Ljóð. Asafs-sálmur.
2Guð, ver eigi hljóður, ver eigi þögull og hald eigi kyrru fyrir, ó Guð!3Því sjá, óvinir þínir gjöra hark, og hatursmenn þínir hefja höfuðið,4þeir bregða á slæg ráð gegn lýð þínum, bera ráð sín saman gegn þeim er þú geymir.5Þeir segja: Komið, látum oss uppræta þá, svo að þeir séu ekki þjóð framar, og nafns Ísraels verði eigi framar minnst!6Því að þeir hafa einhuga borið saman ráð sín, gegn þér hafa þeir gjört bandalag:7Edómtjöld og Ísmaelítar, Móab og Hagrítar,8Gebal, Ammon og Amalek, Filistea ásamt Týrusbúum.9Assúr hefir einnig gjört bandalag við þá og ljær armlegg sinn Lots-sonum. Sela10Far með þá eins og Midían, eins og Sísera, eins og Jabín við Kísonlæk,11þeim var útrýmt hjá Endór, urðu að áburði á jörðina.12Gjör þá, göfugmenni þeirra, eins og Óreb og Seeb, og alla höfðingja þeirra eins og Seba og Salmúna,13þá er sögðu: Vér viljum kasta eign vorri á vengi Guðs.14Guð vor, gjör þá sem rykmökk, sem hálmleggi fyrir vindi.15Eins og eldur, sem brennir skóginn, eins og logi, sem bálast upp um fjöllin,16svo skalt þú elta þá með ofviðri þínu, skelfa þá með fellibyl þínum.17Lát andlit þeirra fyllast sneypu, að þeir megi leita nafns þíns, Drottinn!18Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá sæta háðung og tortímast,19að þeir megi komast að raun um, að þú einn heitir Drottinn, Hinn hæsti yfir allri jörðunni.

83.1 Asaf 50.1+
83.2 Ver eigi þögull Slm 28.1+ ; sbr 44.24; 50.3
83.4 Svikráð Slm 31.14
83.7 Edóm gegn Ísrael 4Mós 20.14-21; Am 1.11 – Móab Am 2.1+
83.8 Ammon Am 1.13+ – Amalek 2Mós 17.8-16; 5Mós 25.17; Dóm 6.3,33; 10.12; 1Sam 15.2 – Filistar Am 1.6+ – Týrus Am 1.9+
83.10 Eins og Midían Dóm 6-8; Jes 9.3 – Sísera og Jabín Dóm 4-5; 1Sam 12.9
83.12 Óreb og Seeb Dóm 7.25 – Seba og Salmúna Dóm 8.5-12
83.14 Fyrir vindi Jes 17.13; Job 27.21
83.17 Leita nafns Drottins sbr Slm 9.11+
83.19 Játa Slm 46.11; sbr 2Kon 19.19; Esk 7.9; 39.22; Dan 4.32 – Hinn hæsti Slm 97.9