1Drottinn talaði við Móse og sagði:2Send þú menn til að kanna Kanaanland, er ég mun gefa Ísraelsmönnum. Þér skuluð senda einn mann af ættkvísl hverri, og sé hver þeirra höfðingi meðal þeirra.3Og Móse sendi þá úr Paran-eyðimörk að boði Drottins. Þeir menn voru allir höfuðsmenn meðal Ísraelsmanna,4og þessi eru nöfn þeirra: Af ættkvísl Rúbens: Sammúa Sakkúrsson.5Af ættkvísl Símeons: Safat Hóríson.6Af ættkvísl Júda: Kaleb Jefúnneson.7Af ættkvísl Íssakars: Jígeal Jósefsson.8Af ættkvísl Efraíms: Hósea Núnsson.9Af ættkvísl Benjamíns: Paltí Rafúson.10Af ættkvísl Sebúlons: Gaddíel Sódíson.11Af ættkvísl Jósefs, af ættkvísl Manasse: Gaddí Súsíson.12Af ættkvísl Dans: Ammíel Gemallíson.13Af ættkvísl Assers: Setúr Míkaelsson.14Af ættkvísl Naftalí: Nakbí Vofsíson.15Af ættkvísl Gaðs: Geúel Makíson.16Þessi eru nöfn þeirra manna, sem Móse sendi til að kanna landið. En Móse kallaði Hósea Núnsson Jósúa.17Móse sendi þá til að kanna Kanaanland og sagði við þá: Farið þér inn í Suðurlandið og gangið á fjöll upp18og skoðið landið, hvernig það er, og fólkið, sem í því býr, hvort það er hraustlegt eða veiklegt, fátt eða margt,19og hvernig landið er, sem það býr í, hvort það er gott eða illt, og hvernig bæirnir eru, sem það býr í, hvort það eru tjöld eða víggirtar borgir,20og hvernig landið er, hvort það er feitt eða magurt, hvort þar eru skógar eða ekki. Og verið hugrakkir og komið með nokkuð af ávöxtum landsins. En þetta var á öndverðum vínberjatíma.21Héldu þeir nú norður eftir og könnuðu landið frá Síneyðimörk allt til Rehób, þangað sem leið liggur til Hamat.22Þeir fóru inn í Suðurlandið og komu til Hebron. Þar voru þeir Ahíman, Sesaí og Talmaí Anakssynir en Hebron var reist sjö árum fyrr en Sóan í Egyptalandi .23Þeir komu í Eskóldal og sniðu þar af vínviðargrein með einum vínberjaklasa og báru hann tveir á stöng milli sín, þar að auki nokkur granatepli og nokkrar fíkjur.24Var staður þessi kallaður Eskóldalur vegna klasans, sem Ísraelsmenn skáru þar af.25Þeir sneru aftur að fjörutíu dögum liðnum og höfðu þá kannað landið.26Og þeir héldu heimleiðis og komu til Móse og Arons og alls safnaðar Ísraelsmanna í Paran-eyðimörk, til Kades, og sögðu þeim og öllum söfnuðinum af ferðum sínum og sýndu þeim ávöxtu landsins.27Þeir sögðu Móse frá og mæltu: Vér komum í landið, þangað sem þú sendir oss, og að sönnu flýtur það í mjólk og hunangi, og þetta er ávöxtur þess.28En það er hraust þjóð, sem í landinu býr, og borgirnar eru víggirtar og stórar mjög, og Anaks sonu sáum vér þar einnig.29Amalekítar byggja Suðurlandið, og Hetítar, Jebúsítar og Amorítar byggja fjalllendið, og Kanaanítar búa við sjóinn og meðfram Jórdan.30Kaleb stöðvaði kurr lýðsins gegn Móse og mælti: Förum þangað og leggjum það undir oss, því að vér munum fá unnið það.31En þeir menn, er með honum höfðu farið, sögðu: Oss er ofvaxið að fara mót þessari þjóð, því að hún er sterkari en vér.32Og þeir sem kannað höfðu landið, sögðu Ísraelsmönnum illt af því og mæltu: Landið, sem vér fórum um til þess að kanna það, er land sem etur upp íbúa sína, og allt fólkið, sem vér sáum þar, eru risavaxnir menn.33Og vér sáum þar risa, Anakssonu, sem eru risa ættar, og vér vorum í augum sjálfra vor sem engisprettur, og eins vorum vér í þeirra augum.

13.2 Njósnamenn 5Mós 1.19-40; Jós 2.1-24; 7.2-3
13.33 Risar 1Mós 6.4