1Til söngstjórans. Maskíl eftir Davíð,2þá er Dóeg Edómíti kom og sagði Sál frá og mælti til hans: Davíð er kominn í hús Ahímeleks.3Hví stærir þú þig af vonskunni, harðstjóri? Miskunn Guðs varir alla daga!4Tunga þín býr yfir skaðræði, eins og beittur rakhnífur, þú svikaforkur!5Þú elskar illt meir en gott, lygi fremur en sannsögli. Sela6Þú elskar hvert skaðræðisorð, þú fláráða tunga!7Því mun og Guð brjóta þig niður fyrir fullt og allt, hrífa þig burt og draga þig út úr tjaldi þínu og uppræta þig úr landi lifenda. Sela8Hinir réttlátu munu sjá það og óttast, og þeir munu hlæja að honum:9Þetta er maðurinn, sem ekki gjörði Guð að vernd sinni, heldur treysti á hin miklu auðæfi sín og þrjóskaðist í illsku sinni.10En ég er sem grænt olíutré í húsi Guðs, treysti á Guðs náð um aldur og ævi.11Ég vil vegsama þig að eilífu, því að þú hefir því til vegar komið, kunngjöra fyrir augum þinna trúuðu, að nafn þitt sé gott.
52.4 Illkvittin tunga Slm 5.10+ – klækjarefur Mík 6.12; Job 27.4
52.5 Elska illt Jer 4.22
52.7 Burt úr tjaldi Job 18.14 – uppræta Okv 2.22
52.8 Sjá og skelfast Slm 40.4
52.9 Guð veitir hæli Slm 27.1; 28.7; 31.3-4; sbr 9.10+ – treysta á auðæfi Okv 11.28
52.10 Grænt tré Slm 1.3 – í húsi Guðs Slm 92.13-14 – treysta Guði Slm 9.11+
52.11 Þú gerðir … 1Kon 8.32