1Eftir pláguna sagði Drottinn við Móse og Eleasar Aronsson prests:2Takið manntal alls safnaðar Ísraelsmanna, þeirra er tvítugir eru og þaðan af eldri, eftir ættum þeirra, allra þeirra sem vopnfærir eru í Ísrael.3Og Móse og Eleasar prestur töldu þá á Móabsheiðum, við Jórdan gegnt Jeríkó,4frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, eins og Drottinn hafði boðið Móse. Ísraelsmenn, þeir er fóru af Egyptalandi, voru:5Rúben, frumgetinn sonur Ísraels. Synir Rúbens: Hanok, frá honum er komin kynkvísl Hanokíta, frá Pallú kynkvísl Pallúíta,6frá Hesrón kynkvísl Hesróníta, frá Karmí kynkvísl Karmíta.7Þessar eru kynkvíslir Rúbeníta. En þeir sem taldir voru af þeim, voru 43.730.8„Synir Pallú: Elíab;“9og synir Elíabs: Nemúel, Datan og Abíram. Það voru þessir Datan og Abíram, fulltrúar safnaðarins, sem þráttuðu við Móse og við Aron í flokki Kóra, þá er þeir þráttuðu við Drottin.10Opnaði jörðin þá munn sinn og svalg þá og Kóra, þá er flokkurinn fórst, með því að eldur eyddi tvö hundruð og fimmtíu manns, og urðu þeir til tákns.11En synir Kóra fórust þó ekki.12Synir Símeons, eftir kynkvíslum þeirra: frá Nemúel er komin kynkvísl Nemúelíta, frá Jamín kynkvísl Jamíníta, frá Jakín kynkvísl Jakíníta,13frá Sera kynkvísl Seraíta, frá Sál kynkvísl Sálíta.14Þessar eru kynkvíslir Símeoníta, 22.200.15Synir Gaðs, eftir kynkvíslum þeirra: frá Sefón er komin kynkvísl Sefóníta, frá Haggí kynkvísl Haggíta, frá Súní kynkvísl Súníta,16frá Osní kynkvísl Osníta, frá Erí kynkvísl Eríta,17frá Aród kynkvísl Aródíta, frá Arelí kynkvísl Arelíta.18Þessar eru ættkvíslir Gaðs sona, þeir er taldir voru af þeim, 40.500.19Synir Júda voru Ger og Ónan, en Ger og Ónan dóu í Kanaanlandi.20Synir Júda, eftir kynkvíslum þeirra: frá Sela er komin kynkvísl Selaníta, frá Peres kynkvísl Peresíta, frá Sera kynkvísl Seraíta.21Synir Peres voru: frá Hesrón kynkvísl Hesróníta, frá Hamúl kynkvísl Hamúlíta.22Þessar eru kynkvíslir Júda, þeir er taldir voru af þeim, 76.500.23Synir Íssakars, eftir kynkvíslum þeirra: frá Tóla er komin kynkvísl Tólaíta, frá Púva kynkvísl Púníta,24frá Jasjúb kynkvísl Jasjúbíta, frá Símron kynkvísl Símroníta.25Þessar eru kynkvíslir Íssakars, þeir er taldir voru af þeim, 64.300.26Synir Sebúlons, eftir kynkvíslum þeirra: frá Sered er komin kynkvísl Seredíta, frá Elon kynkvísl Eloníta, frá Jahleel kynkvísl Jahleelíta.27Þessar eru kynkvíslir Sebúloníta, þeir er taldir voru af þeim, 60.500.28Synir Jósefs, eftir kynkvíslum þeirra: Manasse og Efraím.29Synir Manasse: frá Makír er komin kynkvísl Makíríta, en Makír gat Gíleað, frá Gíleað er komin kynkvísl Gíleaðíta.30Þessir eru synir Gíleaðs: Jeser, frá honum er komin kynkvísl Jesríta, frá Helek kynkvísl Helekíta,31frá Asríel kynkvísl Asríelíta, frá Síkem kynkvísl Síkemíta,32frá Semída kynkvísl Semídaíta, frá Hefer kynkvísl Hefríta.33En Selofhað sonur Hefers átti enga sonu, heldur aðeins dætur. Dætur Selofhaðs hétu Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirsa.34Þessar eru kynkvíslir Manasse, og þeir sem taldir voru af þeim, 52.700.35Þessir eru synir Efraíms, eftir kynkvíslum þeirra: frá Sútela er komin kynkvísl Sútelaíta, frá Beker kynkvísl Bekeríta, frá Tahan kynkvísl Tahaníta.36Þessir voru synir Sútela: frá Eran kynkvísl Eraníta.37Þessar eru kynkvíslir Efraíms sona, þeir er taldir voru af þeim, 32.500. Þessir eru synir Jósefs eftir kynkvíslum þeirra.38Synir Benjamíns, eftir kynkvíslum þeirra: frá Bela er komin kynkvísl Belaíta, frá Asbel kynkvísl Asbelíta, frá Ahíram kynkvísl Ahíramíta,39frá Súfam kynkvísl Súfamíta, frá Húfam kynkvísl Húfamíta.40Synir Bela voru Ard og Naaman, frá Ard er komin kynkvísl Ardíta, frá Naaman kynkvísl Naamíta.41Þessir eru synir Benjamíns, eftir kynkvíslum þeirra, og þeir sem taldir voru af þeim, 45.600.42Þessir eru synir Dans, eftir kynkvíslum þeirra: frá Súham er komin kynkvísl Súhamíta. Þessar eru kynkvíslir Dans, eftir kynkvíslum þeirra.43Allar kynkvíslir Súhamíta, þeir er taldir voru af þeim, 64.400.44Synir Assers, eftir kynkvíslum þeirra: frá Jímna er komin kynkvísl Jímníta, frá Jísví kynkvísl Jísvíta, frá Bría kynkvísl Brííta,45frá sonum Bría: frá Heber kynkvísl Hebríta, frá Malkíel kynkvísl Malkíelíta.46Dóttir Assers hét Sera.47Þessar eru kynkvíslir Assers sona, þeir er taldir voru af þeim, 53.400.48Synir Naftalí, eftir kynkvíslum þeirra: frá Jahseel er komin kynkvísl Jahseelíta, frá Gúní kynkvísl Gúníta,49frá Jeser kynkvísl Jisríta, frá Sillem kynkvísl Sillemíta.50Þessar eru kynkvíslir Naftalí, eftir kynkvíslum þeirra, sem taldir voru af þeim, 45.400.51Þetta voru þeir, sem taldir voru af Ísraelsmönnum, 601.730.52Drottinn talaði við Móse og sagði:53Meðal þessara skal landinu skipta til eignar eftir nafnatölu.54Þeirri kynkvísl, sem mannmörg er, skalt þú fá mikið land til eignar, en þeirri, sem fámenn er, lítið land til eignar. Sérhverjum skal land gefið til eignar í réttu hlutfalli við talda menn hans.55Þó skal landinu skipt með hlutkesti, svo að þeir hljóti það til eignar eftir nöfnum ættstofnanna.56Eftir því sem hlutkestið segir til, skal eignum skipt milli þeirra, svo sem þeir eru margir og fáir til.57Þessir eru levítarnir, sem taldir voru, eftir kynkvíslum þeirra: frá Gerson er komin kynkvísl Gersoníta, frá Kahat kynkvísl Kahatíta, frá Merarí kynkvísl Meraríta.58Þessar eru kynkvíslir Leví: kynkvísl Libníta, kynkvísl Hebroníta, kynkvísl Mahelíta, kynkvísl Músíta, kynkvísl Kóraíta. Kahat gat Amram.59„Og kona Amrams hét Jókebed, dóttir Leví; fæddist hún Leví í Egyptalandi. En hún fæddi Amram þá Aron og Móse og systur þeirra Mirjam.“60Og Aroni fæddust Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.61En Nadab og Abíhú dóu, er þeir báru annarlegan eld fram fyrir Drottin.62Þeir sem taldir voru af levítum, voru 23.000, allt karlkyn mánaðargamalt og þaðan af eldra. Þeir voru ekki taldir með Ísraelsmönnum, af því að þeim var eigi fengið land til eignar meðal Ísraelsmanna.63Þetta er manntalið, sem Móse og Eleasar prestur tóku, er þeir töldu Ísraelsmenn á Móabsheiðum, við Jórdan gegnt Jeríkó.64Enginn þeirra var á manntalinu, sem Móse og Aron prestur tóku meðal Ísraelsmanna í Sínaí-eyðimörk,65því að Drottinn hafði sagt um þá: Þeir skulu vissulega deyja í eyðimörkinni, enda var enginn orðinn eftir af þeim nema Kaleb Jefúnneson og Jósúa Núnsson.
26.9 Datan, Abíram og Kóra 4Mós 16.1-35
26.19 Ger og Ónan 1Mós 38.1-10
26.51 601.730 4Mós 1.46+
26.52-56 Landinu skipt 4Mós 33.53-56; 34.13; Jós 14.1-2
26.57-62 Levítarnir taldir 4Mós 3.14-39+
26.61 Nadab og Abíhú 4Mós 3.4+
26.65 Deyja í eyðimörkinni 4Mós 14.26-38