1Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir vor, heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni Fílemon,2svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum, sem kemur saman í húsi þínu.3Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.4Ég þakka Guði mínum ávallt, er ég minnist þín í bænum mínum.5Því að ég heyri um trúna, sem þú hefur á Drottni Jesú, og um kærleika þinn til hinna heilögu.6Ég bið þess, að trú þín, sem þú átt með oss, verði mikilvirk í þekkingunni á öllu því góða, sem tilheyrir Kristi.7Ég hlaut mikla gleði og huggun af kærleika þínum, þar eð þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu hinna heilögu.8Því er það, að þótt ég gæti með fullri djörfung í Kristi boðið þér að gera það, sem skylt er,9þá fer ég þó heldur bónarveg vegna kærleika þíns, þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú.10Ég bið þig þá fyrir barnið mitt, sem ég hef getið í fjötrum mínum, hann Onesímus.11Hann var þér áður óþarfur, en er nú þarfur bæði þér og mér.12Ég sendi hann til þín aftur, og er hann þó sem hjartað í brjósti mér.13Feginn vildi ég hafa haldið honum hjá mér, til þess að hann í þinn stað veitti mér þjónustu í fjötrum mínum vegna fagnaðarerindisins.14En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gjöra, til þess að velgjörð þín skyldi ekki koma eins og af nauðung, heldur af fúsum vilja.15Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega,16ekki lengur eins og þræli, heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður. Mér er hann kær bróðir. Hve miklu fremur þó þér, bæði sem maður og kristinn.17Ef þú því telur mig félaga þinn, þá tak þú á móti honum, eins og væri það ég sjálfur.18En hafi hann eitthvað gjört á hluta þinn, eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú það mér til reiknings.19Ég, Páll, rita með eigin hendi: Ég mun gjalda. Að ég ekki nefni við þig, að þú ert jafnvel í skuld við mig um sjálfan þig.20Já, bróðir, unn mér gagns af þér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists.21Í fullu trausti til hlýðni þinnar rita ég til þín og veit, að þú munt gjöra jafnvel fram yfir það, sem ég mælist til.22En hafðu líka til gestaherbergi handa mér, því að ég vona, að ég vegna bæna yðar muni verða gefinn yður.23Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að heilsa þér. Sömuleiðis24Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir.25Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með anda yðar.

1 Páll, bandingi Krists Ef 3.1+ – Tímóteus Post 16.1+
2 Arkippus Kól 4.17 – söfnuðurinn í húsi þínu Róm 16.5+
3 Náð sé með yður og friður Róm 1.7; Gal 1.3; Fil 1.2 o.fl.
4 Þakkir og fyrirbæn Róm 1.8-9
6 Trú og skilningur á vilja Guðs Fílm 1.9; Kól 1.9
7 Gleði og uppörvun 2Kor 7.4
9 Bandingi Krists Ef 3.1+ ; Fílm 1
10 Sem ég hef getið 1Kor 4.15; Gal 4.19 – Onesímus Kól 4.9
13 Í þinn stað Fílm 2.30
14 Af fúsum vilja 2Kor 9.7; 1Pét 5.2
16 Fremri 1Tím 6.2
19 Með eigin hendi Gal 6.11+
23 Epafras Kól 1.7+
24 Markús Post 12.12+ ; 2Tím 4.11+ – Aristarkus Post 19.29+ – Demas Kól 4.14+ – Lúkas Kól 4.14+