1Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd!2Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.3Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.4Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar.5Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.6Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans.7Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald.8Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans,9fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd!10Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.11Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er,12foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,13fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.

96.1 Nýr söngur Slm 33.3+ – syngið Drottni Slm 9.12; 30.5; 47.7; 66.2; 68.5; 81.2; 135.3; 2Mós 15.21; 1Kro 16.9,23
96.2 Hjálpráð hans (sigur) Slm 98.2
96.3 Meðal þjóðanna Slm 9.12+
96.4 Mikill, mjög vegsamlegur Slm 48.2; 145.3; sbr 99.2 – óttalegur Slm 47.3+ – en allir guðir Slm 95.3+
96.5 Falsguðir Slm 97.7; 115.4-8; 1Kor 8.4-6 – gert himininn 1Mós 1.6-8; sbr Slm 121.2+
96.6 Dýrð og hátign Slm 104.1
96.7 Dýrð og máttur Slm 29.1-2
96.9 Fallið fram Slm 99.9
96.10 Meðal þjóðanna Slm 9.12+ – Drottinn er konungur Slm 93.1+ – jörðin bifast ekki Slm 93.1 – dæmir þjóðirnar Slm 9.9; sbr 98.9
96.11 Himininn gleðjist Jes 44.23; 49.13; Opb 12.12; 18.20 – jörðin fagni Slm 97.1 – hafið … Slm 98.7; Jes 42.10-12
96.12 Öll tré … Jes 55.12
96.13 Drottinn kemur og ríkir Slm 98.9