1Um hjálpina til hinna heilögu er sem sé óþarft fyrir mig að skrifa yður,2því að ég þekki góðan vilja yðar og hrósa mér af yður meðal Makedóna og segi, að Akkea hefur verið reiðubúin síðan í fyrra. Áhugi yðar hefur verið hvatning fyrir fjöldamarga.3En bræðurna hef ég sent, til þess að hrós vort um yður skyldi ekki reynast fánýtt í þessu efni og til þess að þér, eins og ég sagði, mættuð vera reiðubúnir.4Annars gæti svo farið, að vér, að vér ekki segjum þér _, þyrftum að bera kinnroða fyrir þetta traust, ef Makedónar skyldu koma með mér og finna yður óviðbúna.5Vér töldum því nauðsynlegt að biðja bræðurna að fara á undan til yðar og undirbúa þá gjöf yðar, sem heitin var áður, svo að hún mætti vera á reiðum höndum eins og blessun, en ekki nauðung.6En þetta segi ég: Sá sem sáir sparlega mun og sparlega uppskera, og sá sem sáir ríflega mun og ríflega uppskera.7Sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar glaðan gjafara.8Guð er þess megnugur að veita yður allar góðar gjafir ríkulega, til þess að þér í öllu og ávallt hafið allt sem þér þarfnist og getið sjálfir veitt ríkulega til sérhvers góðs verks.9Eins og ritað er: Hann miðlaði mildilega, gaf hinum snauðu, réttlæti hans varir að eilífu.10Sá sem gefur sáðmanninum sæði og brauð til fæðu, hann mun og gefa yður sáð og margfalda það og auka ávexti réttlætis yðar.11Þér verðið í öllu auðugir og getið jafnan sýnt örlæti sem kemur til leiðar þakklæti við Guð fyrir vort tilstilli.12Því að þessi þjónusta, sem þér innið af hendi, bætir ekki aðeins úr skorti hinna heilögu, heldur ber hún og ríkulega ávexti við að margir menn þakka Guði.13Þegar menn sjá, hvers eðlis þessi þjónusta er, munu þeir lofa Guð fyrir að þér haldið játningu yðar við fagnaðarerindi Krists og gefið með yður af örlæti, bæði þeim og öllum.14Og þeir munu biðja fyrir yður og þrá yður vegna yfirgnæfanlegrar náðar Guðs við yður.15Þökk sé Guði fyrir sína óumræðilegu gjöf!

9.1 Samskot 2Kor 8.1+ – hjálp til hinna heilögu 2Kor 8.4+
9.3 Hrós okkar 2Kor 7.4+
9.6 Sá sem sáir … Okv 22.8; 11.24
9.9 Hann miðlaði … Slm 112.9
9.11-12 Þakka Guði 2Kor 1.11+