að henni lá.60Og frá Benjamínsættkvísl: Geba og beitilandið, er að henni lá, Allemet og beitilandið, er að henni lá, og Anatót og beitilandið, er að henni lá. Alls voru borgir þeirra þrettán, og beitilöndin, er að þeim lágu.61Aðrir synir Kahats fengu tíu borgir eftir hlutkesti frá ættum Efraímskynkvíslar og Danskynkvíslar og frá hálfri Manassekynkvísl.62En synir Gersoms fengu þrettán borgir eftir ættum þeirra frá Íssakarskynkvísl, Asserskynkvísl, Naftalíkynkvísl og frá Manassekynkvísl í Basan.63Synir Merarí fengu eftir hlutkesti tólf borgir eftir ættum þeirra, frá Rúbenskynkvísl, Gaðskynkvísl og frá Sebúlonskynkvísl.64Þannig gáfu Ísraelsmenn levítum borgirnar og beitilöndin, er að þeim lágu,65og þeir gáfu eftir hlutkesti frá kynkvísl Júdasona, frá kynkvísl Símeonssona og frá kynkvísl Benjamínssona þessar borgir, sem þeir nafngreindu.66Og að því er snertir ættir þeirra Kahatssona, þá fengu þeir borgir þær, er þeim hlotnuðust, frá Efraímskynkvísl.67Og þeir gáfu þeim griðastaðinn Síkem og beitilandið, er að henni lá, á Efraímfjöllum, enn fremur Geser og beitilandið, er að henni lá,68Jokmeam og beitilandið, er að henni lá, Bet Hóron og beitilandið, er að henni lá,69Ajalon og beitilandið, er að henni lá, og Gat Rimmon og beitilandið, er að henni lá.70Og frá hálfri Manassekynkvísl: Aner og beitilandið, er að henni lá, og Jíbleam og beitilandið, er að henni lá fyrir ættir hinna Kahatssona.71Synir Gersoms fengu frá ætt hálfrar Manassekynkvíslar: Gólan í Basan og beitilandið, er að henni lá, og Astarót og beitilandið, er að henni lá.72Og frá Íssakarskynkvísl: Kedes og beitilandið, er að henni lá, Dabrat og beitilandið, er að henni lá,73Ramót og beitilandið, er að henni lá, og Anem og beitilandið, er að henni lá.74Og frá Asserskynkvísl: Masal og beitilandið, er að henni lá, Abdón og beitilandið, er að henni lá,75Húkok og beitilandið, er að henni lá, og Rehób og beitilandið, er að henni lá.76Og frá Naftalíkynkvísl: Kedes í Galíl og beitilandið, er að henni lá, Hammót og beitilandið, er að henni lá, og Kirjataím og beitilandið, er að henni lá.77Þeir synir Merarí, er enn voru eftir, fengu frá Sebúlonskynkvísl: Rimmónó og beitilandið, er að henni lá, og Tabór og beitilandið, er að henni lá.78Og hinumegin Jórdanar, gegnt Jeríkó, fyrir austan Jórdan, fengu þeir frá Rúbenskynkvísl: Beser í eyðimörkinni og beitilandið, er að henni lá, Jahsa og beitilandið, er að henni lá,79Kedemót og beitilandið, er að henni lá, og Mefaat og beitilandið, er að henni lá.80Og frá Gaðskynkvísl: Ramót í Gíleað og beitilandið, er að henni lá, Mahanaím og beitilandið, er að henni lá,81Hesbon og beitilandið, er að henni lá, og Jaser og beitilandið, er að henni lá.
6.35-38 1Kro 5.30-34
6.39-45 Jós 21.10-19
6.46-48 Jós 21.5-8
6.51-66 Jós 21.20-39