1Þar var staddur óþokki nokkur, sem Seba hét Bíkríson, Benjamíníti. Hann þeytti lúðurinn og sagði: Vér eigum enga hlutdeild í Davíð og engan erfðahlut í Ísaísyni. Hver fari heim til sín, Ísrael!2Þá gengu allir Ísraelsmenn undan Davíð og á hönd Seba Bíkrísyni, en Júdamenn fóru með konungi sínum frá Jórdan til Jerúsalem.3Þegar Davíð kom til hallar sinnar í Jerúsalem, lét konungur taka hjákonurnar tíu, er hann hafði skilið eftir til þess að gæta hallarinnar, og setti þær í varðhald og ól þar önn fyrir þeim, en eigi hafði hann samfarir við þær. Lifðu þær þannig innibyrgðar til dauðadags sem ekkjur lifandi manna.4Því næst sagði konungur við Amasa: Kalla þú saman Júdamenn áður þrjár sólir eru af lofti. Ver þá og sjálfur hér.5Lagði nú Amasa af stað til þess að kalla saman Júda. En er honum seinkaði fram yfir þann tíma, er til var tekinn við hann,6sagði Davíð við Abísaí: Nú mun Seba Bíkríson vinna oss enn meira tjón en Absalon. Tak þú menn herra þíns og veit honum eftirför, svo að hann nái ekki víggirtum borgum og veiti oss þungar búsifjar.7Lögðu þá af stað með honum menn Jóabs og Kretar og Pletar og kapparnir allir. Lögðu þeir af stað frá Jerúsalem til þess að veita Seba Bíkrísyni eftirför.8En er þeir voru hjá stóra steininum, sem er hjá Gíbeon, mætti Amasa þeim. Jóab var klæddur brynjukufli sínum og gyrtur sverði utan yfir hann, og voru sverðsslíðrin fest við lend honum. Hljóp sverðið úr slíðrunum og féll til jarðar.9Þá sagði Jóab við Amasa: Líður þér vel, bróðir minn? Greip Jóab þá hægri hendinni í skegg Amasa, sem hann vildi kyssa hann.10En Amasa hafði ekki tekið eftir sverðinu, er Jóab hafði í vinstri hendi sér. Lagði Jóab því í kvið honum, svo að út féllu iðrin. Eigi lagði hann til hans aftur, því að hann var þegar dauður. Jóab og Abísaí, bróðir hans, fóru eftir Seba Bíkrísyni.11En einn af mönnum Jóabs stóð kyrr hjá Amasa og kallaði: Hver sá sem hefir mætur á Jóab og aðhyllist Davíð, hann fylgi Jóab!12En Amasa lá og veltist í blóði sínu á miðjum veginum, og er maðurinn sá, að allt liðið stóð kyrrt, dró hann Amasa til hliðar út af veginum og varp yfir hann klæði, er hann sá, að hver maður nam staðar, sem að honum kom.13En er hann hafði komið honum burt af veginum, fylgdi hver maður Jóab til þess að veita Seba Bíkrísyni eftirför.14Seba fór um allar ættkvíslir Ísraels, allt til Abel Bet Maaka, og allir Bíkrítar söfnuðust saman og fóru með honum.15En Jóab og menn hans komu og umkringdu hann í Abel Bet Maaka og hlóðu virkisvegg gegn borginni upp að varnargarðinum. Gekk nú allt liðið, er með Jóab var, sem ákafast fram í því að brjóta múrinn.16Þá kallaði kona nokkur vitur af borginni: Heyrið, heyrið! Segið við Jóab: Kom þú hingað, ég vil tala við þig.17Þá gekk hann til hennar, og konan mælti: Ert þú Jóab? Hann kvað svo vera. Og hún sagði við hann: Hlýð þú á orð ambáttar þinnar! Hann svaraði: Ég heyri.18Þá mælti hún á þessa leið: Forðum var það haft að orðtæki: Spyrjið að því í Abel, og þá var málið á enda kljáð.19Vér erum meðal hinna friðsömu og trúu í Ísrael, en þú leitast við að gjöreyða borg og móður í Ísrael. Hví spillir þú arfleifð Drottins?20Jóab svaraði og sagði: Það er fjarri mér! Ég vil engu spilla og engu eyða.21Eigi er þessu svo farið, heldur hefir maður nokkur frá Efraímfjöllum, sem Seba heitir, Bíkríson, lyft hendi sinni gegn Davíð konungi. Framseljið hann einan, og mun ég þegar hverfa frá borginni. Þá sagði konan við Jóab: Sjá, höfði hans skal kastað verða til þín yfir múrinn.22Síðan talaði konan af viturleik sínum við alla borgarbúa, svo að þeir hjuggu höfuð af Seba Bíkrísyni og fleygðu því út til Jóabs. Þá lét hann blása liðinu frá borginni, og fór hver heim til sín, en Jóab sneri aftur til Jerúsalem til konungs.23Jóab var fyrir öllum hernum, Benaja Jójadason fyrir Kretum og Pletum.24Adóníram var yfir kvaðarmönnum, Jósafat Ahílúðsson var ríkisritari,25Seja var kanslari, Sadók og Abjatar prestar.26Enn fremur var Íra Jaíríti prestur hjá Davíð.

20.1 Þeyta hafurshorn Dóm 3.27; 6.34
20.2 Gengu undan Davíð 2Sam 15.13
20.3 Tíu hjákonur 2Sam 15.16+
20.4 Amasa 2Sam 17.25; 19.14
20.6 Veita eftirför 2Sam 17.1
20.9 Kyssa hann 2Sam 14.33+
20.10 Lagði í kvið honum 2Sam 3.27+; sbr Dóm 3.21
20.12 Nam staðar 2Sam 2.23
20.15 Veggur 2Kon 19.32
20.16 Skynsöm kona 2Sam 11.21; 14.2; 1Sam 25.14-28
20.20 Víðsjarri mér 1Sam 24.7
20.21 Höfuð hans 2Sam 4.7-8; 1Sam 17.51,54; 31.9
20.22 Þeyta 2Sam 2.28+
20.23-26 Embættismenn 2Sam 8.15-18+