1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Minningarljóð.2Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, Drottinn, skunda mér til hjálpar.3Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.4Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar, er hrópa háð og spé.5En allir þeir er leita þín, skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu, skulu sífellt segja: Vegsamaður sé Guð!6Ég er þjáður og snauður, hraða þér til mín, ó Guð. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, dvel eigi, Drottinn!

70.2 Til hjálpar Slm 22.20+
70.3 Til skammar Slm 35.4+
70.4 Háð og spé Slm 35.21+ ,25
70.5 Gleði Slm 35.27 – leita Drottins Slm 9.11+